Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 42

Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 Skáldsaga sem vakið hefur feikna athygli víða um lönd, orðið metsölubók og hlotið ein- staklega lofsamlega dóma. Sagan gerist við upphaf siðmenningar okkar fyrir 30.000 árum og höfundi tekst frábærlega að opna lesendum framandi heim forfeðra okkar með nútímalegu skáldverki af bestu gerð. Þjóð bjarnarins mikla er áhrifamikil og dulúðug sagaogum leið ólík flestum skáld- sögum sem komið hafa út á íslensku hin síðari ár. Fríða Á. Sigurðardóttir rithöfundur þýddi bókina af hreinni snilld. Þjóð bjarnarins mikla VJVU ijHoofcU Bæjarstjórn Selfoss: Eftirlit hert með bókhaldi veitustofnana Selfossi. BÆJARSTJORN Selfoss sam- þykkti á fundi sínum 10. desemb- er að skipta um endurskoðanda hjá veitustofnunum bæjarins. Þetta er liður í því að fá fram virkara eftirlit með bókhaldi veitnanna. Endurskoðunarskrif- stofa Sigurðar Guðmundssonar i Reykjavík hefur annast endur- skoðun hjá veitunum en það verk verður nú í höndum Endurskoð- unar hf. sem hefur skrifstofu á Selfossi. Minnihluti bæjarstjórn- ar gagnrýndi þessa ráðstöfun harðlega. Mál þetta tengist því að reikning- ar veitustofnunar voru afgreiddir í maí íðastliðnum með þeim fyrirvara að athugasemdir bæði frá löggiltum endurskoanda og frá kjörnum end- urskoðendum yrðu skýrðar. Ekki hafa enn komið fram skýringar á þessum athugasemdum. í reikningum veitustofnana er jákvæður biðreikningur upp á um tvær milljónir króna sem myndaðist 1984 þegar gerðar voru breytingar á bókhaldi veitnanna og það tölvu- vætt. Á bæjarstjórnarfundinum 10. desember var það gagnrýnt að ekki hefðu komið skýringar frá endur- skoðanda á þessum biðreikningi og hvernig ætti að afgreiða hann. Vinna við þennan biðreikning var komin vel á veg þegar endurskoð- anda var tilkynnt það í októbermán- uði að fyrirhugað væri að skipta um endurskoðanda hjá veitunum og fela það verkefni öðrum. Síðan þá hefur vinna við þetta legið niðri en til þess að bókhald veitnanna komist í lag þurfa skýringar á þess- um reikningi að liggja fyrir. Karl Björnsson bæjarstjóri sagði að ástæður þess að skipt væri um endurskoðanda væru fyrst og fremst þær að menn vildu fá fram betra og virkara eftirlit með bók- haldi veitnanna. Þessi mál hefðu verið mikið rædd í veitustjórn og bæjarráði og menn teldu að Endur- skoðun hf I Selfossi gæti sinnt starfinu betur meðal annars vegna nálægðar við skrifstofur veitnanna. Hann sagði það þýðingarmikið að endurskoðandi sinnti eftirlitsskyldu sinni, einkum þegar breytingar væru gerðar á bókhaldi. Fyrrver- andi endurskoðanda væri ætlað að finna skýringar á biðreikningnum og skila honum til hinna nýju endur- skoðenda. Endurskoðun hf vinnur að því að setja fjárhagsbókhald veitnanna upp í tölvu og mun eftir þessa breyt- ingu annast gerð ársreiknings og endurskoðun reikninganna. Endur- skoðunarskrifstofa Sigurðar Guðmundssonar mun áfram annast endurskoðun reikninga bæjarsjóðs. Minnihluti bæjarstjómar gagn- rýndi þessa ráðstöfun harðlega í bókun, einkum hvemig staðið væri að breytingunni. Töldu fulltrúar hans að rétt hefði verið að kalla Sigurð Guðmundsson endurskoð- anda áfund og ræða þessi mál með honum fyrst, í stað þess að skipta um. Sigurður Guðmundsson endur- skoðandi sagðist ekki telja þessa breytingu vera neitt vantraust á sig heldur væri í þessu tilfelli um að ræða breytta verkaskipan. Veitur hefðu alltaf verið sjálfstæðar ein- ingar og hér væri það undirstrikað. Sig. Jóns. Bæjarsjóð- ur verður af þremur milljónum Ef ríkið skerðir á framlög í jöfnunar- sjóð sveitarfélaga Selfossi. BÆJARSJÓÐUR Selfoss verður af um þremur milljónum króna, verði að veruleika áformuð skerðing ríkisins á framlagi til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eins og gert er ráð fyrir I fjárlaga- frumvarpi fyrir 1987. Þetta kom fram í máli Þorvarðar Hjaltasonar bæjarfulltrúa á bæjar- stjórnarfundi 10. desember síðast- liðinn. Selfoss hefur vegna lágra meðaltekna íbúanna fengið auka- framlag úr jöfnunarsjóðnum á hvetju ári. Að óbreyttu hefði sú upphæð numið um 8 milljónum en verður við skerðinguna um 5 millj- ónir. Á bæjarstjórnarfundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt sam- hljóða: „Bæjarstjórn Selfoss mótmælir harðlega þeim áformum sem koma fram í fjárlagafrumvarpi fyrir 1987 um að skerða skuli lögboðin fram- lög ríkisins í jöfnunarsjóð sveitarfé- laganna Hér er um öfugþróun að ræða þar sem verkefni sveitarfélaganna aukast sífellt og þau þurfa því á öllum sínum tekjustofnum að halda óskertum. Þessi áform eru ekki síður alvarleg vegna þess að ríkis- valdið hefur á undanförnum árum ýtt verkefnum yfir á sveitarfélögin án þess að tekjustofnar fylgdu. Þar má til dæmis nefna byggingar framhaldsskóla. Auk þess kemur þetta sér mjög illa fyrir þau sveitar- félög þar sem meðaltekjur gjald- enda eru lágar, en þau njóta aukaframlags úr jöfnunarsjóði. Bæjarstjórn Selfoss skorar því á hið háa Alþingi að afnema umrædd skerðingarákvæði fjárlagafrum- varpsins." Sig. Jóns.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.