Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
ÞINGBRBF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Tillaga á kosningaþingi:
„Kjördæmaslag-
ur um varaflugvöll“
Akureyri? - Egilsstaðir? - Húsavík?
„Allar áætlunarflugvelar til
Keflavíkurflugvallar verða að
hafa annann flugvöll nothæfan
innan seilingar, þegar þær koma
til Keflavíkur. Skiptir þá engu
máli, hvort að þar sé logn og
heiðskírt og því spáð næstu daga
eða ekki. Vélin þarf alltaf að
hafa eldsneyti, ekki aðeins til
ákvörðunarstaðar, heldur einnig
til síns varavallar".
Það er Rúnar Guðbjartsson,
flugstjóri, sem þanning komst að
orði í blaðagrein um nauðsyn
varaflugvallar fyrir alþjóðaflug-
völlinn við Keflavík, er þjónaði
millilandaflugi á Norður-Atlants-
hafi.
Hann segir jafnframt að því
meir sem flugvélar verði að bera
af eldsneyti vegna hugsanlegs
flugs til varaflugvallar, t.d. í
Prestwick í Skotlandi, þeim mun
minna sé um „arðbæra hleðslu“,
vegna takmarkaðs burðarþols
vélarinnar.
Þessi reyndi flugstjóri telur
það ekki aðeins mikilvægt örygg-
isatriði að hafa alþjóðlegan
varaflugvöll hér á landi, heldur
spari slíkur völlur, væri hann til-
tækur, íslenzku millilandaflugi
fjallháar fjárhæðir, sem skipti
hundruðum og jafnvel þúsundum
milljóna króna.
Fjórir staðir ræddir
Það eru fyrst og fremst fjórir
flugvellir sem komið hafa til tals
þegar fjallað er um alþjóðlegan
varaflugvöll hér á landi: Sauðár-
króksflugvöllur, Akureyrarflugvöll-
ur, Egilsstaðaflugvöllur og
Aðaldalsflugvöllur við Husavík.
Nefnd, sem fór ofan í sauma á
máli þessu, komst að þeirri niður-
stöðu, að Sauðárkrókur væri álit-
legasti staðurinn af þessum §órum.
Fyrir skemmstu báru allir þing-
menn Norðurlandskjördæmis eystra
fram tillögu til þingsályktunar á
Alþingi, þessefnis, að ríkisstjórnin
láti fara fram, svo fljótt sem kostur
er, rækilega úttekt á möguleikum
þess að Akureyrarflugvöllur þjóni
sem varaflugvöllur fyrir millilanda-
flug.
Steingrímur J. Sigfússon (Abl.-
Ne.) sagði m.a. í framsögu:
Eyþjóð á faraldsfæti
Utanferðir Islendingar eru langleið-
ina í eitt hundrað þúsund á ári.
Hingaðkomur erlendra ferðamanna
verða dijúgum fleiri í ár: áætlaðar
um eitt hundrað og tíu þúsund.
Ótalinn er allur sá grúi fólks sem
Sauðárkrókur?
flýgur um íslenzkt flugstjórnar-
svæði á ferðum milli hins gamla
og nýja heims, Evrópu og Ameríku:
millilendir á Keflavíkurflugvelli eða
stikar yfir Atlantsála í einu flug-
skrefi. Varaflugvöllur á Islandi fyrir
millilandaflug varðar allt þetta fólk.
- Myndin sýnir einn af íslenzku
flugfákunum á Orlyflugvelli við
París.
„Hér er, herra forseti, sem sagt
lagt til að kanna þann kost, sem
ég held að allir hljóti að geta orðið
sammála um að væri nærtækastur
og langhagkvæmastur fyrir okkur
Islendinga, ef hann reynist sæmi-
lega vel fær, og það teljum við
flutningsmenn, sem eru auk mín
allir þingmenn Norðurlandskjör-
dæmis eystra, sem sæti áttu á
Alþingi í upphafi þessarar viku, sjö
að tölu...“.
Sauðárkrókur - Egils-
staðir
Pálmi Jónsson (S.-Nv.) hélt hins-
vegar fram Sauðárkróksflugvelli,
sem beztum kosti til alþjóðlegs
varaflugvallar. Hann sagði m.a.
orðrétt:
„Þær nefndir, sem um þetta mál
hafa fjallað, hafa komist að þeirri
niðurstöðu að Sauðárkrókur væri
álitlegasti staðurinn fyrir varaflug-
völl af þessum fjórum og þar með
álitlegasti staðurinn á íslandi - og
flugráð hefur eindregið lagt til að
slík ákvörðun verði endanlega tek-
in. Hæstvirtur samgönguráðherra
hefur lýst í raun samþykki sínu við
þessa stefnu, en hann hefur ekki
endanlega staðfest þær tillögur sem
fyrir liggja um þetta efni, vegna
þess að enn skortir nokkuð á að
tiltekin formsatriði séu Ieyst varð-
andi lengingu flugbrautar á
Sauðárkróki og aðrar þær aðgerðir
sem nauðsynlegar eru fyrir vara-
flugvöll..."
Jón Kristjánsson (F.-Al.) taldi
óhjákvæmilegt að uppbygging Eg-
ilsstaðaflugvallar verði næsta
stórverkefnið í gerð flugmannvirkja
hér á landi. Hann sagði flugvöllinn
samgöngumiðstöð Austurlands.
Um hann hafi farið 65.000 far-
þegar á liðnu ári. Orðrétt sagði Jón:
„Ég minni á að Egilsstaðaflug-
völlur er völlur þaðan sem stundað
er millilandaflug til Evrópu, héðan
frá Reykjavík í gegnum Egilsstaði
til Færeyja, þannig að frá þeim
velli væri hægt að stunda flug til
Evrópu í vaxandi mæli, ef hann
væri vel upp byggður. Það væri
hægt að stunda það flug frá Aust-
urlandi...að sjálfsögu kemur Egils-
staðaflugvöllur fyllilga til greina
sem slíkur ef út í það er farið.
Hann kemur næstur Sauðárkróki
hvað veðurfar snertir“.
UMSÓKNIR
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á 94
tveggja til fjögurra herbergja íbúðum, sem eru í byggingu í Grafarvogi í
Reykjavík.
Ennfremur er óskað eftir umsóknum um u.þ.b. 100 eldri íbúðir sem koma til
endursölu síðari hluta árs 1987 og fyrri hluta árs 1988. Um ráðstöfun, verð
og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög nr. 60/1984.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu VB Suðurlandsbraut 30, frá
mánudeginum 15. desember 1986, og verða þar einnig veittar allar almennar
upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga—föstudaga kl. 9—12 og 13—16.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 16. janúar 1987.
Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík.
ÍSLENSKA OPERAN
Jólagjafakort
okkarfást
áeftirtöldum
stöðum:
Islenskuóperunni,
bókabúð Lárusar
Blöndal,
Skólavörðustíg 2,
ístóni,
Freyjugötu8,
Fálkanum,
Suðurlandsbraut8.
Bókabúð Sígfúsar
Eymundssonar,
Austurstræti 18.
Jólagjafakort
okkarfást
áeftirtöldum
stöðum:
íslenskuóperunni,
bókabúðLárusar
Blöndal,
Skólavörðustig2,
ístóni,
Freyjugötu8,
Fálkanum,
Suðurlandsbraut8.
Bókabúð Sigfúsar
Eymundssonar,
Austurstræti 18.