Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
Stykkishólmur:
Aðalfundur Hótel-
félaffsins Þórs hf.
(SfvlrlriahAlmi
AÐALFUNDUR Hótelfélagsins
Þórs hf. í Stykkishólmi var hald-
inn í hótelinu laugardaginn 6.
des. sl., en félagið rekur Hótei
Stykkishólm. Fyrir fundinum
lágu endurskoðaðir reikningar
fyrir árið 1985. Fundarstjóri var
kjörinn Sturla Böðvarsson, en
Arni Helgason ritaði fundargrð.
Hótelstjóri, Sigurður Skúli Bárðar-
son, hóf umræður og skýrði rekstur
félagsins á sl. ári. Það kom fram í
hans yfirliti að aukning hefir orðið
46% í hótelrekstrinum bæði í nýt-
ingu herbergja og eins sölu veitinga
og þjónustu. Miklar breytingar hafa
verið gerðar innanhúss bæði á veit-
ingasölum og eins herbergjum,
þeim hefír fjölgað og nýting sala
orðið meiri. Þá hefir hótelið rekið
félagsheimilið en það er viðbygging
við hótelið og hefir það þjónað hótel-
inu vel og eins hótelið því. Rekstrar-
halli varð á rekstri félagsheimilisins
enda nýting þess ekki sem skyldi.
Dansleikir eru svo dýrir orðnir að
lítið er upp úr þeim að hafa, en
aftur á móti hefír orðið aukning á
ráðstefnum og það gefur góðar
framtíðarvonir. Með þróun undan-
farinna ára í huga og eins að staða
hótelsins er góð, urðu miklar um-
ræður um stækkun hótelsins og
hafði áður verið athugað um kostn-
að við frekari framkvæmdir og lágu
fyrir ýmsar athuganir sem segja
að með núgildandi verðlagi muni
stækkun t.d. með því að byggja
eina hæð ofan á þá byggingu sem
fyrir er, og um leið koma fyrir lyftu
í hótelinu, eigi kostnaður við slíka
framkvæmd að verða ekki mikið
yfir 20 millj. en þá er miðað við
fullnaðarfrágang herbergja og alls.
Símakerfi er nú komið í nokkur
herbergi og heldur áfram að bæta
við það og fullkomna, eru það mik-
il þægþndi.
Þótt margt sé búið að lagfæra á
hótelinu er ýmislegt enn eftir sem
verður látið sitja í fyrirrúmi, en
kostnaður við það er ekki mikill.
Allur búnaður hótelsins hefir verið
yfirfarinn og er nú eins og best
verður á kosið. Lítill fundarsalur
hefir verið innréttaður á neðstu hæð
og bætir þetta mjög fyrir smærri
fundi, því við þá hefir orðið að nota
salarkynni félagsheimilisins sem
eru þá oft og tíðum of stór. En
aðstaða, bæði fyrir fundi og ráð-
stefnur, batnar með hveiju ári sem
líður. Bókanir fyrir næsta ár eru
þegar byijaðar. Tekjur árið 1985
voru um 20 milljónir en rekstrar-
kostnaður rúm 21 millj. en í því eru
afskriftir um 3 milljónir. Sturla
Böðvarsson ræddi um framtíðar-
rekstur og fyrirhugaða stækkun og
hvemig hægt væri að koma því í
kring bæði með tækni og fjáröflun.
Það er ekki langt í að rekstur hót-
els-
ins eigi 10 ára afmæli, sagði Sturla,
og þá væri gaman að geta látið
þessar hugmyndir verða að veru-
leika.
Notaðu hugmyndaflugið
og lífgaðu upp
með litsteinum!
til jólaskreytínga
Litsteinarnir eru gegnumlitaðir
skrautsteinar, t.d. til blóma- og
Ijósaskreytinga. Þó mó einnig nota
sem botnsteina í fiskabúr, ó
pottablóm o.fl. Margir litir.
Fóst m.a. í eftirtöldum verslunum:
Hagkaup
Miklagarði og
Blómavali
Góða skemmtun!
VIKUrl/örur
i
Gissur Tryggvason, formaður
félagsstjórnar, gerði grein fyrir
stjórnarfundum og ýmsum hagræð-
ingum í rekstri, og sagði þróunina
vera á réttum kvarða. I mikið hefði
verið ráðist á þessu ári í búnaði,
breytingum o.fl., reksturinn væri í
sókn, en bráðabirgðauppgjör liggur
ekki fyrir. Var hótelstjóra, stjórn
og starfsliði þakkað fyrir góðan
rekstur, útsjónarsemi og árvekni.
Vel var mætt á þessum fundi og
voru allir á sama máli um að gera
veg hótelsins og um leið hróður
Stykkishólms sem mestan.
Það kom fram á fundinum að
skuldir í byijun árs voru um 7 millj-
ónir alls, skammtímaskuldir 3 millj.
og langtímaskuldir 4 millj. Mats-
verð hótelbyggingarinnar er um 80
millj. og aðrar eignir rúmar 3 millj.
Undanfarin ár hafa afskriftir numið
yfir 20 millj. svo staðan er góð.
Hótelstjórinn hefir fundið upp á
mörgum nýjungum til að auka að-
sókn að hótelinu og aðrir aðilar
hafa komið upp ýmsu til að auka
ferðamennastrauminn og má þar
telja Eyjaferðir, hraðbát sem fór
fjölda ferðir um eyjasund í sumar
og hafði yfír 20 sæti fyrir farþega.
Þá má nefna að olíufélögin hafa
sett hér upp á góðum stað ágæta
og fullkomna bensínafgreiðslu og
Stykkishólmshreppur hefir látið út-
búa fyrirtaks tjaldstæði á hentugum
stað með sérstaklega góðri hrein-
lætisaðstöðu.
Ellert Kristinsson oddviti var
bjartsýnn og benti á að því fyrr sem
ráðist væri í að stækka hótelið og
halda áfam að auka þjónustu, því
betra. Hann fór þakkarorðum um
alla þá sem að því stgnda að vinna
hótelinu vel, bæði stjóm þess, hótel-
stjóra og starfslið.
í sama streng tók Einar Karls-
son, sem benti á ýmislegt sem betur
mætti fara. Fleiri tóku til máls og
var mikill einhugur ríkjandi á fund-
inum. I stjórn voru kjömir Gissur
Tryggvason, frkvst., Sturla Böðv-
arsson, sveitarstjóri, og Ólafur St.
Valdimarsson. Til vara Finnur Jóns-
son og María Bæringsdóttir.
Að seinustu var stjóm félagsins
falið að kanna nánar viðbætur hót-
elsins og stækkun og kanna kostnað
við þær og eins taka til athugunar
aukningu hlutaflár til að styrkja
enn betur rekstur hótelsins.
Árni
Snæfálkinn
eftir Craig Thomas
BÓKAÚTGÁFAN Breiðablik
hefur sent frá sér bókina Snæ-
fálkinn eftir Craig Thomas.
Þetta er í fyrsta sinn sem bók
eftir Craig Thomas kemur út á
íslensku.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir: „Breska leyniþjónustan hefur
gögn undir höndum sem benda til
þess að eitthvað óeðlilegt sé á seyði
við landamæri Finnlands og Sovét-
ríkjanna. KGB hefur fengið
vísbendingu um samsæri. Hvort
tveggja virðist tengjast leiðtoga-
fundinum þar sem undirrita á
Helskinisáttmálann. Vofir þriðja
heimsstyijöldin yfir? Leyniþjón-
ustur þriggja landa gera örvænting-
arfullar tilraunir til að komast til
botns í málinu — en tíminn er að
hlaupa frá þeim.“