Morgunblaðið - 18.12.1985, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1985
******■( >*%*,títH
VSÍ í tveimur mál-
um fyrir Félagsdómi
Gegn Dagsbrún vegna uppskipunarbannsins
og prenturum vegna tölvusetningar í Alþingi
MAL þart, sem Vinnuveitendasam-
band íslands hefur höföað gegn
Dagsbrún fyrir Félagsdómi vegna
meints samningsbrots Dagsbrúnar I
Jólapottar
Hjálpræðishersins:
; Safnað
til barna-
heimilis í
Panama
HJÁLPRÆÐISHERINN hefur að
venju sett upp jólapotta sína og i
fimmtudaginn verður safnað til
stúlknaheimilis í Panama, sem
Hjálpræðisherinn rekur og nú er
stjórnað af Miriam Óskarsdóttur
lautinant.
í bréfi til Hjálpræðishersins á
íslandi segir Miriam m.a.:
„Nú þegar ég sest niður til að
skrifa ykkur, er komið kvöld.
Klukkan er margt og flest bðrnin
eru farin að hátta. Við höfðum 15
börn hér núna, frá tveggja ára til
17 ára að aldri. Sá yngsti, Gilberto,
er eini drengurinn hér. Hann á 14
„systur", en það virðist ganga vel.
Við getum ekki tekið við fleiri
börnum eins og er, og höfum orðið
tengslum við uppskipunar- og af-
greiðslubann Dagsbrúnar á vörum
frá Suður-Afríku, var þingfest öðru
sinni fyrir Félagsdómi á mánudag-
inn.
Að þessu sinni er málið höfðað
af VSI fyrir hönd Eimskipafélags
íslands en fyrra málið, sem var
fellt niður vegna formgalla, var
höfðað af VSÍ einu. Lögmaður
Dagsbrúnar óskaði í fyrradag eftir
fresti þar til í dag til að skila
greinargerð í málinu.
Á mánudag var einnig þingfest
í Félagsdómi mál, sem VSÍ f.h.
Félags íslenska prentiðnaðarins
höfðar gegn Félagi bókagerðar-
manna. I því var prenturum veitt-
ur frestur til að afla gagna þar til
13. janúarnæstkomandi.
Mál þetta er þannig til komið,
að Félag bókagerðarmanna hefur
neitað að taka við tölvusettum
texta frá Alþingi til vélsetningar
í ríkisprentsmiðjunni Gutenberg.
Þar til nýlega sáu 5-6 setjarar,
allir félagar í FBM, um alla setn-
ingu á þingtíðindum og fleiru í
Gutenberg, en með tilkomu nýrrar
tækni hefur þingriturum verið
gert kleift að setja allan texta
sjálfir og fá hann svo prentaðan í
Gutenberg, ýmist með því að senda
þangað „diskettur" eða með send-
ingu texta eftir símalínum. Deilan
snýst um mismunandi túlkun á
ákvæði um nýja tækni í gildandi
samningi Félags bókagerðar-
manna við Félag ísl. prentiðnaðar-
ins.
Barnadeild
Landakotsspítala
fékk gjöfina
I MORGUNBLAÐINU á sunnu-
daginn varð slæm villa í fyrirsögn.
Þar stóð að barnadeild Landspít-
ala hefðu verið færð fullkomin
tæki að gjöf en átti að standa
barnadeild Landakotsspítala. Morg-
unblaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.
Lautinant Miriam, aðstoðarstúlka
hennar og börnin fyrir utan barna-
heimilið sem er nálægt bænum Colón
í Panama.
að svara umsækjendum: „Því mið-
ur ...“ Börnin taka aðstæðunum
ótrúlega vel, en vegna þess að hús-
ið er gamalt og í lélegu ástandi,
þá þyrftum við á nýju og betra
húsnæði að halda. Þetta virðist
vera ómögulegt í augnablikinu, en
ég treysti Drottni fyrir að sjá um
lausn á málinu.
Það sem er efst á „lista“ mínum
núna, er ökutæki fyrir heimilið.
Þannig væri auðveldara að komast
á samkomur og að fara eitthvað,
þegar börnin eiga frí úr skólanum.
Stundum er erfitt, á helgidögum
t.d. að fá strætisvagn, því hver
ökumaður er einnig eigandi stræt-
isvagnsins. Það er 20 mínútna
akstur til næsta bæjar, sem er
Colón. Ef þú sem lest þetta hefur
áhuga á að hjálpa okkur til að fá
ökutæki, þá má senda peninga til
deildarstjórans, majórs Ernst
Olsson, merkt: Laut. Miriam
Óskarsdóttir, Panama. Ég vil einn-
ig þakka ykkur, sem hafið sent
aðstoð hingað. Guð blessi ykkur
oglauni."
lands var formlega tekin í notkun
laugardaginn 14. desember sl. að
viðstöddu fjölmenni. Hjálparstöðin
hefur það að markmiði að veita
þeim börnum og unglingum mót-
töku og fyrstu aðhlynningu sem
vegna vímuefnaneyslu eða af öðrum
félagslegum eða persónulegum
ástæðum þurfa á slíkri þjónustu að
halda. Stöðin er opin allan sólar-
hringinn og einnig er henni ætlað
að leiðbeina börnum og unglingum
í síma allan sólarhringinn. Hún er
sett á laggirnar fyrir börn, barn-
anna vegna og henni ætlað að verja
hagsmuni þeirra, eins og segir í
greinargerð um hjálparstöðina.
Aðdraganda að stofnun hjálpar-
stöðvarinnar má rekja til síðasta
aðalfundar RKÍ sem haldinn var
í byrjun maí sl. Þar var samykkt
að taka til. athugunar með hvaða
hætti Rauði krossinn gæti orðið
að liði í baráttunni gegn fíkniefna-
neyslu og komið ungum fíkniefna-
neytendum og aðstandendum
þeirra til hjálpar.
Vinnuhópur með fulltrúum frá
deildum Rauða krossins í Reykja-
vík, Kópavogi, Kjósarsýslu, Suður-
nesjum, Garðabæ, Hafnarfirði,
Grindavík og Vestmanneyjum var
stofnaður og síðan framkvæmda-
nefnd. Nefndin leitaði hugmynda
hjá fjölmörgum aðilum úr ýmsum
stofnunum og félagasamtökum um
leiðir til úrbóta vegna vímuefna-
neyslu ungmenna. Eftir þær við-
ræður kom í Ijós nauðsyn þess að
komið yrði upp neyðarathvarfi
fyrir unglinga á höfuðborgarsvæð-
inu og utan þess.
Endanlegur samningur um
rekstur hjálparstöðvarinnar var
undirritaður 8. nóvember sl. eftir
að framkvæmdanefndin hafði leit-
að til ólafs Oddssonar uppeldis-
ráðgjafa sem skilaði greinargerð
um nánari útfærslu á hugmynd-
inni um stofnun hjálparstöðvar
fyrirunglinga.
í grófum dráttum er hugsanleg-
um gestum hjálparstöðvarinnar
skipti í eftirfarandi hópa:
1. Börn í vanda vegna neyslu
vímuefna, áfengis eða annarra
efna.
2. Andlega, líkamlega og/eða
félagslega vannærð börn.
3. Börn sem orðið hafa fyrir
andlegu eða líkamlegu ofbeldi.
4. Börn sem lögð eru í einelti.
5. Börn sem orðið hafa fyrir
kynferðisáreitni eða árásum.
6. Börn sem eiga í vanda, t.d.
vegna erfiðleika í samskiptum við
foreldri, stjúpforeldri eða vegna
samskiptaerfiðleika foreldra
sinna.
7. Börn sem vísað er út af heimil-
um sínum.
8. Félagslega einangruð börn.
Tekið skal fram að upptalning
þessi er ekki tæmandi.
Unnið verður eftir þeirri höfuð-
reglu að ekkert sé gert til að leysa
vanda viðkomandi gests stöðvar-
innar án hans vitundar og í sam-
vinnu við hann. Því verður t.d.
ekki haft samband við aðstandend-
ur né aðra án vitundar gestsins.
Ekki verða gefnar upplýsingar um
gest ef aðstandendur spyrja um
hann án hans vitundar og með
samþykki hans. Að öðru leyti skulu
málefni einstaklingsins metin í
hverju tilfelli og tekið mið af per-
sónulegum þörfum viðkomandi.
Starfsemin tekur mið af lögum
um vernd barna og ungmenna frá
1966 með þeim breytingum sem
gerðar hafa verið á þeim, auk
barnalaga sem samþykkt voru á
Alþingi 1981. Að öðru leyti tekur
starfsemin mið af vinnusiðfræði
uppeldisráðgjafa eins og hún birt-
ist í lögum Félags uppeldisráð-
gjafa og ekki síst alþjóðlegum
mannúðarmarkmiðum Rauða
krossins um fyrstu hjálp. Sér-
stakrar varúðar verður gætt i
skráningu og meðferð mála. Gest-
um verður gerð grein fyrir tilgangi
skráningarinnar og þagnarskyldu.
Ekki er gert ráð fyrir að hver
einstaklingur dvelji í hjálparstöð-
inni nema í fáa daga. Gestum
verður boðið upp á að ræða um
vandamál sin, samtöl við foreldra
eða nánustu aðstandendur, samtöl
við starfsmenn stofnana sem rétt-
ast er talið að viðkomandi leiti til
og sérfræðilega ráðgjöf félaga í
Rauða krossi íslands.
Hús Hjálparstöðvar RKÍ rúmar
7-10 gesti i einu og verður tekið
tillit til ástands og líðan þeirra
sem fyrir eru á staðnum við mót-
töku nýrra gesta.
Hjálparstöðin er til húsa á
Tjarnargötu 35 í Reykjavík. Sím-
inn er 62-22-66. Eins og áður segir
er hjálparstöðin opin allan sólar-
hringinn. Einn starfsmaður verður
að jafnaði á staðnum, en tveir á
vissum álagstímum. Þá verður fólk
á bakvöktum ef gestum fjölgar
skyndilega.
Fjöldi manns kom í Hjilparstöð RKI er hún var formlega tekin I notkun sl. laugardag.
Morgunblaðift/Ól.K.M.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Fri vinstri: Rúnar Bjamason slökkviliðsstjóri og Davíð Oddsson borgarstjóri sem tók við bifreiðinni af Erlingi
Helgasyni forstjóra Krafts hf„ umboðsaðila MAN.
Slökkviliöinu í Reykjavík afhent
ný slökkvibifreið
NÝ SLÖKKVIBIFREIÐ hefur verið tekin í notkun
hjá slökkvíliðinu í Reykjavík. Bifreiðin verður stað-
sett í Arbæjarslökkvistöðinni og kemur til með að
þjóna vaxandi byggð þar í kring isamt nágranna-
sveitarfélögunum í framtíðinni. Hingað komin kost-
aði bifreiðin með öllum búnaði tæpar fimm milljónir
króna og greiða Húsatryggingar Reykjavíkur allan
þann kostnað eins og annan fjirfestingarkostnað
slökkvistöðvarinnar.
Bifreiðin er af gerðinni M.A.N. 19.281, búin dies-
elvél með dælu sem getur dælt allt að 4500 lítrum
af vatni á mínútu og er búin háþrýsti- og lág-
þrýstiþrepum. Þá eru í bifreiðinni tæki til slökkvi-
og björgunarstarfa, 9 metra stigi, reykköfunartæki,
laus dæla, reykblásari, froðustútar og froðutankur
auk annars búnaðar, sem fyrst og fremst miðast
við að koma í veg fyrir vatns- og reykskemmdir
og að fjarðlægja hættuleg efni er sloppið hafa út
í umhverfið. Slökkviliðið er farið að veita aðstoð
við vatnsleka og er bifreiðin búin tækjum sem
auðvelda þau störf. Rúm er fyrir 3 menn í áhöfn
bifreiðarinnar, tvo reykkafara auk ökumanns.
Hjálparstöðin sett á laggirn-
ar fyrir börn, barnanna vegna
— segirígreinarger " * * 4 ' ' n * *
HJÁLPARSTÖÐ Rauða kross ís-