Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 56
SKAGFIRÐINGABÓK
í ættartölubókinni í Lbs. 2638 4t0, sem skrifuð er af séra Agli
í Skarðsþingum Helgasyni á árunum 1681—1682, segir svo:
„Um Þórunni Jónsdóttur. Hún átti fyrst barn við síra Hall-
dóri Benediktssyni, er Benedikt hét, kallaður ríki, bjó á
Möðruvöllum í Hörgárdal. Þar eftir átti hún barn við Torfa
Jónssyni, er Málfríður hét, k. séra Björns G.s. í þriðja sinni
átti hún dóttur við Ara lögmanni, er Elín hét. Bróðir Þór-
unnar hét síra Þorsteinn Jónsson, hans sonur Olafur, hans
son síra Þorsteinn, hans son Gunnlaugur...“
Gunnlaugur Þorsteinsson er séra Gunnlaugur, sem bjó í Syðra-
Vallholti í Hólmi í Skagafirði og var við þá jörð kenndur, en
þjónaði Víðimýrarkirkju og Flugumýrarkirkju. Vel má vera, að
þetta ættartölubrot sé frá honum komið, en það er eflaust alveg
rétt, enda voru niðjar Þórunnar landskunnugt fólk.
Það er hins vegar annar Þorsteinn Jónsson, sem fyrir manni
verður, þegar leitað er að langafa séra Gunnlaugs og einmitt má
ætla, að borið hafi viðurnefnið „prestlausi“, en það viðurnefni
mun almennt hafa verið skilið svo, að það ætti við mann, sem
hefði fengið prestvígslu, e. t. v. verið þjónandi prestur um skeið,
en síðan misst embætti af einhverjum ástæðum og lifað nokkurn
tíma eftir það án embættis.
I skjali frá 22. desember 1520 er séra Þorsteinn Jónsson nefnd-
ur „beneficatus á Höskuldsstöðum“. Þessa séra Þorsteins er senni-
lega fyrst getið í skjölum í prestadómsbréfi gerðu á Víðivöllum
í Blönduhlíð 29. apríl 1512, með því að sá alnafni hans í presta-
stétt, sem nefndur er í prestastefnubréfi Gottskálks biskups 5.
apríl 1507 er líklega fremur séra Þorsteinn á Melstað Jónsson,
sem mun vera dáinn fyrir 1. júní 1510. Þetta er þó ekki ugglaust,
en hvorugur þessara presta er nefndur í íslenzkum æviskrám.
Ef séra Þorsteinn á Höskuldsstöðum er fyrst nefndur 1512 er
líklegt, að hann sé fæddur skömmu fyrir 1490, enda kæmi það
vel heim við aldur Þórunnar, sem að vísu er varla fædd fyrir
1500, en ekki heldur nema fáum árum síðar.
54