Morgunblaðið - 18.12.1985, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1985
Sungið í fjáröflunarskyni
Það er óþarfi að grípa andann sem haldnir voru í fjáröflunar- Með þeim Diönu og Julio voru í
á lofti og halda að þetta sé skyni handa íbúum Mexíkóborgar, flokki Burt Reynolds, Martin
nýjasta parið á stjörnuhimninum, þar sem hörmungarnar dundu yfir Sheen og Morgan Fairchild.
því myndin var tekin á tónleikum með jarðskjálftum fyrir nokkru.
Hann var
dýr
sopinn sá
Sopinn getur verið dýr-
keyptur það eitt er víst.
Nýlega var á uppboði hand-
biásin flaska síöan 1787 og
upphaflega sérpöntuð af Thom-
as Jefferson er hann var sendi-
herra í Frakklandi.
Á þessu uppboði var flaskan
síðan slegin á 154.000 dollara
og töldu sérfróðir menn að þar
væri um að ræða 4.000 dollara
á sopann en það ætti að sam-
svara 180.000 íslenskum krón-
um.
Sá sem veitti sér veigarnar
eða öllu heldur flöskuna er
Christopher Forbes þriðji, son-
ur milljónamæringsins Mal-
colm, Forbes útgefanda.
Hann sagði að enginn myndi
njóta drykkjarins, því flaskan
færi beint á safn er tiieinkað
væri Jefferson.
SMÁKÖKUKEPPNIÁ RÁS 2
Skilafrestur rennur út á morgun
Ég vona bara
að lestur sagn-
anna eflist til muna
r
Amorgun rennur út skilafrest-
ur í smákökukeppninni sem
nú stendur yfir á rás 2.
„Við erum búnir að fá miklu
meira inn af smákökum en við
bjuggumst nokkru sinni við,“ sagði
Asgeir Tómasson.
„Það verður mjög spennandi að
leyfa bragðlaukunum að spreyta
sig á kökunum og okkur til faglegr-
ar aðstoðar verur Hilmar B. Jóns-
son, ritstjóri Gestgjafans.
Sá er fer með sigur af hólmi í
keppninni hlýtur hin veglegustu
verðlaun svokallað partýsett frá
Tékk-kristal hljóta þrír efstu og
einnig hlýtur sá efsti úttekt hjá
Jóhannesi Leifssyni gullsmið og
tímaritið Gestgjafinn frá upphafi,
það er að segja öll tölublöð sem
til eru ennþá."
— Hvernig voru upptökin að
keppninni?
„Við vorum eitthvað andlausir
einn föstudagsmorguninn og þetta
hrökk svona hálfpartinn upp úr
okkur í beinni útsendingu. Og nú
hugsum við okkur bara gott til
glóðarinnar að fara að smakka."
— Hefur borið á kökum eða
uppskriftum sem þið hafið ekki
rekist á áður?
„Já, og það furðulegasta við
þetta er hvað kökusendingarnar
— sagði Sverrir Hermannsson
eru ólíkar yfirleitt.
En það hefur borið á ýmsum
sérstökum uppskriftum og til
dæmis vorum við að enda við að
frétta af uppskrift sem er á leið-
inni til okkar. Hún er frá síðustu
öld og er kennd við bæ í Svarfað-
ardal. Það fylgdi sögunni að ekki
mætti einu sinni nota búðarsíróp
i kökurnar heldur þyrfti að laga
það sérstaklega áður.“
— Því hefur verið fleygt að
konurnar ykkar sleppi vel við
baksturinn þessi jólin?
„Já, við höfum einnig heyrt
þetta, en ef það er eitthvað verðum
við bara vandlátari á kökurnar
hjá þeim.“
Það lítur út fyrir að Sverrir
Hermannsson sé að syngja á
bók á meðfylgjandi mynd og lík-
lega er það sönnu nær, að minnsta
kosti trúlegra að hann sé að lof-
syngja framtak þeirra hjá bókaút-
gáfunni Svart á hvítu, er nýlega
gaf út íslendingasögurnar á nú-
tímastafsetningu í tveimur bind-
um.
Myndin er reyndar tekin er for-
svarsmenn fyrrgreindrar útgáfu
afhentu ráðherra eintök af sögun-
um, töldu enda að hann væri vel
að þeim kominn, sem baráttumað-
ur fyrir varðveislu tungunnar og
málvernd hverskonar. Ætla út-
gefendur að hin nýja útgáfa sagn-
anna g eti orðið ríkur þáttur í slíku
starfi.
Blm. spurði Sverri hvað honum
fyndist um framtakið.
„Þetta er mjög merkilegt fram-
tak og ég er furðu lostinn að þetta
skuli komast fyrir í svona aðgengi-
legu bókarformi en samt með góðu
letri.“
—Nú er þetta með nútímastaf-
setningu, þú ert ekkert hræddur
við að unga fólkið hætti þar með
að kunna að lesa í fornmálið?
„Nei, nei, gömlu stafsetningunni
er sleppt og fyrir bragðið verður
þetta handhægara til lesturs.
Orðalagið heldur sér úr gömlu
bókunum og það finnst mér mest
um vert. Ég vona bara að þetta
framtak verði til þess að lestur
sagnanna eflist til muna.“
Ljósm./Emilia
Hér taka þeir sér forskot á sæluna Ásgeir Tómasson, Þorgeir Ástvaldsson, Georg Magnússon og Páll Þorsteinsson.
fclk f
fréttum