Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
59
Morgunblaðið/Jón Sig.
Gömlu gripahúsin hverfa fyrir
kröfum nýs tíma og er hlutverki
þeirra að mestu lokið i þéttbýl-
inu.
Blönduós:
GÖMUL GRIPAHÚS HVERFA
Blönduósi.
ÞESSA dagana hverfa gömlu
gripahúsin á Blönduósi hvert af
öðru. Hafa verið brennd fjárhús
sem lengst af hafa verið kennd
við Pétur Þorláksson i Vísi.
Ekki alls fyrir löngu voru einnig
brennd fjárhús sem gengu undir
nafninu Einarsnes. Það má segja
að þetta sé tímanna tákn og segi
ákveðna sögu í þróun þéttbýlisstaða
úti á landi. Það er ekki svo ýkja
langt síðan að þéttbýlisbúar voru
með sína eigin búvöruframleiðslu
að hluta til eða alfarið m.a. til að
mæta tímabundnu atvinnuleysi og
skaffa í búið. Nú er svo komið að
nær öll búvöruframleiðsla er úr sög-
unni á Blönduósi en það eru ennþá
nokkrir einstaklingar sem hafa
örfáar kindur sér til yndis og heilsu-
bótar. Vegur hestamennskunnar fer
hinsvegar vaxandi og hafa nú flest-
ir hestamenn á Blönduósi aðstöðu
fyrir hross sín í skipulögðu hest-
húsahverfi skammt sunnan við
bæinn.
Jón Sig.
hið sanna
# %,jó la b ragðZ
«gr
có
£
■x.
3
Waldorfsalat er víða orðinn ómiss-
andi hluti af hátíðamatnum, enda
bragðast það einstaklega vel með
dökku fuglakjöti eins og rjúpum eða
gœs, fyrir utan hreindýra- og svína-
steikina
rœmur, helmingið vínberin og fjat
lœgið steinana, skerið eplin í litla ten-
inga og saxið valhnetukjamana.
Blandið þessu nú saman við sýrða
rjómann í þeirri röð sem það er talið
upp.
Við mœlum með þessari uppskrift
úr tilraunaeldhúsinu okkar:
Waldorfsalat.
2 dósir sýrður rjómi — Í4 tsk salt —
70 g sellerí — 300 g grœn vínber —
2 grœn epli — 50 g valhnetukjamar.
Bragðbœtið sýrða rjómann með
saltinu. Skerið selleríið í litlar þunnar
Fyrir utan jólabragðið hefur sýrði
rjóminn aðra kosti, pví að i hverri
matskeið em aðeins 28 hitaeiningar!
Lítið atvinnuleyndarmál í lokin.
Setjið sýrðan rjóma í súpuna (ekki í
tœrar súpur) og sósuna, rétt áður en
þið berið þœr á borð. Það er málið.
Gleðilega hátíð.
Elliðaárnar eru náttúruperla Reykjavíkur. Höfundurinn
kemur fróöleik og leiðbeiningum fjögurra ættliða um veiði og
veiðistaði í ánum til skila í skýru og skemmtilegu máli. í bók-
inni eru á annað hundrað litmyndir, m.a. af öllum veiði-
stöðum, ásamt mörgum svarthvítum myndum og kort sem
sýnir kennileiti og veiðistaði við árnar. Þetta er bók veiði-
mannsins og náttúruunnandans.
vil, vvl ekki
Vil, vil ekkifjallar um menntaskólastúlkuna Elísu sem stendur
á tímamótum í lífi sínu. Hún er í föstu sambandi við ungan
mann á uppleið sem getur tryggt henni áhyggju- og áreynslu-
lausa framtíð. En með henni bærast margvíslegar tilfinningar.
Er þetta það sem hún vill? Lætur hún aðra stjórna sér? Eða
tekur hún óvissu og ævintýri fram yfir öryggið? Skemmtileg og
spennandi bók um vaknandi vilja og sjálfsvitund.
■M
kpi m*
Menn með mönnum gerist í demantalandinu Suður-Afríku.
Draumur Zougas Ballantyne um „Norðrið“ hefst í þrældómi
demantanámanna í Kimberley og lýkur á frjósömum gras-
lendum Matabelelands - en ekki fyrr en heil þjóð stoltra
stríðsmanna hefur nánast verið þurrkuð út. Metsöluhöfund-
urinn, Wilbur Smith, gjörþekkir náttúru landsins og sögu
þjóðanna sem það byggja. Heillandi saga, mannleg, þrungin
spennu, ævintýrum og rómantík.
í blíðu og stríðu
I blíðu og stríðu er önnur bókin í þriggja bóka flokki um
Stulkuna á bláa hjólinu eftir metsöluhöfundinn Régine
Deforges. Við fylgjumst áfram með söguhetjunni Leu Delmas —
í síðari heimsstyrjöldinni, ástum hennar, sorgum og baráttu
i hinu hernumda Frakklandi. Atburðarásin er hröð og spenn-
andi og örlög ráðast.
Boðið er upp á 1. og 2. bindi sögunnar saman í pakka á
afsláttarverði.
ISAFOLD