Morgunblaðið - 14.12.1986, Qupperneq 1
128 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
283. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
ANC hugði á
blóðuga her-
ferð um jólin
I- segir forseti S-Afríku
Jóhannesarborg; AP.
P.W. BOTHA, forseti Suður-
Afríku, segir herta ritskoðun og
handtökur leiðtoga svertingja
undanfarna daga hafa verið
nauðsynlegar, því upp hafi kom-
ist um áætlanir um blóðuga
herferð gegn hvítum mönnum í
landinu nú um jólin.
Botha sagði í ræðu, er sjónvarpað
var um allt landið, að fundist hefðu
sköl, er sönnuðu að Afríska þjóðar-
ráðið (ANC) hefði haft á pijónunum
árásir og sprengjutilræði í borgar-
hverfum hvítra manna og á
bændabýli í þeirra eign vítt og
breitt um landið. Sagði hann að
ANC hefði á þennan hátt viljað
minnast þess, að 16. desember eru
liðin 25 ár frá fyrstu hryðjuverkum
samtakanna sem bönnuð voru árið
1960. Fréttamenn fengu útdrátt úr
skjölunum er yfirvöld kváðu leyni-
þjónustumenn hafa komist jrfir.
Stjómvöld í Pretoríu sögðu í
gær, að tveir svissneskir borgarar
hefðu verið handteknir vegna gruns
um að starfa fyrir ANC. Svissneska
utanríkisráðuneytið heldur því
fram, að Svisslendingunum hafi
verið rænt frá nágrannaríkinu
Swazilandi á föstudag, af mönnum
sem ferðuðust í bifreið með suður-
afrísku bflnúmeri. Lögreglan i
Swazilandi sagði að þennan dag
hafi verið gerðar fimm árásir á fólk
i landinu, 15 ára drengur hafi látist
og fjórum mönnum verið rænt þ. á
m. Svisslendingunum. Hefur for-
sætisráðherra Swazilands harðlega
mótmælt þessum aðgerðum við
stjómvöld í Suður-Afríku.
Sovétríkin:
Glæpsamleg van-
ræksla olli slysinu
Moskva; Reuter.
GLÆPSAMLEG vanræksla og
það að öryggisreglur voru að
engu hafðar voru ástæður
áreksturs tveggja skipa á Svarta-
hafi í ágúst sl. er 400 manns
fórust, að því er nefnd á vegum
ráðuneytis þess er fer með mál-
Flugslysið í Berlín:
Talið að
70 manns
hafi farist
jefni kaupskipaflotans sovéska
jsegir.
Farþegaskipið, Nakhimov aðmír-
áll, er flutti 1.234 farþega, sökk
ieftir árekstur við flutningaskipið
ÍPyotr Vasev og voru skipstjórar
jbeggja skipanna handteknir þegar
^ftir slysið. Nefndin fer mjög hörð-
Kim orðum um framferði skipstjór
janna, Vadim Markov og Viktor
rTkachenko, og segir þá hafa brotið
á grófan hátt allar sjóréttarreglur
og að engu haft viðvaranir um að
ef þeir breyttu ekki stefnu skipanna
myndu þau rekast á. Fjöldi manna
hefur verið rekinn úr starfi og úr
kommúnistaflokknum vegna þessa
máls.
Morgunblaðið/Ól. K. Magnússon
Jólaljós á Austurvelli
KVEIKT verður á jólatrénu á Austurvelli í dag
kl. hálf fjögur. Tréð er gjöf Oslóarbúa til Reyk-
víkinga. Ljósmyndari Morgunblaðsins tók þessa
sérstöku mynd af trénu með breytilinsu. Við
fyrstu sýn virðist sem myndin sé af flugeldi á
kvöldhimninum, en þessi áhrif eru dregin fram
með því að breyta brennivídd linsunnar yfir
ákveðið svið án þess að hagga ljósopinu.
Austur-Berlín, Reuter.
TALIÐ er að um sjötíu manns
hafi farist er sovésk farþegavél
hrapaði í aðflugi að Schönefeld-
flugvellinum í Austur-Berlín á
föstudag.
Yfirvöld í Austur-Berlín sögðu
að björgunarmenn hefðu náð tólf
manns á lífi úr flaki vélarinnar.
Sjötíu og þrír farþegar voru um
borð og átta manna áhöfn. Vélin
var á leiðinni frá borginni Minsk í
Sovétríkjunum þegar hún hrapaði.
Ekki er vitað hvað olli slysinu.
Austur-þýska stjórnin hefur fyrir-
skipað rannsókn á málinu.
Slökkviliðsmenn og lið lækna var
enn að störfum við flak vélarinnar
þegar síðast fréttist. Slysstaðurinn
var girtur af til þess að vestrænir
blaðamenn kæmu ekki of nærri.
Olíuráðherrar bjart-
sýnir á samkomuiag
Genf, Reuter, AP.
ÞRETTÁN olluráðherrar sitja
ráðstefnu samtaka olíuútflutn-
ingsríkja (OPEC), sem nú er
haldin i Genf í Sviss og kváðust
nokkrir þeirra í gær bjartsýnir á
að samþykkt yrði ákvörðun um
að draga úr olíuframleiðslu aðild-
arríkjanna.
Þriðji dagur fundahalda hófst í
gær og var búist við að endi yrði
bundinn á viðræðurnar. Ef sam-
komulag tekst um að draga úr
olíuframleiðslu má gera ráð fyrir
að olíufatið hækki um fjóra Banda-
ríkjadollara eða svo.
Olíuráðherrar flestra aðildarríkja
OPEC höfðu samþykkt að draga úr
olíuframleiðslu um fimm prósent frá
og með áramótum áður en viðræður
hófust í gær. Fawzi Shakshuki, olíu-
málaráðherra Líbýu, sagði við
blaðamenn fyrir fundinn að enginn
hefði hreift mótbárum við að draga
úr olíuframleiðslu og bjóst hann við
því að samkomulag yrði undirritað
á fundinum í gær. Hann tók þó fram
að enn þyrfti að ákveða hversu mik-
ið yrði dregið úr framleiðslu.
Rilwanu Lukman, forseti OPEC
og olíumálaráðherra Nígeríu, sagði
að ráðherramir hefðu ráðfært sig
við stjómir sínar um tillöguna eftir
fundinn á föstudag. Hann sagði að
jafnvel yrði fólgið í samkomulaginu
að dregið yrði úr olíuframleiðslu um
tíu prósent.