Morgunblaðið - 10.04.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAPIÐ, FIMMTUDAGUR10,APRÍL1986
fclk í
fréttum
Sérstæður fjölskyldu
meðlimur
Simpansinn Jimmy er níu ára gamall og „stóribróðir" Jónatans sem
er ijögurra ára. Hann er mikill fjörkálfur og þeir „bræðumir" eiga
það til að setja allt heimilið á annan endann. Jimmy hagar sér þó vel
þegar til þess er ætlast og við matarborðið er hann afar prúður og hand-
leikur hníf og gaffal af stakri snilld.
Sagan segir að Diego Martinez
og kona hans, Jutta, er búa í Vest-
ur-Þýskalandi, hafi keypt simpans-
ann fyrir sjö árum á Kanaríeyjum
og kennt honum „mannasiði". Er
þeim fæddist sonur, ákváðu þau að
láta drenginn og apann leika sér
saman og hefur það gengið vonum
framar.
Jónatan þvær höfuð „stóra-
bróður".
Séra Birgir Snæbjörnsson ásamt systkinunum fimm sem hann
skirði sama daginn, 11. desember 1954. Yst tíl vinstri er séra
Birgir, en síðan koma Thorarensen-systkinin: Margrét, Lára,
Miriam, Leifur og Valdimar. Morgunblaðið/ÓHT
Fermingarbömin ásamt séra Birgi 27. marz 1986. Frá vinstri:
Hildur Mary Thorarensen, Hólmsteinn Eiður Hólmsteinsson,
Jakob Hinriksson (frá Reykjavík), Einar Hafberg (frá Flateyri)
og Jóhann G. Thorarensen. Morgunblaðið/ÓHT
Margföld hátíð fyrir séra Birgi Snæbjörnsson á Akureyri;
Skírir og fermir
heilu ættarhópana
Akureyri.
11. DESEMBER 1954 var eftir-
minnilegur dagur fyrir séra
Birgi Snæbjörasson, sem þá
þjónaði á Æsustöðum í Austur-
Húnavatnssýslu. 27. mars 1986,
skírdagur, verður Birgi eflaust
einnig eftirminnilegur.
Nefndan dag árið 1954 kom
séra Birgir til Akureyrar og skírði
hvorki meira né minna en fimm
systkini í einu, böm Valdimars
Thorarensens og Láru Hallgríms-
dóttur á Gleráreyrum 6. Ekki lét
séra Birgir þar staðar numið held-
ur skírði síðasta bam hjónanna
líka síðar og fermdi flest þeirra
og gifti, enda móðirin Lára og
hann systkinaböm.
Á skírdag í ár, 27. mars, hélt
séra Birgir áfram þessum marg-
földu prestþjónustuverkum í ætt-
inni og fermdi í Akureyrarkirkju
fímm systkinaböm - þar af fjögur
böm systkinanna sem hann skírði
sama daginn 1954. Svo mikla
áherslu lögðu systkinin á að fá
séra Birgi til að ferma fyrir sig,
að eitt fermingarbamanna kom
frá Flateyri og annað frá Reykja-
vík. Viðstaddur ferminguna var
líka annar náinn ættingi í presta-
stétt, séra Ágúst K. Eyjólfsson,
prestur kaþólskra á Akureyri, en
hann er systursonur sr. Birgis
Snæbjömssonar.
Fimmföld fermingarveisla var
síðan haldin í Alþýðuhúsinu á
Akureyri að viðstöddu fjölmenni.
Kaþólski presturinn á Akureyri, séra Ágúst K. Eyjólfsson, sem
sést hér aftast, er náinn ættingi fermingarbaraanna fimm og
systursonur séra Birgis, sem fermdi þau. Og allt er þetta fólk
ættað frá Grýtu í Eyjafirði, bænum þar sem Jón Arason Hólabisk-
up fæddist. Frá vinstri á myndinni eru: Karla Karlsdóttir, Hildur
Mary Thorarensen, séra Ágúst K. Eyjólfsson og Leifur Thoraren-
sen* Morgunblaðiö/ÓHT