Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 58
SKAGFIRBINGABÓK
fyrr segir, væntanlega hafa lifað alllengi án embættis, og því kann
að vera um hann að ræða í dómi, sem gekk á Hrafnagili í Eyja-
firði árið 1539 um ákæru Þorsteins Jónssonar um það, að séra
Högni Pétursson hefði farið á heimili sitt, brotið hús sín og haft
burtu fémuni sína nokkra. Séra Högni viðurkenndi, að hann hefði
haft burtu nokkra peninga „úr þeim húsum, sem Þorsteinn átti
að ráða“, en látið síðan skilvísa menn virða féð í þau sakferli
og dómrof, sem hann átti hjá Þorsteini. Ekkert segir um það í
dómsbréfinu hvar heimili Þorsteins var, en gruna má, að hér sé
um Þorstein þann að ræða, sem var prestur á Höskuldsstöðum,
en þegar hér var komið sögu hafði látið af prestskap og séra
Högni hafi verið að sækja í hendur honum fé, sem hann taldi sig
eiga réttmætt tilkall til. Séra Högni kann að vera kominn að
Höskuldsstöðum þegar þetta gerðist, og má ekki taka of mikið
mark á því, að stefnt var fyrir dóm á Hrafnagili í Eyjafirði, þótt
það kynni fremur að benda til þess, að húsbrotið hafi skeð í Eyja-
firði. Orðalagið bendir til þess, að fleiri hafi haft umráð húsa á
bæ þeim, er Þorsteinn bjó á, en hann sjálfur, og gæti jafnvel svo
verið, að atburðurinn hafi skeð á Höskuldsstöðum. Um þetta verð-
ur ekkert sagt með vissu.
I XIII. b. Fornbréfasafnsins, bls. 629—630, er prentaður vitnis-
burður, sem Helga Einarsdóttir gaf á Auðkúlu í Svínadal 14. júlí
1561 um faðernismál Jóns Þorfinnusonar. Margir vitnisburðir
hafa verið gefnir um þetta mál og margir eru enn til. Þeir hafa
án efa verið gefnir vegna þess, að Guðrún Þorleifsdóttir lögmanns
Pálssonar, ekkja Egils á Geitaskarði Jónssonar, sonar Jóns bónda
þar Einarssonar, átti vingott við þennan Jón Þorfinnuson, ófeðrað-
an mann, son Þorfinnu Halldórsdóttur, sem mun hafa verið all-
lauslát, með því að nokkrir eru í vitnisburðunum taldir koma til
greina sem feður að Jóni, en meðal þeirra, sem orðaðir voru, var
Jón bóndi á Geitaskarði, faðir Egils. Sök Guðrúnar hefði orðið all-
þung, ef sannast hefði, að Jón Þorfinnuson væri hálfbróðir manns
hennar.
Vitnisburður Helgu hljóðar svo:
56