Morgunblaðið - 15.04.1986, Side 13
asei Jtím .siííunAaijiaiíM cuaAJWfuoftOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 1986...
Nýsmíði og endurskoð-
un laga um skólamál:
Kennarar
vilja eiga
fulltrúa í
nefndunum
FULLTRÚARÁÐ Kennarasam-
bands íslands hefur skorað á
menntamálaráðherra að skipa
fulltrúa kennarasamtakanna í
þær nefndir, sem hann hefur
skipað til að endurskoða lög um
grunnskóla og skólakostnað og
semja frumvarp að lögum um
framhaldsskóla. Alyktun þessa
efnis var samþykkt á fundi
fulltrúaráðs KÍ á laugardaginn
12. apríl.
í ályktuninni segir að telja verði
sjálfsagt, að samtök kennara eigi
fulltrúa í nefndum, sem falið er
slíkt verkefni, þar sem fjalla eigi
um breytingar á grundvallarlög-
gjöf skyldu- og framhaldsnáms í
landinu, svo og um ábyrgð ríkis
og sveitarfélaga á rekstri skóla.
Síðan segir í ályktun fulltrúa-
ráðs Kennarasambands íslands:
„Fulltrúaráðið vísar til þess að
samskipti menntamálaráðherra og
samtaka kennara hafa tekið já-
kvæða stefnu á undanförnum mán-
uðum og til dæmis um það vill
fulltrúaráðið benda á samstarfs-
nefnd menntamálaráðuneytisins
og kennarasamtakanna, sem ráð-
herra hefur nýlega skipað til að
fjalla um skólamál."
Selfoss:
Rúmlega hundr-
að tillögur
um nafn á
félagsheimilið
Selfossi.
BÆJ ARBÚAR á Selfossi brugð-
ust vel við þegar bæjarstjórnin
auglýsti eftir nöfnum á nýja
félagsheimilið sem er í bygg-
ingu.
Tillögurnar sem bárust eru
rúmlega hundrað og ærið verk
fyrir þá nefnd sem bæjarráð skip-
ar til að velja úr þessum tillögum.
Á meðfylgjandi mynd er Stefán
Ómar Jónsson bæjarstjóri með
tillögurnar á borðinu hjá sér.
SigJóns.
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
SIEMENS
SIEMENS uppþvottavél
LADY með Aqua-Stop
vatnsöryggi. Vandvirk og
hljóðlát.
• 5 þvottakerfi.
• Þreföld vörn gegn vatnsleka.
• Óvenjulega hljóðlát og spar-
neytin.
Smith og Norland,
Nóatúni4,
s. 28300.
Collonil
fegrum skóna
&
= m 1 / M - - —
rVM^^skjalavarsla
- Notkun tölvu við skjalavörslu
NOTKUN -Gerö skjalavistunarkerfa
TÖ L V U: - Uppbygging skjalasafns og viöhald Markmið:
Leiðbeinandi: Eirlkur Þ. Einarsson, bókasafns- fræöingur lauk prófi 1 bókasafns- fræði frá Háskóla islands 1981, starfar nú hjá Hafrannsóknar- stofnun. ▲ Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 • Sími: 621066 Oft er skjalavörslu litill sómi sýndur ( fyrirtækjum og stofnunum þrátt fyrir að ný tækni geti breytt miklu I þvl efni. Allir viðurkenna að nauösynlegt sé að hafa gott skipulag á pappírsflóöi nútimans og er því þekking á undirstöðuatriöum skjalavörslu nauðsynleg I nútíma fyrirtækjum. Þetta _ svaö'ir’ námskeið fjallar um feril skjala I fyrir- TW* 09 15 tækjum og stofnunum, grisjun þeirra og °9 ""jknanauswn1 vistun, röðunar- og skráningarkerfi og k\ "'3'a ’ hvernig nota má gagnasafnskerfi tölvu fyrirtækis/stofnunar viö skjalaskráningu.
Þátttakendun Námskeiðiö er ætlað þeim sem annast eða bera ábyrgð á skjalavistun I fyrirtækjum og stofnunum.s. s. riturum, einkariturum, skrifstofustjórum ogldeildarstjórum.
FYRSTA EVROPUKEPPNI
A A
KARLAIKORFU AISLANDI
LAUGARDALSHOLL15.—19. APRIL
FORKEPPNIAÐ 25. EVRÓPUMEISTARAMÓTI KARLA.
IS^ND^JU^j
noregurJ^H
HKortugal
SkotlandTMII
LEIKJANIÐURRÖÐUN:
í kvöld leika kl. 19.30 Skotland:Portúgal
kl. 21.00 ísland:írland
Annað kvöld kl. 19.30 Noregur:írland
kl. 21.00 Skotland:ísland
Fimmtudag Portúgahísland
17. apríl Noregur:Skotland
Föstudag Portúgal:Noregur
18. apríl lrland:Skotland
Laugardag írland:Portúgal
19. apríl ísland:Noregur
VERÐÁ LEIKKVÖLD: FULLORÐNIR KR. 250,- BÖRN KR. 100,-
SÚALD.NG
FLUGLEIDIR