Morgunblaðið - 14.12.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
43
Framfærslu-
vísitala hækk-
ar um 0,91%
VÍSITALA framfærslukostnaðar
hækkaði um 0,91% í nóvember-
mánuði, samkvæmt útreikningi
kauplagfsnefndar á verðlagi í
byrjun desember samanborið við
verðlag í byrjun nóvember á
þessu ári. Vísitalan reyndist vera
180,85 stig.
Af þessari 0,91% hækkun stafa
um 0,5% af hækkun á verði mat-
vöru, 0,1% af hækkun á verði
fatnaðar, 0,1% af hækkun hús-
næðis og um 0,2% af hækkun á
verði ýmissa vöru- og þjónustuliða.
Síðastliðna 12 mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 13,5%. Hækkun vísi-
tölunnar um 0,91% á einum mánuði
svarartil 11,5% árshækkunar. Und-
anfama þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 3,4% og jafngildir sú
hækkun 14,4% verðbólgu á heilu
ári.
Guðfræði-
stofnun af-
hent minn-
ingargjöf
ÞANN 4. desember sl. færði Gísli
Sigurbjörnsson, forstjóri EUi- og
hjúkrunarheimilisins Grundar,
Guðfræðistofnun Háskóla ís-
lands að gjöf eitt hundrað
þúsund krónur frá Stofnenda-
sjóði Grundar.
Gjöfin er gefin til minningar um
frú Sigríði Eiríksdóttur, hjúkrunar-
konu, f. 16.6. 1894, d. 23.3. 1986,
og Sigurð Sigurðsson, landlækni,
f. 2.5. 1903, d. 5.4. 1986.
í gjafabréfí segir: „Er þessara
forystumanna íslenskra líknar- og
heilbrigðismála minnst með virð-
ingu og þakklæti.
Elli- og hjúkrunarheimilið Gmnd
á þeim margt að þakka sem og
íslenska þjóðin."
Starfssjóður Guðfræðistofnunar
var stofnaður árið 1982 með rausn-
arlegri gjöf frá stjórn Elli- og
hjúkrunarheimilisins Grundar, en á
því ári átti Gmnd 60 ára starfsaf-
mæli. Síðan hafa Guðfræðistofnun
borist fleiri veglegar minningar- og
heiðursgjafir frá sama aðila og em
gefanda færðar hugheilar þakkir
og nöfn þeirra blessuð, sem minnst
er og heiðruð em.
Háskóli íslands annast varðveislu
starfssjóðs Guðfræðistofnunar.
Gjörð hefur verið vönduð gjafabók,
þar sem minningar- og heiðurs-
gjafir em skráðar.
(Fréttatilkynning.)
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
HERRAFÖT
SEM TEKIÐ ER EFTIR
Wmmmm
I—IMBM—