Morgunblaðið - 15.04.1986, Side 35
35
M0RGUNBLABlÐ,-ÞRIBJUQAj3 VR/l 5. APRÍL198&
Ungir og aldnir virða fyrir
sér eitt verkanna, sem nem-
endur. sýndu í Breiðholtsskóla
á laugardag.
Fylgst með sýningu nemenda
í Breiðholtsskóla.
Þjóðhagsstofnun:
Sala bifreiða dróst
saman um 12% í fyrra
í FRÉTT í blaðinu frá Þjóð-
hagsstofnun sl. sunnudag um
veltuaukningu milli áranna 1984
og 1985 féll niður meðfylgjandi
tafla sem vísað var til. Taflan
sýnir heildarveltu í einstökum
greinum verslunar, þjónustu og
iðnaðar á síðustu tveimur árum
og hlutfallsbreytingar milli
áranna.
Þessar tölur segja þó ekki alla
sögu um heildarumsvif í þessum
greinum, því að þær sýna veltu-
breytingar milli áranna 1984 og
1985 án tillits til almennra verð-
breytinga á sama tíma. Til þess að
meta raunveruleg umsvif þarf að
líta á verðbreytingar. Þar koma
ýmsir mælikvarðar til greina; einn
þeirra er vísitala vöru og þjónustu.
Samkvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar hækkaði þessi vísitala um
32 V2% milli 1984 og 1985.
Sé miðað við þennan mælikvarða,
varð veltubreytingin mun meiri en
sem nam almennum verðbreyting-
um í fyrra, þ.e. veltan jókst að
raungildi. Mest í þjónustugreinun-
um, um 8—10%j en um 5—6% í
smásöluverslun. A hinn bóginn varð
mikill samdráttur í bifreiðasölu, eða
12% og 5% samdráttur í bygginga-
vöruverslun. Veltubreyting í iðnaði
varð svipuð og í smásöluverslun,
5—6%. Til samanburðar má nefna,
að síðustu áætlanir benda til nálægt
5% aukningar neysluútgjalda heim-
ilanna í fyrra.
HAMRABORG 3, SIMI. 42011, KÓPAVOGI
Furuhilluveggur
Tilboðsverð: kr
Heildarvelta samkvæmt söluskattsframtölum 1984—1985
Veltu-
1984 1985 breyting
m.kr. m.kr. %
Smásöluverslun 22.025 30.890 40,2
Almenn heildverslun 12.985 18.190 40,1
Sala bifreiða og varahluta 4.290 5.020 17,1
Byggingarvöruverslun 3.465 4.375 26,2
Ýmsar þjónustugreinar 6.470 9.450 46,2
Vörugreinar iðnaðar 14.150 19.790 39,8
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651000.
Námskeið
Ákveðni-þjálfun og
mannleg samskipti
fyrir þá sem vilja læra á markvissan hátt að vera
ákveðnari í framkomu, bæta samskipti sín við
aðra og auka sjálfstraust sitt.
í hópvinnu mun þátttakandi læra:
• Hveijir veikleikar hans og hverjir styrkleikar
hans eru í mannlegum samskiptum.
• Áhrif sjálfsmats hann á framkomu.
• Ákveðnari tjáningarmáta.
Leiðbeinandi:
Baldvin H. Steindórsson
sálfræðingur
Lengd: Sjö skipti frá kl. 18.00—
20.30.
Námskeið I á þriðjudagskvöldum byijar 22. apríl.
Námskeið II á fimmtudagskvöldum byrjar þó
miðvikudagskvöld 23. apríl.
Upplýsingar og innritun virka daga frá kl. 11—12
og á kvöldin í síma 671509 og í síma 622442.
m
PB|