Morgunblaðið - 14.12.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
3
Fimm veitinga-
staðir til sölu og
þrír nýir opna
FIMM veitingastaðir og einn
skemmtistaður í Reykjavík eru
nú auglýstir til sölu eða leigu. Á
sama tíma er verið að opna tvo
nýja veitingastaði á höfuðborgar-
svæðinu og verið að endurnýja
einn, sem eigendaskipti hafa orð-
ið á að hluta.
Samkvæmt fasteignaauglýsing-
um eru nú til sölu: „einn arðsamasti
veitingastaður landsins"; „einn vin-
sælasti skyndibitastaður borgarinn-
ar“; „mjög þekktur skemmtistaður
á frábærum stað“; „matsölustaður
sem sérhæfir sig í jurtafæði"; „veit-
ingastaður, vel innréttaður, m. góðri
aðstöðu og tækjum. Vínveitinga-
leyfi. V. ca 3 millj." Morgunblaðinu
er einnig kunnugt um að minnsta
kosti einn veitingastað enn sem er
til sölu en hefur ekki verið auglýstur.
Nýr veitingastaður, „Við Ijörn-
ina“, var opnaður í síðustu viku í
Templarasundi í Reykjavík og í und-
irbúningi er opnun nýs veitingastað-
ar við Strandgötu í Hafnarfirði sem
ber nafnið „Fjaran". Þessir staðir
hafa báðir fengið vínveitingaleyfi.
Þá hafa orðið eigendaskipti að hluta
á Kokk-húsinu við Lækjargötu í
Reykjavík. Búið er að breyta nafni
staðarins í „Bakki" og umsókn um
.vínveitingaleyfí er nú hjá félags-
málaráði.
Morgunblaðið ræddi við Ernu
Hauksdóttur framkvæmdastjóra
Sambands veitinga- og gistihúsa og
sagði hún það ekkert óvenjulegt þó
veitingahús sæjust á söluskrám. Það
væri alltaf nokkuð um eigendaskipti
(en lítið um að þau væru lögð niður.
„En það er augljóst að veitingahúsa-
bylgjan er alveg í hámarki núna og
markaðurinn er orðinn vel mettaður,
en hvemig kúrfan verður áfram skal
ég ekki segja til um,“ sagði Ema.
í frumvarpi um virðisaukaskatt,
sem fjármálaráðherra lagði fram á
Alþingi í vikunni, er gert ráð fyrir
að skatturinn leggist á gistingu og
matvæli. Hingað til hefur gisting,
og veitingahúsarekstur að hluta,
verið undanþegin söluskatti og Ema
var spurð, hvaða áhrif þetta myndi
hafa á verð veitinga- og gistihúsa.
Ema sagði að ekki væri enn búið
að ganga frá þessum málum og
ekki séð fyrir endann á þeim, en það
væri ljóst að með frumvarpinu
óbreyttu yrði ekki komist hjá hækk-
unum á þessari þjónustu.
Leikarar úr Stellur í Orlofi, Edda Björgvinsdóttir, Kjartan
Bjargmundsson og Eggert Þorleifsson
Stella í orlofi:
Rúmlega
50 þúsund
áhorfendur
UM 50.000 manns hafa séð
kvikmyndina Stella í orlofi, en
hún var frumsýnd 18. október
s.l.
I Reykjavík hafa um 42.000
manns séð Stellu, og rúmlega
8.000 úti á landi, en myndin hef-
ur verið sýnd á 11 stöðum. Um
þessar mundir er verið að sýna
hana í litla salnum í Austurbæj-
arbíói, en ráðgert er að sýna hana
aftur í stóra salnum um jólin. Þá
verður Stella einnig jólamynd á
Húsavík og Akranesi.
A dögunum fór Þórhildur Þor-
leifsdóttir með Stellu á kvenna-
myndahátíð í Svíþjóð. Var henni
einkar vel tekið og þótti hún ein
af þremur bestu myndunum á
þeirri hátíð.
Mikið álag á helstu ferðamannastöðum
ÁLAG á ýmsa af fjölsóttustu
ferðamannastaði landsins er orð-
ið það mikið að þvi er líkt við
örtröð. Umráðamenn þessara
staða hafa áhyggjur af því að
stóraukinn ferðamannastraumur
eyðileggi gróður á þessum stöðum
og hafa verið að íhuga aðgerðir.
Meðal annars hefur komið til tals
að loka Dimmuborgum og setja
„ferðamannaítölu" á Þórsmörk til
að takmarka aðgang ferðamanna
þangað.
Stjórn Landvemdar hefur lýst
áhyggjum sínum vegna þessa og
telur áríðandi að brugðist verði
skjótt við og nauðsynlegar úrbætur
gerðar á ferðamannastöðunum,
meðal annars með gerð göngustíga,
bættri hreinlætisaðstöðu, auknu eft-
irliti, gerð tjaldsvæða, aukinni
fræðslu um umhverfísmál og endur-
bótum á fjallvegum, til að koma í
veg fyrir landspjöll. Telur Landvemd
að veija þurfí verulegu fjármagni til
þessarra framkvæmda og lýsir
áhyggjum sínum af niðurskurði á
lögboðnu framlagi' til Ferðamála-
ráðs, samkvæmt fjárlagafrumvarpi
næsta árs.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins em Dimmuborgir taldar
versta dæmið um ferðamannastaði
þar sem gróður liggur undir
skemmdum. Þangað koma tugir
þúsunda ferðamanna á ári hveiju
og allt að vaðast út. Dimmuborgir
em í landgræðslugirðingu og er
mikill átroðningur að eyðileggja það
starf sem Landgræðslan hefur unnið
þar. Hefur það komið til tals innan
Landgræðslunnar að loka Dimmu-
borgum ef ekki fást peningar til
nayðsynlegustu úrbóta.
Talið er að á annað hundrað þús-
und ferðamenn komi að Gullfossi á
ári hverju. Þar vantar aiveg hrein-
lætisaðstöðu. Einnig er þar sögð
mikil slysahætta en slys gæti haft
slæm áhrif á ferðir fólks þangað.
Þórsmörk á að heita friðuð fyrir
sauðíjárbeit þar sem hún er í skóg-
ræktargirðingu. Girðingar em þó
ekki Qárheldar þannig að mikið beit-
arálag er á svæðinu. Ört vaxandi
straumur ferðamanna er í Þórsmörk
er talið að svæðið þoli ekki þetta
mikla álag.
í ár var um 15 milljónum kr. veitt
til Ferðamálaráðs. Þar af fór innan
við ‘/2 milljón kr. til að byggja upp
og lagfæra aðstöðu á ferðamanna-
stöðum.
Bankarnir yfirfæra mánaöarlega lífeyri til
Costa del Sol fyrir þá sem þess óska.
Sérstök ferðakynning
19. dosémber kl. 15—17.
Heitt á könnunni.
Gestir okkar verða: Þórir S. Guðbergsson og
dr. med. Friðrik Einarsson.
Feróaskrifstofan
UTSÝN
AUSTURSTRÆTI 17, S: 26611
6000 M
d mm
hhbsiwSSS
sia..................
Beint leiguflug 4. janúar.
ÞÆGINDI • ORYGGI • HLYINDI • TRAUST FERÐAÞJONUSTA
Gefðu sjálfum þér góða jólagjöf
Nú fara í hönd dimmustu og erfiöustu mánuöir ársins. Eiga
þá margiróhægt um vik vegna kulda og hálku. Á þessum
sama tíma er20—24°hitiá Costa delSol. Útsýn býöuruppá
beint leiguflug Isólina þann 4. janúar. Verö frá 35.900 kr.
S
Islenskur hjúkrunarfræðingur • Sérkennsla í spænsku •
Spilakvöld • Bingó • Skemmtiklúbbar • Kynnisferðir
• Leiðsögn við innkaup • íslenskarfréttirsendar
reglulega •
Hvert er álit sórf róðra
manna á ferð sem þessari.
\ Dr. med. Friðrik Einarsson:
Ég fagna því að ferðaskrifstofan Útsýn hf.
býður upp á langtíma dvöl á Costa del Sol.
Þetta styttir langan vetur fyrir eldra fólk og
gerir því kleift að stunda útiveru, sem er því
nauðsynleg. Ég fullyröi að á Costa del Sol
geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.