Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 61
SÉRA ÞORSTEINN PRESTLAUSI
laust einnig sami Þorsteinn, sem 13. apríl 1553 er í dómi Orms
lögmanns á Þorkelshóli í Víðidal, 29. apríl s. á. í Bólstaðarhlíð
og 16. maí s. á. á Ljósavatni. Hér mun hans vera síðast getið í
skjölum, með því að skjal nr. 454 í Fornbréfasafninu, XII. b., sem
þar er talið frá 1554, er frá 29. apríl 1553, svo sem sýna má með
samanburði við skjölin nr. 306 og 307 í sama bindi: Séra Þor-
steinn á Höskuldsstöðum hefði þá átt að vera vel hálfsjötugur
að aldri.
Helga Einarsdóttir gefur fyrrnefnda vitnisburði á Gunnsteins-
stöðum 1564 og skömmu eftir 1567, og er langsennilegast, að þar
hafi hún þá búið. Gunnsteinsstaðir voru á sínum tíma í eigu
Einats bónda þar Bessasonar, sem gerir testamenti sitt seint á ár-
inu 1427, og hefur líklega dáið skömmu síðar. Sonur hans var
Bessi bóndi faðir Þorbjargar konu Daða bónda í Snóksdal Ara-
sonar. Þorbjörg virðist hafa verið einkaerfingi Bessa. Dóttir henn-
ar og Daða er í niðjatölum, og eflaust réttilega, talin Matthildur
móðir Bessa á Auðólfsstöðum. Bessi sá kynni að vera Bessi Ara-
son, sem er meðal helztu bænda í Húnavatnsþingi um 1500, en
sönnur verða ekki á það færðar. Sonarsonur Bessa á Auðólfsstöð-
um var að öllum líkindum Bessi sá Einarsson, sem átti hluta í
Auðólfsstöðum á síðari hluta 16. aldar, og faðir þess Bessa, Einar
Bessason, sem er meðal helztu bænda í Húnavatnsþingi um miðja
16. öld. Engar heimildir eru til um eignarmenn Gunnsteinsstaða
frá dauða Einars Bessasonar 1427 fram á miðja 16. öld, og svo
má því ætla, að þar hafi alnafni hans, sem að öllum líkindum
var niðji hans, búið, og þá jörð hafi hann átt, þegar vitneskja er
fengin úr fyrrnefndu bréfi, að Helga Einarsdóttir, sem á Gunn-
steinsstöðum var, miðar ráðstöfun eigna sinna við lát Einars. Það
er nefnilega líklegast, að Helga hafi verið gift Einari Bessasyni,
og verður vart séð hvað honum koma jarðarafhendingar hennar
við nema svo hafi verið. Helga hefur því, að minni hyggju, átt
Einar Bessason að séra Þorsteini látnum, nálægt 1555, og hefur
Einar þá verið ekkjumaður, með því að arfgeng börn hefur hann
átt, sem fædd voru fyrir þann tíma. Einar hverfur úr sögunni
59