Morgunblaðið - 14.12.1986, Page 49

Morgunblaðið - 14.12.1986, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 49 Teikning frá árinu 1779. Werther heilsar Lottu þegar hann fyrst biður Albert um skammbyssuna að láni. manni sem myrðir elskuna sína þegar hann sér fram á að hann fær ekki notið hennar; sálarlýsingar Werthers fylgja ástríðunum, í upp- hafí er allt bakað í sól og hann les Hómer en undir það síðasta hefur Werther snúið sér að Ossían (Werther er sér mjög meðvitaður um þetta, því hann minnist á það í bréfí frá 4. sept.); Werther er hugsandi maður og það er fátt sem ekki snertir hann, t.a.m. hlutverk Guðs, markmið mannsins á jörðinni (sbr. bréf dagsett 17. maí), blekking lífsins, hvað er ást og hvers virði er lífíð án ástar eða kærleika; rök- ræður um réttmæti sjálfsvígs en sú umræða klýfur söguna í tvennum skilningi: Werther og Albert rök- ræða þetta efni og sést þá vel hversu ógurlega jarðbundinn sá síðamefndi er og löghlýðinn smá- borgari, ennfremur býr þessi orðræða lesandann undir hin há- dramatísku endalok; og síðan tæpir Werther einnig á þjóðfélagsum- ræðu, andstæðunum háaðli og almúga (sbr. bréf dagsett 24. des. 1772): er mannskepnan að ein- hverju leyti betri, eða á hún meiri kröftir til gæða lífsins, eftir því sem hún á fleiri krónur? Og þannig mætti halda áfram í minnsta kosti fímm mínútur enn. Að standast tím- ans tönn! Ég vitna hér að framan til rússn- eska rithöfundarins Lermontov ekki bara út í loftið. Goethe og Lerm- ontov skrifuðu í sínum fyrstu bókum um sama efnið, unga mann- inn sem fínnst honum ofaukið í þessum heimi. Hér er um að ræða manninn sem skiptir sér lítt af ytra ’ pijáli lífsins, hann er eiginlega and- stæða uppans í nútíma þjóðfélagi, kýs að komast út fyrir þann líkama sem honum hefur verið skammtað- ur og helst sameinast öllurti mönnum, heiminum eins og hann leggur sig. Þessi einstaklingur telur sig óþarfan, hjá Pitsjorín hinum rússneska er það miskunnarleysið, eigingimin, sem gildir, en hjá Werther hinum þýska er ástin í fyrirrúmi og þegar hennar löngun- um er fullnægt, þá er einskis hér á jörðu eftir að slæðast. A sínum yngri árum var Goethe sannfærður um að innihald skáld- verks væri meira virði en form þess; hann lætur þessa getið oftar en einu sinni í endurminningum sínum, og rökstyður þá skoðun með því að hinn almenni lesandi hrífíst ætíð meir af efninu, sögunni heldur en því hvemig saman er sögð. Það er forvitnilegt að hafa þetta í huga þegar skoðuð er bygging sögunnar, sem er óvenju skýr og markviss miðað við það að skáldsagan hafði ekki fundið sinn rétta farveg á æskudögum Goethes. Goethe segir ! ævisögu sinni að hann hafi kært sig kollóttan um viðbrögð gagnrýnenda. Ifyrir hon- um var sagan ftillklámð og ekkert meira fyrir hana hægt að gera, vildi að fólk tæki við henni í þessu ásig- komulagi og mætti hafa allar skoðanir á henni. En vinir hans og kunningjar söfnuðu saman greinum þeim sem um bókina vom skrifaðar og höfðu mikið gaman af. Goethe virðist ekki hafa tekið þessa fmm- raun sína á skáldsagnasviðinu ýkja alvarlega, hann gantaðist með kunningjum sínum að verkinu og tók meira að segja þátt í skrípaút- gáfum af því. Goethe sneri sér sfðar að leikrits- forminu og glímdi alla ævi við harmsöguna um Fást. Þegar hann, þá orðinn áttræður, var að leggja síðustu hönd á síðari hlutann um Fást, er bankað ofurlaust á her- bergisdyr hans og í dyrunum stendur gömul kona. Hún segist heita Charlotte Kestner, hafí reynd- ar á yngri ámm heitið Charlotte Buff, en það sé aukaatriði, því hún hafí bara átt leið hér fram hjá, en fannst tilvalið að heilsa upp á stór- skáldið Johann Wolfang von Goethe. Þýski rithöfundurinn Thomas Mann sá ónýtta möguleika í þessari stórmerku heimsókn og skrifaði um hana mikla sögu sem hann nefndi „Lotta í Weimar". HJÓ Á myndinni eru talið frá vinstri: Úlfar Þórðarson formaður félagsins, sendiherrafrúin Ursula Hafer- kamp, dr. Hans Hermann Haferkamp sendiherra, frú Unnur Jónsdóttir og dr. Geir Tómasson stjómar- maður. Áhugamaður um íslensk málefni og menningu SENDIHERRA V-Þýskalands Hans Hermann Haferkamp og kona hans frú Ursula voru ný- lega gestir Alexanders von Humboltfélagsins hér á landi. Stutt er síðan sendiherrann kom til starfa hér, en hann hefur þegar markað spor, sem framtaksamur áhugamaður um íslensk málefni og menningu. í ræðu sem Haferkamp sendiherra hélt við þetta tækifæri kom fram að hann hefur þegar beitt sér fyrir auknu samstarfí íslenskra og þýskra vísindamanna. (Fréttatilkynning) Ny bók eftir Astrid Lindgren Drekinn meo rauðu augun Einn morgun í apríl koma bömin út í svínastíu og sjá að stóra gyltan hefur eignast tíu grísi og einn grænan dreka með stór, reiðileg augu. Hann bítur mömmu sína svo að hún neitar að gefa honum og krakkamir verða að fara á hverjum morgni út í stíuna með mat handa honum, kertisstubba. snæri, korktappa og annað slíkt sem drekum þykir gott. Ævintýri eftir hinn ástsæla höfund Astrid Lindgren með óviðjafnanlegum myndum llon Wikland. Verð: 590 - Mál og menning i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.