Morgunblaðið - 10.04.1986, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.04.1986, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR10. APRÍL1986 ÚTVARP/SJÓNVARP í vargaklóm Hafá menn tekið eftir hinu sérstæða myndmáli þriðju- dagsspennuþáttar sjónvarpsins: Bird of Prey( en sá þáttur nefnist á íslensku: I vargaklóm. Það er sérstakt við myndmál þessa þáttar að þar er gjaman blandað saman grafískum tölvumyndum og lifandi myndum þannig að fyrr en varir er áhorfandinn horfinn inní „hugar- heim“ tölvunnar, ef svo má segja. Hygg ég að hér sé um nýstárleg vinnubrögð að ræða og í fullu samræmi við meginefni þessarar frábæru þáttaraðar en þar er skyggnst inn í undirheimaveröld tölvusvikanna. Ég veit til þess að tölvufræðingar hérlendis hafa farið á sérstök námskeið þar sem mönn- um er kennt að veijast tölvusvikum. Væri ekki ástæða til að ræða þessi mál öll í ríkisfjölmiðlunum, við eigum jú flest mikið undir því að tölvan sé mötuð af samviskusemi? Já eÖa nei? í fjölmiðlarabbi Guðmundar Heiðars Frímannssonar er barst okkur af öldum Ijósvakans frá Rú- vakinu rétt eftir fréttir þriðjudags- kvöldið var, kom fram nokkuð hvassyrt og vel rökstudd gagnrýni á óvönduð vinnubrögð ákveðinna blaðamanna er skrifuðu á sínum tíma um hið svokallaða „Sjallamál" á Akureyri. Það er ekki mitt að gagnrýna blaðamenn en þar sem mér er ætlað að lýna starfsmenn ríkisfjölmiðlanna þá vil ég feta í fótspor Guðmundar Heiðars Frí- mannssonar og lýsi hér með yfír að mér fundust vinnubrögð frétta- manna sjónvarpsins er þeir brugðu sér vestur á Bolungavík í fyrradag að skoða hina frægu lágmarks- launahækkun bæjarstjómar og verkalýðsfélagsins — vægast sagt óvönduð og nánast klaufaleg. Eg vil nú freista þess að rökstyðja þessa fullyrðingu mína. í fyrsta lagi þá vil ég taka fram að mér fannst sjálfsagt að þeir sjónvarpsmenn skryppu vestur að kynna sér hina landsfrægu ákvörðun Bolvíkinga að hækka lágmarkslaunin til móts við framfærsluvísitölu en hitt fannst mér öllu verra þegar einn úr hópi atvinnurekenda á staðnum var tekinn á beinið og hann þráspurður hvort hann ætlaði ekki að hækka lágmarkslaunin í fyrirtækinu í anda ákvörðunar bæjaryfirvalda og verkalýðsforystunnar á staðnum. Það lá við að blessuðum manninum væri stillt upp við vegg og hann neyddur til að játa að hann ætlaði nú ekki að greiða áfram þau lág- markslaun er nýlega var samið um af aðilum vinnumarkaðarins. Svona vinnubrögð eru forkastanleg að mfnu mati eða telja menn siðferði- lega rétt að stilla einum ákveðnum einstaklingi er fæst við atvinnu- rekstur þannig upp við vegg, og það frammi fyrir alþjóð? Þessi ákveðni einstaklingur á ekki sök á því að atvinnurekendur og verka- lýðsforystan samdi nýlega um smánarleg lágmarkslaun. En hann var í rauninni dreginn þama fram fyrir alþjóð sem einskonar málsvari hinna smánarlegu lágmarkslauna sem greidd eru á landi voru. Þeir sem raunverulega bera ábyrgðina á því að lágmarkslaun eru jafn hrika- lega lág og raun ber vitni um hér á voru gjöfula landi eru forystu- menn verkalýðs og atvinnurekenda og þó kannski einkum hagfræðing-. amir er lömdu saman samningana. Fréttamaðurinn hefði átt að spyija þessa valdamiklu menn að því HVERNIG þeir hafí hugsað sér að framfleyta fólki á undir tuttugu þúsund krónum á mánuði. Ég veit að það er ætíð gaman fyrir frétta- menn að skjótast um loftin blá í góðu veðri en þegar komið er niðrá jörðina gildir hið fomkveðna að ekki skal skutla mistilteini. ÓlafurM. Jóhannesson Umstarf sjúkrahúsprests ■H Þátturinn í 30 dagsins önn er á dagskrá rásar eitt eftir hádegi í dag og ber að þessu sinni yfír- 13 Gylfi Jónsson umsjónar- maður þáttarins. skriftina Um kirkju og trú. „Ég mun ræða við sjúkra- húsprestinn á Borgarspít- alanum, séra Sigfínn Þor- leifsson í þessum þætti," sagði stjómandi þáttarins, Gylfí Jónsson, í samtali við Morgunblaðið. „Hann hef- ur nýlega tekið við starfí sem sjúkrahúsprestur á spítalanum. Við ræðum um samband sjúkrahúsprests og sjúklings, og hvemig starf sjúkrahúsprestsins fellur inn í starfsemina á spítalanum. Þá ræði ég einnig við Sigurlín Gunnarsdóttir, hjúkrunarforstjóra á Borg- arspítalanum. Hún lýsir m.a. gildi þess frá sjónar- hóli hjúkrunarfólksins að prestur í fullu starfí sé starfandi við spítalann." í þættinum Listagrip verður m.a. fjallað um tónleika Sinfóníuhljómsveitar íslands. Listagrip — þáttur um listir og menningarmál 17 ■i Listagrip, þátt- 40 ur um listir og menningarmál er á dagskrá rásar eitt í kvöld. „Eg mun að venju fjalla um næstu sinfónfu- Fimmtudagsleikritið: Auglýsingin - eftir Natalínu Ginzburg ■■■■ Leikritið Aug- QfkOO •ýsin&in verður — flutt á rás eitt í kvöld. Auglýsingin er eftir Natalíu Ginzburg og er í þýðingu Alberts Aðal- steinssonar. Leikstjóri er Inga Bjamason. Elena, sem er ungur stúdent í heimspekinámi, er að leita að herbergi þar sem hún getur lesið í ró og næði. Hún fær herbergi hjá Ther- esu, fráskilinni konu, sem hefur lifað í stormasömu hjónabandi. Elena lendir fljótlega í hlutverki sálu- sorgara Theresu, sem enn- þá elskar Lórenzo, fyrrver- andi eiginmann sinn. Þegar Lórenzo kemur óvænt í heimsókn eru örlög Elenu ráðin. Leikendur eru: Anna Kristín Amgrímsdóttir, Anna Kristín Amgríms- dóttir. Sigrún Edda Bjömsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson og Alda Amardóttir. Þorsteinn Gunnarsson Tæknimenn em Ást- valdur Kristinsson og Óskar Ingvarsson. tónleika," sagði Sigrún Bjömsdóttir er hún var innt eftir efni þáttarins. „Krist- ín Pálsdóttir kvikmynda- gagnrýnandi þáttarins mun væntanlega fjalla um eitthvað af þeim kvikmynd um sem verið er að sýna í kvikmyndahúsunum og Halldór B. Runólfsson myndlistargagnrýnandi mun ræða um málverka- sýningar sem opnaðar hafa verið undanfarið. Um ann- að efni þáttarins get ég lítið sagt að svo stöddu þar sem um beina útsendingu er að ræða en væntanlega verða nokkur viðtöl í þættinum, sagði Sigrún. UTVARP Fimmtudagur 10. apríl 7.00 Veðurfregnir. Fréttir Bæn. 7.15 Morgunvaktin 7.20 Morgunteygjur 7.30 Fréttir. Tilkynningar 8.00 Fréttir. Tilkynningar 8.15 Veöurfregnir 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barn- anna: .Katrín og Skvetta" eftir Katarinu Taikon. Einar Bragi les þýðingu sína (10). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir. Tónleikar 10.25 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. 10.40 „Égmanþátíö" Hermann Ragnar Stefáns- son kynnir lög frá liönum árum. 11.10 Morguntónleikar. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veöurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 I dagsins önn - Um kirkju og trú. Umsjón: Gylfi Jónsson. 14.00 Miðdegissagan: „Skáldalif í Reykjavík" eftir Jón Óskar. Höfundur les fyrstu bók: „Fundnir snilling- ar" (8). 14.30 Áfrívaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna (Frá Akureyri.) 15.15 Frá Vesturlandi. Um- sjón: Ásþór Ragnarsson. 15.40 Tilkynningar.Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnlr. 16.20 „Fagurt galaði fuglinn sá." Sigurður Einarsson kynnir. 17.00 Barnaútvarpið Stjórnandi: Kristín Helga- dóttir. 17.40 Listagrip. Þáttur um list- ir og menningarmál. Um- sjón: Sigrún Björnsdóttir. Tónleikar. Tilkynningar. '/8.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.50 Daglegtmál Sigurður G. Tómasson flytur þáttinn. 20.00 Leikrit: „Auglýsingin" eftir Nataliu Ginzburg. Þýð- andi: Albert Aðalsteinsson. Leikstjóri: Inga Bjarnason. Leikendur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson og Alda Arnar- dóttir. (Leikritið verður end- urtekiö nk. laugardagskvöld kl. 20.00). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orö kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Fimmtudagsumræöan. Stjórnandi: Hallgrímur Thor- steinsson. 23.30 Túlkun í tónlist. Rögn- valdur Sigurjónsson sér um þáttinn. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 10. apríl 10.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Ásgeir Tómas- son og Kristján Sigurjóns- son. 12.00 Hlé 14.00 Spjallogspil SJONVARP I 19.15 Ádöfinni. Umsjónarmaöur Karl Sig- tryggsson. 19.25 TuskutígrisdýriöLúkas. (Tygtigeren Lukas). Nýr finnskur barnamyndaflokkur í þrettán þáttum um ævintýri tuskudýrs sem strýkur að heiman. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Finnska sjónvarpið). 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 Unglingarnir i frumskóg- FOSTUDAGUR 11. apríl Umsjónarmaður Jón Gúst- afsson. Stjórn upptöku Gunnlaugur Jónasson. 21.10 Þingsjá. Umsjónarmaöur Helgi E. Helgason. 21.25 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Helgi H. Jónsson. 21.55 Ságamli. (Der Alte). 3. Sér grefur gröf Þýskur sakamála- myndaflokkur i fimmtán þáttum. Aðalhlutverk: Sieg- fried Lowitz. Þýðandi Krist- rún Þóröardóttir. 22.55 Seinni fréttir. 23.00 Kynslóðabiliö. (Taking Off). Bandarísk bíó- mynd frá 1971. Leikstjóri Milos Forman. Aðalhlut- verk: Lynn Carlin, Buck Henry, Linnea Heacock og Tony Harvey. Larry og Lynn eiga eina dóttur barna á gelgjuskeiði. Dóttirin hverf- ur að heiman og foreldrarnir hefja leit að henni, staðráðin i að reyna að brúa kynslóða- bilið. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 00.35 Dagskrárlok. Stjórnandi: Ásta R. Jóhann- esdóttir. 15.00 Ótroönar slóðir Halldór Lárusson og Andri Már Ingólfsson stjórna þætti um kristilega popp- tónlist. 16.00 i gegnum tiðina Þáttur um íslenska dægur- tónlist í umsjá Jóns Ólafs sonar. 17.00 Gullöldin Guðmundur Ingi Kristjáns son kynnir lög frá sjöunda áratugnum. 18.00 Hlé 20.00 Vinsældalisti hlustenda rásartvö Páll Þorsteinsson kynnir tíu vinsælustu lög vikunnar. 21.00 Qestagangur hjá Ragnheiði Daviösdóttur. 22.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests. 23.00 Þrautakóngur Spurningaleikur í umsjá Jón atans Garðarssonar og Gunnlaugs Sigfússonar. 24.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar í þrjár mínútur kl. 11.00, 15.00 16.00og 17.00. SVÆÐISUTVORP RETKJAVÍK 17.03—18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.