Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 59
SÉRA Þ'ORSTEINN PRESTLAUSI
„Svofelldan vitnisburð ber ég Helga Einarsdóttir, að ég var á
Skagaströnd vistföst eitt ár og XX og vissa ég fyrir full sannindi,
að síra Þorsteinn heitinn Jónsson, sem þá var minn húsbóndi, tók
aldrei nokkurn eið af Þorfinnu heitinni Halldórsdóttur um fað-
erni að sínum syni, Jóni, og ei bað greind Þorfinna áðurgreindan
síra Þorstein nokkurn eið af sér taka að neinu sinni þá hún þar
kom, að rnenn viti, og eftir Jón heitinn Einarsson látinn kom Þor-
finna til Höskuldsstaða, bað síra Þorstein og mig að leggja sér
gott til svo hún mætti nokkuð hjálpræði fá fyrir sitt barn og þess
bað ég hann líka, séra Þorstein. Heyrða ég og aldrei, að Jón Ein-
arsson hefði nokkurn tíma Jóni Þorfinnusyni meðgöngu veitt, að
hann væri faðir að honum. Hef ég oftast heyrt tvímæli á leika
eður þrennt til sagt um faðerni Jóns Þorfinnusonar. Hafði síra
Þorsteinn heitinn Jónsson ekki prófastsdæmi nema þau 2 ár er
biskup heitinn Jón var fyrir utan, á meðan við vorum á Höskukk-
stöðum hann og ég etc.“
Hér er komin Helga Einarsdóttir, sem greinilega hefur verið
fylgikona séra Þorsteins á Höskuldsstöðum Jónssonar,og ætla mætti
að væri hin sama sem sú, er að framan getur, og ætti því séra
Þorsteinn á Höskuldsstöðum að vera faðir Olafs og bróðir Þór-
unnar móður Benedikts sýslumanns Halldórssonar. I fljóm bragði
mætti virðast, að orðalagið „hafði síra Þorsteinn heitinn Jónsson
ekki prófastsdæmi nema þau 2 ár er biskup heitinn Jón var fyrir
utan, á meðan við vorum á Höskuldsstöðum hann og ég“ ætti að
skilja svo, að þau hafi þegar verið tekin saman séra Þorsteinn og
Helga, þegar Jón biskup Arason var erlendis, en það var á árunum
1523—1525.
Helga hefði þá varla átt að vera fædd síðar en um 1505, en
vitnisburðinn má væntanlega ekki taka svo bókstaflega, heldur
mun hún hafa viljað segja, að á þeim tíma, sem þau voru saman,
séra Þorsteinn og hún, hafði séra Þorsteinn ekki prófastsembætti,
en hins vegar hafði hann það á árunum 1523—1525. Þá kemur
það vel heim við það, sem síðar segir, að þau muni hafa verið
saman 21 ár, frá því um 1532 til um 1553, er Þorsteinn virðist
57