Morgunblaðið - 15.04.1986, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL1986
63
Guðmundur Þ.
Jónsson endurkjörinn
formaður Landssam-
bands iðnverkafólks:
Harðorð mót-
mæli gegn
innflutningi
frá Asíu
ÞING Landssambands iðnverka-
fólks, sem haldið var í Reykjavík
fyrir helgina, mótmælti harðlega
„þeim geigvænlega innflutningi
á fatnaði og öðrum iðnvamingi
framleiddum f Asíulöndum, þar
sem lág laun og baraaþrælkun
eru forsendur fyrir lágu verði,“
eins og segir í ályktun þingsins.
Síðan segin „Þingið fordæmir
m.a. aðgerðir Sambands íslenskra
samvinnufélaga, sem flytur inn
fatnað frá Austurlöndum fjær til
sölu hérlendis í stað þeirrar fram-
leiðslu, sem Fataverksmiðjan Hekla
á Akureyri framleiddi áður.
Slíkt er niðurlægjandi.
Þingið bendir á, að hin Norður-
löndin hafa sett takmarkanir á
innflutning iðnaðarframleiðslu frá
Asíulöndum og telur þingið eðlilegt,
að íslendingar geri slíkt hið sama
til vemdar íslenskum iðnaði og því
fólki, sem þar starfar."
Guðmundur Þ. Jónsson, formað-
ur Iðju í Reykjavík, var endurkjör-
inn formaður landssambandsins.
Varaformaður var endurkjörin
Kristín Hjálmarsdóttir, formaður
Iðju á Akureyri. Ritari er Hildur
Kjartansdóttir, varaformaður Iðju í
Reykjavík og gjaldkeri Guðlaug
Birgisdóttir á Akranesi.
Aðrir stjómarmenn em Dröfti
Jónsdóttir Egilsstöðum, Jóhannes
Haukur Hauksson Húsavík og Sig-
urbjörg Sveinsdóttir Hafnarfírði.
Varamenn í stjóm em Biynleifur
Hallsson Akurejrri, Lilja Gísladóttir
Hellu og Sæmundur Sverrisson
Reykjavík.
ísafjörður:
Ummæli Ólafs
voru lesin
fyrir hann
ÓLAFUR Ólafsson, fulltrúi bæj-
arfógetans á ísafirði, hefur haft
samband við mig vegna leiðrétt-
ingar i Morgunblaðinu í dag, 12.
apríl, á umsögn bæjarfógetans á
ísafirði, Péturs Hafstein, í Vest-
firska fréttablaðinu um urnmæli
Ólafs við mig í viðtali um af-
greiðslu á máium Grænlendinga
sem til ísafjarðar komu og var
meinuð landganga, samkvæmt
sérstökum reglum.
Gat Ólafur þess, að í téðri leið-
réttingu Morgunblaðsins stæði, að
fyrir hann hefði verið lesin öll frétt-
in sem birtist. Það er rangt. Haft
var samband við hann vegna máls-
ins og þar sem hann óskaði eftir
að ummæli sín væm lesin fyrir sig
áður en þau birtust var að sjálf-
sögðu fallist á það og ummæli hans
öll lesin honum, en að sjálfsögðu
ekki öll fréttin. Til að koma í veg
fyrir misskilning óska ég eftir því
að þetta komi skýrt fram í Morgun-
blaðinu. Þá staðfesti hann jafn-
framt, að allt sem eftir honum var
haft í fréttinni væri í öllu eins og
ummæli hans hefðu verið og að
farið hefði verið að óskum hans um
að draga út úr fréttinni ummæli
sem hann taldi vangaveltur sínar,
en ekki ætlaðar íjölmiðlum til birt-
ingar.
ÍJlfar Ágústsson, fréttaritari
Morgunblaðsins á ísafirði.
Farymann
Smádíselvélar
5.4 hö viö 3000 SN.
8.5 hö við 3000 SN.
Dísel-rafstöövar
3.5 KVA
SöMirögEflgjiyir
dJ^Xm©©(5)[Rl
Vesturgötu 16,
sími 14680.
fyrir
i i steinsteypu.
Léttir ^;N
meðfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi.
Góð varahlutaþjónusta.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Armúia 16 SÍmi38640
rREISTANDI
ENDA FRÁBÆRAR MYNDIR
ERU VÆNTANLEGAR Á MYNDBANDALEIGUR NÆSTA FIMMTUDAG
NAARNER HOME VIDEO
FEDRANNA
rnakáthödaypuya
aBnightbng!
NtGHTSHfFT
Óðal feðranna
Ein besta og jafnframt umdeildasta íslenska myndin til þessa.
í myndinni er sagt frá hokri til sveita, þar sem ofríki kaup-
félagsins fer ekki á milli mála. Hér sjáum við íslenskt þjóðlíf
í hnotskurn með tilheyrandi mannlífslýsingum. Þetta er í einu
orði sagt frábær mynd.
Night Shift
Sprenghlægileg grínmynd með vinsælustu gamanleikurum
vestan hafs í aðalhlutverkum, svo sem: Shelley Long (leikur
Díönu í Staupasteini) Michael Keaton (leikur aðalhlutverkið í
Johnny Dangerously) og Henry Winkler (þekktastur fyrir að
leika the Fonz í Happy Days.) Bráðskemmtileg mynd sem
allirveröa að sjá og ekki neitt múður.
“GREAT
IGOLD
HSWINOLE
Thunder Alley
Stórkostleg mynd sem segirfrá tveimur
vinum sem lifa og hrærast í heimi tónlist-
arinnar. Eftir því sem velgengnin vex,
magnast freistingarnar sem verða á vegi
þeirra. Þetta er 1. flokks mynd sem fær
okkar bestu meðmæli, enda mynd sem
enginn verður svikinn af að sjá.
ISLENSKUR TEXTl
The Great Gold Swindle
[ þessari stórgóðu áströlsku spennu-
mynd fer saman hnyttinn húmor og
spennandi söguþráður sem fær áhorf-
endur til að gleyma stund og stað. Þessi
mynd er kennslubókardæmi um það
hvernig á að framkvæma hinn fullkomna
glæp, næstum því. Mynd sem enginn
má verða af.
Látið þessar myndir ekki fara fram hjá
ykkur, spyrjið eftir þeim á myndbanda-
leigum næstykkur.
ALLAR MEÐ ÍSLENSKUM TCXTA
THE lOUGHEST
MANINTHEWORLD
1HE T0UGHEST MAK \H 7HE W0RLD 7 >,BHUISE 8HUBAKER
SAKSSTTR m RÆKAflú A GUTTMMC »>»• « > «m » ««Ctlit »0X3
8v*ffl( >< BiCR «>«••»» >imn RtnR CWíöt •« J0R
* w>>»»' <'*>:«>, vo CtfrNú k*
»«*,*»*>B«l(MMiwwx< V :WÍ«wftfl«t<r>cr(t»x:«> (UtMk«nn«
The Toughest man in
the world
Bruise Brubaker(MrT.) erfyrrverandi
landgönguliði sem hefur eytt frístundum
sínum í að hjálpa vandræðaunglingum.
Þegar á að loka félagsheimilinu þeirra
vegna peningaskorts eru góð ráð dýr.
Til að komast yfir peninga tekur hann
þátt í keppni um nafnbótina „sterkasti
maður heims". Margir muna eflaust eftir
MrT. ÍRocky III.
Leikið rétta leikinn—takið mynd fráTEFIi
Tefli hf. Einkaréttur á Islandi ffyrir
Wamer Home Video
I TEFLII
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
® 91-68 62 50 / 68 80 80
OPIÐ TIL SJÖ í KVÖLD eiðistorgi n
Vdrumarkaðurinn ht.