Morgunblaðið - 10.04.1986, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 10.04.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR10. APRÍL 1986 45 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guömundsson Spíri Hrútur (20. mars—19. apríl) og Krabbi (21. júní—22. júlí). Hér á eftir ætla ég að fjalla um tvo dæmigerða einstaklinga í þessum merkjum. Ólík merki Þessi merki eru gjörólík og eiga því illa saman. Það er ekki þar með sagt að þau geti ekki kennt hvor öðru margt. Samband milli þeirra er örugglega lærdómsríkt fyrir báða aðila. Til að það gangi vel fyrir sig verða aðrar plánet- ur, Tungl og Rísandi merki að falla saman. Lífog spenna Hrúturinn er lifandi og kraft- mikið merki. Það er úthverft, þ.e. er opið og lætur mikla orku frá sér út i umhverfið. Hrúturinn • er eirðarlaus, hann er óþolin- móður og þarf lff og athafna- semi. Hann verður fljótt leiður þegar viðfangsefnið er of vana- bundið. Hann þarf spennu og hreyfíngu og á erfítt með að sitja kyrr. Hann fær áhuga á ákveðnu viðfangsefni, tekur snögga spretti, missir áhugann og rýkur í annað. í skapi eru Hrútar örir og verða oft upp- stökkir þegar mál ganga þeim ekki í haginn. Þeir eru hins vegar að öllu jöfnu rólegir í daglegu lífí. Hrúturinn er mjög tilfínningaríkur. Róogöryggi Krabbinn er varkár og hlédræg- ur tilfinningamaður. Hann er oft á tíðum frekar feiminn, er næmur á andrúmsloft í umhverfí sínu og því viðkvæmur. Þessa feimni og viðkvæmni reynir hann oft að fela bakvið skel. Hann getur þvi sett upp kalt yfirborð, en ef þú horfír í augu hans, sérð þú hlýju og fljótandi tilfínningasemi. Krabbinn er íhaldssamur og þarf öryggi. Hinn dæmigerði Krabbi hefur yndi af því að dunda í garðinum, vökva blómin, ræða nýjustu mataruppskriftir og elda góðan mat. Hann er því töluvert heimil- isdýr. Böm skipta hann miklu máli og iðulega fómar hann sjálfum sér fyrir heimili og uppeldisstörf. Krabbar eru margir sveiflukenndir og mis- lyndir í skapi. Önnur áhrif Framangreind atriði, öryggi, heimili, uppeldi og böm o.s.ffv., em rík i gmnneðli Krabbans. Ef Tunglið er hins vegar í Tví- bura eða Bogmanni svo dæmi séu nefnd, dregur úr ihalds- seminni og heimilið verður ekki sá mikli miðpunktur sem um var rætt. Tilfínningaríki verður samt sem áður sterkt og þörf fyrir öryggi verður fyrir hendi. Þegar Krabbar helga sig ekki heimili, fara t.d. á þing, kemur uppeldiseðlið samt sem áður fram. Kjósendur og landslýður verða bömin og viðkomandi reynir að verða einhvers konar landsmóðir eða -faðir. Eldvatn Þar sem Hrútur og Krabbi em bæði tilfínningarík merki, ein- kennist samband þeirra af mik- illi tilfínningasemi. Þar sem til- fínningar þeirra em hins vegar ólíkar er hætt við að þeir starfí á slgön við hvom annan. Því getur samband þeirra einkennst af töluverðum deilum. Hrútur- inn ríkur upp og ræðst að Krabbanum. Sá síðamefndi dregur sig í skel og leggst í þunglyndi. Hver útkoman og áhersluatriðin verða nákvæm- lega fer síðan eftir öðmm merkj- um í korti þeirra. Það að Hrútur- inn er eldur og Krabbinn vatn, segir margt. Sambandið er eld- vatn eða hreinn spíri með öllum þeim kostum og göllum sem þvi fylgja. X-9 HCFVff , PREP/P / DYRAGLENS 1 lOQftf A LJUOWM Tn!,.!!i!!!?:h!l!!!!!!!!?!!n!!!lllllllllllllllllllllllllllllllll,,llw,llllllllll“111111 TOMMI OG JENNI — ---5^ Ítir /»L -o ií =s»± SMÁFÓLK ?— ^r-7 UUATCMINé A FOOTBALL 6AME, I SEE... UUMV DOES SOMEONE ALWAYS HAN6 A SI6N OVEK TME KAILIN6 THAT ® SAYS, ''JOMN 3:16"? I ALWAYS TM0U6MT IT HAD 50METMIN6 TO VO UJlTM JOMN MAPPEN.. Jæja, þú ert að horfa á fót- bolta, einmitt... Af hveiju þarf einhver að hengja alltaf skilti á handrið- ið þar sem stendur, „Jóhann- es 3:16“? Þetta er tilvísun í ritningar- grein. Er það? Þá var þetta vitlaust hjá mér ... Ég hélt alltaf að þetta væri eitthvað um Jóa útheija . .. Vestur Norður Austur Suður Á.P. AJ. K.S. V.S. — — Pass 1 tígull Pass 1 spaði Pass 2 tíglar Pass 4 lauf Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar Pass 6tíglar Pass Pass Pass FERDINAND BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson í leik Samvinnuferða og Pol- aris á íslandsmótinu keyrðu bæði N/S pörin í hraða slemmu í þessu spili: Norður ♦ ÁKD1063 ¥D109 ♦ 10764 ♦ - Vestur Austur ♦G98 .. ♦ 742 ♦ 5 VÁ9432 DG2 ♦ 9 ♦ DG10983 ♦ Á765 Suður ♦ 5 ¥ KG87 ♦ ÁK852 ♦ K42 í opna salnum sátu Valur Sigurðsson og Aðalsteinn Jörg- ensen í sveit Samvinnuferða í N/S, en Karl Sigurhjartarson og Ásmundur Pálsson í A/V. Sagnir gengu: Fjögur lauf Aðalsteins sýndu einspil eða eyðu í laufí og slemmuáhuga. Það hefði kannski átt að draga kjarkinn úr Val, þar sem laufkóngurinn er ekki mikils virði, en Valur segir sjáldan nei, þegar honum er boðið upp í dans. Ásmundur spilaði út lauf- drottningu, sem Valur trompaði í blindum og tók tvo efstu í tígli. Ef tígullinn hefði brotnað 2—2 hefði mátt leggja spilið upp. En þegar ljóst var að vestur átti tígulslag, varð einhvem veginn að reyna að koma flórum hjört- um á hendinni heima fyrir katt- amef. Það virtust ekki vera miklar líkur á að það tækist, en Valur spilaði upp á besta mögu- leikann: spilaði spaða á blindan og svínaði tíunni! Hann sá fyrir sér að vestur yrði að eiga §óra spaða til að hægt væri að henda öllum hjörtunum heima niður í spaðann og spilaði upp á það. Það er rökrétt að svína frekar en toppa spaðann, því það eru helmingi meiri líkur á að gosinn sé eitt af Qórum spilum í vestur en annað af tveimur í austur. En þar eð spaðinn lá 3—3 dugði þessi leið ekki til vinnings; Ás- mundur trompaði við fyrsta tækifæri og spilaði hjarta. Á hinu borðinu var spilið dauða- dæmt frá upphafi, því vestur spilaði út hjarta. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á IBM-skákmótinu í Vín í Austurríki í janúar kom þessi staða upp f skák heimamannanna Schlösser, sem hafði hvítt og átti leik, og Pöcksteiner. 23. f5! — Bxe5, 24. fxg6+ — Ke6,25. Df7+ - Kd6,26. Bxe5+ og svartur gafst upp, því eftir 26. - Kxe5, 27 Hel+ - Kd6, 28. Df6n—Kc5 '.nn mát.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.