Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 201
HINZTA FÖR AÐ HAGAKOTI
hana. Töluðust þau við lítið eitt, og kvað Sigríður gestinn vera
fastan í eldhússtrompinum. Hélt hún síðan áfram út að Hofi, en
Markús hvataði förinni heimleiðis. Komu hinir á eftir, og fór nú
hver sem hann mátti.
Þegar Hofsmenn komu á vettvang, lá Sigurður yfir hlóðir í eld-
húsinu, upp í loft, boginn yfir hlóðarsteininn og höfuðið við hellu-
blað, er það kynni að hafa slegizt við um leið og hann skall niður.
Fötin voru vöðluð upp um herðar, en axlaböndin laus að framan
og buxurnar niður um hann, svo líkaminn var ber í miðju. Sáust
þess engin merki, að hann hefði kvikað eftir að niður kom úr
strompinum. Nokkrum bláma sló á andlitið, en ekki fundu þeir
áverka. Sýndist þeim Sigurður með öllu líflaus og báru hann inn
í baðstofu. Friðrik snaraðist út að Hofi, eftir bíldi, og reyndi síðan
að slá honum æð á báðum handleggjum, en ekki dreyrði úr. Enda
þótt þeir teldu Sigurð með öllu örendan, ákvað Friðrik að sækja
Svein Sölvason á Skúfsstöðum, glöggan mann cg nærfærinn. Báru
þeir áður líkið út í fjárhúsgarða, að kröfu Markúsar, vegna
þrengsla í baðstofunni, en hlýtt var í veðri (um 12 gráður C).
Dvöldu þau Hagakotshjón og Sigurður Gíslason vinnumaður hjá
líkinu meðan Friðrik fór eftir Sveini. Komu þeir aftur um mið-
mundabil, og reyndi Sveinn tiltækar lífgunaraðferðir, þótt hann
væri efalaus í, að Sigurður væri dauður, enda líkið byrjað að
stirðna, þótt ekki væri með öllu kalt orðið. Við nánari eftir-
grennslan fundu þeir svo sem gómstóran, bláleitan blett ofan til
við bringspalirnar á líkinu, en ekki kunnu þeir að úrskurða, hvort
nýmarið væri eða ekki. Að öðru leyti var líkið með öllu áverka-
laust.
Svo sem að framan er greint, lét Friðrik hreppstjóri senda eftir
sýslumanni, sem eðlilegt var í slíku tilviki til ao létta öllum grun
af þeim Hagakotshjónum og, eins og stendur í bréfinu, „til að
fyrirbyggja ósatt slaður, sem annars kynni út af þessu að spinn-
ast.“ Kom sýslumaður upp í Hjaltadal og tók réttarpróf á Hofi
og Hagakoti hinn 8. október af þeim persónum, sem málið snerti.
Komu þá fram þau atriði, er hér eru rakin í sambandi við dauða
Sigurðar Jónssonar.
199