Morgunblaðið - 15.04.1986, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
46
Hárgreiðslu- og snyrtistofan
Mensý opnuð á
Selfossi.
NÝ hárgreiðslu- og snyrtistofa
var opnuð á Selfossi 29. mars sl.
«^ið Austurvegi 22. Stofan ber
nafnið Mensý og fyrir henni
standa Sólveig Hallgrímsdóttir
hárgreiðslukona og Jónina
Kjartansdóttir snyrtifræðingur.
Á hinni nýju stofu býðst viðskipa-
vinum öll almenn hársnyrting hjá
Sólveigu og síðan ýmsar snyrtimeð-
ferðir hjá Jónínu, andlitsböð, húð-
hreinsun, litun, plokkun, vaxmeð-
ferð, handsnyrting og förðun. Auk
Selfossi
þess Clarins megrunar- og líkams-
nudd.
Þær stöllur hafa að auki til sölu
snyrtivörur frá Clarins, Monteil og
Maxi og hársnyrtivörur frá Joico.
Hin nýja stofa þeirra er mjög snyrti-
lega innréttuð og falla innrétting-
arnar vel að starfseminni. Hug-
myndir að innréttingu áttu þær
sjálfar og önnuðust auk þess upp-
setningu með eiginmönnum sínum.
Stofan er opin virka daga kl.
10-18 og á laugardögum kl. 10-15.
Sig Jóns
Sólveig Hallgrímsdóttir hárgreiðslukona og Jónína Kjartansdóttir
snyrtif ræðingur eigendur Mansýjar.
n_____________Nýtt.........._____.
S JÁVARRÉTTIR SÆLKERANS
i getur þú keypt
tilbúna siávarrétti
sem bragðast ekki
eins og tilbúnir
sjávarréttir
Þeir bragðast eins og heimatilbúnir sjávarréttir.
Þetta eru hinir nýju Sjávarréttir
Sælkerans og þú getur valið um sjáv-
arréttaböku og rækjurúllur en ættir
endilega að reyna báða.
Könnun leiddi nefnilega í ljós að fólki
eins og þér þóttu réttirnir ákaflega
gómsætir. Svo eru þeir ríkir af fjör-
efnum og hafa fituinnihald í algjöru
lágmarki. Sjávarréttir Sælkerans fást í
öllum góðum búðum.
Reyndu hvort að nýju Sjávarréttir
Sælkerans standa ekki fyllilega undir
nafni.
MARSKA
Selfoss:
Samið við verk-
taka um að ljúka
nýbyggingu fjöl-
brautaskólans
Selfossi.
BYGGINGANEFND Pjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi hefur
samið við Sigfús Kristinsson
byggingameisLira um fram-
kvæmdir við að ljúka við nýbygg-
inguna og hefur gefið honum
heimild til að hefjast handa við
verkið strax og honum hentar.
Sigfús Kristinsson bauð kr.
21.091.060,- í verkið, en lokaniður-
staðan eftir samninga var
19.322.110,-. Þessi lækkun stafaði
aðallega af því að verktaki reiknaði
með dýrari útfærslu og vinnu við
múrverk í loftum en áætlað var.
Fjögur tilboð bárust í gler húss-
ins. Lægsta tilboðið var frá Sam-
verki á Hellu, 3.723.000, íspan var
næstlægst með kr. 4.618.000, Esja
hf. bauð 4.861.000 og Glerborg kr.
5.392.000. Kostnaðaráætlun frá
janúarlokum var kr. 3,9 milljónir.
Gengið verður frá tilboðum dagana
14.-18. aprfl.
Sig. Jóns.
Nýr bæklingur:
Ást til
æviloka
ÁST til æviloka, leiðsögn um
hjónabandið, nefnist bæklingur
sem kaþólska kirkjan á íslandi
hefur gefið út. Þetta er hirðis-
bréf írskra biskupa um hjóna-
bandið, stytt útgáfa og hefur
Torfi Ólafsson þýtt bréfið. í
formálsorðum segir að smávægi-
legar breytingar hafi verið gerð-
ar á textanum, þar sem um írsk
sératriði hafi verið að ræða.
í bréfínu er lögð mikil áhersla á
ástina sem gjöf frá Guði er eigi að
sameina karl og konu og tryggja
sambúð þeirra til æviloka, þeim
sjálfum, bömunum og þjóðfélaginu
til blessunar. Hjónabandið sé sakra-
menti og því óijúfanlegt. Kynlífí
utan hjónabands er hafnað og bent
á að öll lausung á því sviði sé
andstæð vilja Guðs.
Bæklingnum lýkur á viðauka um
„hjónaráðstefnur" (Marriage En-
counter) sem eru samtök giftra til
styrktar hjónabandinu og hefur sá
félagsskapur fest rætur hér á landi.
Bæklingurinn er 36 blaðsíður,
prentaður í Prentsmiðju kaþólsku
kirkjunnar hjá St. Franciskussystr-
um, Stykkishólmi.
J—/esiö af
meginþorra
þjóöarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er2 24 80