Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 80
SKAGFIRÐINGABÓK
pallur með lítilli skonsu. Þar sváfum við Kristmundur, en Guð-
mundur í hesthúsinu og hestarnir í réttinni. I „herberginu“ var
jafnvel hilla og á henni prímus og pottur. Seinna svaf ég oft í
mörgum sæluhúsum (gangnakofum), sem voru betri eða verri en
þessi, en alltaf hefur mér fundizt vissara að gægjast inn í þessa
kofa, hvort sem veðrið hefur nú verið sólskinsbjart eða hríð og
kuldi.
Yið riðum að Orravatni um kvöldið og að Reyðarvatni næsta
dag. Varla er hægt að finna jafnólík vötn svo nálægt hvort öðru.
Orravatn er grunnt og óhreint með gróður fram á bakka, Reyðar-
vatn tært og djúpt, gróðurlaus stórgrýtisbakki í kring. Dýralíf
þarna er líka mjög ólíkt, sem er önnur saga, en í þessari ferð sá ég
fyrst, hvað dýralífið getur verið margvíslegt, einnig á öræfunum.
A veggjum Rústakofa var jafnvel hunangsflugnabú.
Vistin í Rústakofa var svo skemmtileg og svæðið þar í kring,
að mig langaði til að vera þar nokkra daga í viðbót. En þó ég þyrfti
ekki að borga nema þrettán krónur á dag í ferðakostnað, hafði ég
ekki efni á lengri dvöl þar. Við héldum því heim á leið. Hjá Þor-
ljótsstöðum urðum við að teyma hestana niður brekkuna. Eftir
nótt í Litluhlíð héldum við svo út að Mælifelli.
Árið 1937 voru fyrirætlanir mínar allt aðrar en árið á undan,
þegar ég var við söfnun hér og þar um allt héraðið. Nú ætlaði ég
að athuga dýralíf í hverum og laugum, komast að raun um, hvaða
dýr væri þar að finna og kynnast lífsháttum þeirra. Eg var því
kominn í aprílbyrjun að Mælifelli og fór ekki heim til Danmerk-
ur fyrr en í byrjun ágúst. Rannsóknir og tilraunir bundu mig
nokkuð heima við, svo að lítið varð um löng ferðalög. Þó langar
mig til að segja dálítið frá lengstu ferð minni þetta sumar. Þegar
hér er komið sögunni, hafði ég ferðazt nokkuð mikið um hálendi
landsins, verið á Kili, í Kerlingarfjöllum og Þjórsárverum (1934),
en þá hafði ég alltaf farið fjallaleiðir sunnanlands. Nú langaði
mig til að fara Kjöl alla leið frá Mælifelli suður að Geysi og sömu
leið heim. Og úr þessu varð um miðjan júlí þetta ár.
78