Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
29
Horowitz í
Sovétríkjunum
Moskvu. AP.
Píanósnillingnrinn Vladimir
Horowitz, sem ekki hefur hætt
sér til föðurlands síns, Sovétrílg-
anna, í 61 ár, kom til Moskvu í
gær og lýsti yfir, að hann væri
„sendiherra friðar“. Horowitz er
81 árs að aldri.
Á óundirbúnum fréttamanna-
fundi kvaðst hann kjósa að svara
fyrir sig á rússnesku, og þegar
hann var spurður, vegna hvers hann
sneri nú aftur til Sovétríkjanna,
svaraði hann: „Ég er sendiherra
friðar og þykir mjög vænt um að
vera kominn hingað. Hér eru engir
óvinir, aðeins vinir."
AP/Símamynd
Sundurtætt bifreið Franks DeCicco mafíuforingja á götu i Brooklyn
í New York. DeCicco beið bana er sprengja sprakk undir bifreiðinni
í þann mund sem hann hugðist setjast upp í bUinn. Talið er að
sprengjan hafi verið fjarstýrð.
Mafíuforingi í
New York myrtur
Ncw York, AP. **
FRANK DeCicco, sem var næst-
æðstur í Gambino-glæpafjölskyld-
unni, beið bana er sprengja
sprakk undir bifreið hans í Brook-
lyn-hverfinu í New York á sunnu-
dag.
DeCicco var að ganga að bifreið
sinni ásamt Frank Bellino, sem er
háttsettur í Lucchese-glæpafjöl-
skyldunni, þegar sprengjan sprakk.
Bellino særðist hættulega. Talið er
að hér hafi verið um hefnd fyrir
morðið á Paul Castellano, leiðtoga
Gambino-flölskyldunnar, sem myrt-
ur var á götu í New York skömmu
fyrir jól. Hermt er að DeCicco hafí
lagt blessun sína yfir morðið.
DeCicco kom næstur John Gotti,
sem nú er talinn æðsti maður
Gambino-fjölskyldunnar. Réttarhöld
standa nú yfír í máli Gotti, sem
talinn er hafa m.a. morð á sam-
vizkunni. Gotti barðist við Castellano
um áhrif í Gambino-fjölskyldunni,
en DeCicco var talinn stuðningsmað-
ur Castellano. Sprengjan er sögð
hafa verið mjög öflug. DeCicco var
látinn þegar komið var með hann á
sjúkrahús.
Filippseyjar:
Átti að myrða
Sin kardinála?
Manila. AP.
JAIME L. Sin, kardináli á Filippseyjum, sagði í viðtali, er
birtist á sunnudag, að hann hefði fengið viðvörun frá
bandaríska sendiráðinu í Manila um að Marcos, fyrrum
forseti, hafi viljað hann feigan í byltingunni, sem varð
Marcosi að falli í febrúar.
Talsmaður sendiráðsins kvaðst
aðspurður ekki hafa heyrt um
þetta áður. Sin var ákafur gagn-
rýnandi Marcosar og hefur verið
rómaður fyrir að leika stórt hlut-
verk í að velta Marcosi úr sessi
vegna þess að hann skoraði í út-
varpi á Filippseyinga að styðja
byltinguna, sem tók fjóra daga.
„Ég þakka ykkur samstarfið og
ég veit hvernig ég á að endurgjalda
ykkur greiðann." Þessi orð á
Marcos að hafa sagt við dómarana
í réttarhöldunum yfír meintum
morðingjum Benigno Aquino, eig-
inmanns Corazon, að því er Manuel
Herrera, lögfræðingur, segir.
Hann sótti málið. Herrera setur
ásakanir sínar fra,n í átján blað-
síðna skýrslu og lýsir hann þar
með hvaða ráðum Marcos ætlaði
að hvítþvo Fabian C. Ver, fyrrum
yfirmann hersins, og 24 aðra her-
menn af morðinu. Þeir voru allir
náðaðir.
getur ekki alltaf verið á hátindi
hans“. Hún segir að ilmefna- og
sápuverksmiðjan og fatabirgðimar,
sem fundust í forsetahöllinni eftir
að hjónin flúðu land, hafi að hluta
verið ætlaður í gjafir frá forseta-
frúnni: „Ég þurfti að leggja mig
eftir þremur tugum afmæla og
skíma á dag og ég hafði einfaldlega
ekki tíma til að versla daglega,"
segir Imelda.
Hún sagðist einnig hafa átt þijú
þúsund pör af skóm vegna þess að
hennar hlutverk hafí verið að kynna
framleiðslu lands síns og skór væm
mikilvæg útflutningsvara. í viðtal-
inu sagði Imelda: „Eg fer ekki aftur
til Filippseyja ef það hefur átök og
blóðsúthellingar í fór með sér.
Filippseyingar hafa mátt reyna
nóg.“
Landkynning Imeldu
Imelda Marcos hefur viðurkennt
fyrir breskum blaðamanni að
„heimurinn er hnöttóttur og þú
ERLENT,
Sex leiðtogar senda
bréf til Reagans
og Gorbachevs
Bréf, sem Rajiv Gandhi, for-
sætisráðherra Indlands, Ingvar
Carlsson, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, Andreas Papandreou,
forsætisráðherra Grikklands,
Raul Alfonsín, forseti Argentínu,
Miguel de la Madrid, forseti
Mexíkó, og Julius Nyerere, fyrr-
um forseti Tanzaníu, sendu í sið-
ustu viku til Ronalds Reagan,
forseta Bandaríkjanna, og Mik-
hails Gorbachev, aðalritara
Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna, voru birt í gær.
í bréfunum leggja leiðtogarnir
áherslu á að fundur Reagans og
Gorbachevs verði haldinn hið fyrsta
á grundvelli samkomulags sem gert
var á leiðtogafundinum í Genf.
Jafnframt er áréttuð sú krafa að
Bandaríkjamenn og Sovétmenn geri
hlé á tilraunum með kjarnorkuvopn
þar til Reagan og Gorbachev hittast
áný.
I bréfunum em nefndar 5 megin-
röksemdir fyrir því hvers vegna
banna eigi tilraunir með kjarnorku-
vopn:
I fyrsta lagi mun frekari þróun
kjamorkuvopna auka vígbúnaðar-
kapphlaupið. í öðm lagj ráði Banda-
ríkin og Sovétríkin nú þegar yfir
nægum forða kjarnorkuvopna til
að tortíma mannkyninu mörgum
sinnum. í þriðja lagi muni aukinn
kjarnorkuvígbúnaður stórveldanna
draga úr möguleikum á að koma í
veg fyrir að fleiri ríki eignist kjam-
orkuvopn. í fjórða lagi sé nú hægt
að hafa ömggt eftirlit með fram-
kvæmd á tilraunabanni. í fimmta
lagi sé mikilvægara að veija fjár-
munum til að beijast gegn hungri,
fátækt, sjúkdómum og ólæsi í heim-
inum heldur en að verja þeim til
aukins kjarnorkuvígbúnaðar.
í bréfunum er einnig vikið að
efnisþáttum í svarbréfum sem þjóð-
arleiðtogunum bámst í marz frá
Reagan og Gorbachev.
Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, undirritar nú bréfin
í fyrsta sinn ásamt hinum leið-
togunum fimm en Ingvar Carlsson
hefur tekið sæti Olofs Palme í leið-
togahópnum.
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Nú hefur aldeilis hlaupið á snœrið hjá skrifstofufólki.
Þreytan er horfin og bakverkurinn líka
- þökk sé nýja Dauphin skrifborðsstólnum.
Þeir sem setjast í stól frá Dauphin kynnast
ótrúlegri hönnun. Stólbakið heldur hryggsúlunni
í réttri stöðu, líkaminn verður afslappaður og
vinnan verður auðveldari í stól frá Dauphin.
í Hljómbœ eru Dauphin skrifborðsstólarnir í
fjölbreyttu úrvali, litafjöldinn er mikill og verðið er frá
kr. 6,990.-
Dauphin - stílhreinir stólar, sannkölluð skrifstofuprýði.
DClUpHIN
HUOMBÆR