Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 67
VÍSINDAMAÐUR í SVEIT
hans hefur ekki að litlu leyti verið helgað henni. Þrátt fyrir
meiri kynni af öðrum þjóðum en almennt gerist eða kannski
vegna þeirra, telur hann sig umfram allt vera Skagfirðing,
enda var hann þrívegis heimamaður á Mælifelli mánuðum
saman.
Hann er gagnkunnugur landinu, fór m. a. í fjögurra vikna
rannsóknarferð inn að jöklum, er slíkar ferðir voru ýmsum
örðugleikum bundnar. Yfir Kjöl hefur hann farið fjórum sinn-
um.
Tuxen varð riddari af íslenzku fálkaorðunni 26. apríl 1974.
Eftirfarandi grein ritaði hann á íslenzku.
K. B.
Nýlega var ég í heimsókn hjá vini mínum, Kristmundi
Bjarnasyni frá Mælifelli, og fjölskyldu hans á Sjávarborg, og rifj-
aðist þá margt upp fyrir mér frá liðnum tíma í Skagafirði. Miklar
voru þær breytingar, sem á höfðu orðið, síðan ég ferðaðist þar um
á árunum 1932—1937 og var í senn útlendingur, vísindamaður
og skagfirzkur lausamaður. Kristmundur er nu kunnur rithöfund-
ur, en hann var þrettán ára gamall strákur, þegar ég kom fyrst
að Mælifelli; samt var hann þá og síðan ágætur kennari, og hon-
um er það að þakka, að ég þori að skrifa þetta á móðurmáli hans.
Eg kom að Mælifelli í fyrsta skipti árið 1932, og ástæðan var
sú, að náttúrufræðingur var fenginn frá Danmörku til að safna
skordýrum á Islandi. Ég var þá ungur stúdent, 23 ára, og vissi satt
að segja ekkert um ísland, nema að skordýr væri sennilega þar
að finna sem annars staðar. Um skordýr vissi ég þó töluvert. Svo
var mál með vexti, að nefnd danskra og íslenzkra vísindamanna
hafði komið sér saman um að láta semja stórverk um íslenzk dýr
á sama hátt og þá var nýbyrjað að gera um dýralíf Færeyja. Carl
L. Lindroth, seinna prófessor, hafði þá ferðazt mikið um ísland og
safnað skordýrum, en skordýralíf í Skagafirði og á hálendinu var
samt mjög lítið þekkt, og því var ég beðinn eða boðið að fara til
íslands með mjög smttum fyrirvara og safna sem mest ég gæti
í Skagafirði. Ragnar Spárck, danskur prófessor, var aðalstjórnandi
þessa verks. Hann vissi, að Pálmi rektor Hannesson var ættaður
úr Skagafirði og sótti því ráð hjá honum. Hann taldi, að Bjarna-
65
5
L