Morgunblaðið - 14.12.1986, Qupperneq 77
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
Imperiet
Imperiet- Synd
Þunga línan
PLÖTUDÓMUR
Árni Matthíasson
Margir hérlendir tónlist-
aráhugamenn kannast
án efa við sænsku hljóm-
sveitina Imperiet, ef ekki
fyrir annað en það að
Christian Falk, sá hinn
sami og lagði gjörva
hönd á margt á plötunni
hans Bubba, Frelsi til
sölu, er einmitt hluti af
•mperiet. Þeir félagar
hafa reyndar spilað hér á
landi í tvígang, í fyrra
sinnið á Norrokk hátíð-
■nni. Þar sást glöggt að
Þeir eru engir meðaljón-
ar í tónlistinni, bæði hvað
varðar tónlistarsköpun
09 kraftmikinn flutning.
Plata þeirra Blaa Him-
*et Blues vakti töluverða
athygli hér á íslandi sem
og annars staðar á Norð-
orlöndum og menn biðu
®ftir næstu plötu með
nokkurri eftirvæntingu.
Nú er platan komin og
hefnist Synd. Skemmst
er frá því að segja að Synd
stendur á engan hátt Blaa
Himlet Blues að baki, frek-
ar má að hún sé betri.
Þeir félagar í Imperiet
hafa ákveðnar skoðanir á
heimsmálum og þeir
koma þeim vel á framfæri
í einkar sterkum textum.
Tónlistin er skemmtilega
blandað kröftugt rokk án
allra stæla. Þeir eru
ófeimnir við að nota hljóð-
færi sem vart er hægt að
telja hefðbundin, s.s.
harmonikku, og gefur það
tónlistinni mjög skemmti-
legan svip. Erfitt er að
segja til um hvað ég tel
vera bestu lög þar eð það
er alltaf að breytast,
breytist í raun í hvert
skipti sem ég set plötuna
á fóninn. Þó get ég sagt
að við seinustu hlustun
líkað mér best við Tenn-
soldat och eldvakt,
D-DDD (Dum-Dum-
Dollar-Djungel) og Bibel.
Ekki þá síst vegna text-
anna. Gott rokk í þyngri
kantinum sem sífellt vinn-
ur á.
Timbuk 3 - Greetings
from Timbuk 3
Marktækt popp
Flötudómur
Árni Matthíasson
Timbuk 3 er gott dæmi
um það að Bandaríkja-
•benn geta sent frá
annað en niðursuðurokk.
Tónlistin sem þau eru að
flytja er góð blanda af
Þeirri tónlist sem finnst
■nnan marka Banda-
ukjanna, popp, country
°9.soul.
I Timbuk 3 eru hjónin
Barbara K. og Pat Mac-
ðonald. Það er Pat sem
r*ðurferðinni, hann sem-
Ur flest lög og texta og
•eikur þar að auki á flest
hljóðfæri. Textar hans eru
ansi góðir, allt frá háðskri
kírnni, líkt og íThe Futures
So Bright I Gotta Wear
Shades, að þjóðfélags-
ádeilu í Just Another
Movie. Þessu til viðbótar
á hann það til að bregða
fynr sig væmnum ástar-
óðum á við I Need Vou.
Hljóðfæraleikur er allur
fil fyrirmyndar, þó sérdeil-
'? munnhörpuleikurinn.
Ógetið er þriðja meðlims
Timbuk 3, þess er sér um
trommur og bassa, en
það er JVC Ghettoblaster
segulband, sem Pat hefur
matað á réttum rythma
og tilheyrandi. Góð hug-
mynd sem nýtist vel.
Ekki verður skilið svo
við umsögn um framlag
þeirra hjóna án þess að
geta um Barböru sem
syngur afbragðs vel, og
leikur einnig vel á hljóð-
færi þau er henni er
úthlutað.
Það er gott til þess að
vita að í Bandaríkjunum
eru hlutir að gerast sem
mark er á takandi hvað
poppið varðar og að ekki
er allt sett að veði til að
reyna að slá í gegn.
Vinsæl
Joey Tempest,
söngvari
Europe, sem nú
geysist um listana.
Rás 2
1. ( 1) ( 1) Serbinn Bubbi Morthens
2. ( 4) ( 6) ThroughThe Barricades
Spandau Ballet
3. ( 2) ( 2) The Final Countdown Europe
4. (17) (—) Jólalladaga EiríkurHauksson
5. (11) (—) Þóröur Sverrir Stormsker
6. ( 3) ( 3) Don'tGiveUp
Peter Gabriel/Kate Bush
7. ( 6) ( 9) ForAmerica Red Box
8. ( 5) (20) War Bruce Springsteen
9. (14) (—) Augunmin Bubbi
10. (10) (17) You Keep Me Hanging On Kim Wilde
11. ( 7) ( 4) In The Army Now Status Quo
12. (—) (—) Last Christmas Wham!
13. ( 8) ( 5) AlwaysTheSun Stranglers
14. (—) (—) OpenYourHeart Madonna
15. ( 9) ( 8) ToBeALover Billyldon
16. (15) (14) IflSayYes FiveStar
17. (25) (—) Er nauðsynlegt að skjóta þá? Bubbi
18. (30) (—) French Kissin’InThe USA
Debbie Harry
19. (12) (11) Walk Like An Egyptian Bangles
20. (—) (—) DoThey Know It's Christmas?
Band Aid
Bylgjan
1. ( D
2. ( 2)
3. ( 4)
4. (10)
5. ( 3
6. ( 6)
7. ( 5)
8. ( 7)
(21)
Serbinn
The Final Countdown
Jólalladaga
Augun mín
Showing Out
Bubbi Morthens
Europe
Eiríkur Hauksson
Bubbi Morthens
Mel & Kim
10. (18)
11. ( 8)
12. (13)
13. (11)
14. ( 9)
15. (12)
16. (14)
17. (-)
18. (22)
19. (31)
20. (25)
Through The Barricades Spandau Ballet
You Keep Me Hangin'On KimWilde
In The Army Now Status Quo
War Bruce Springsteen
Livin’ On A Prayer Bon Jovi
Coming Home(Jeanny Part 2) Falco
Þórður Sverrir Stormsker
IflSayYes FiveStar
l've Been Losing You A-Ha
HipTo Be Square
Huey Lewis & The News
Suburbia Pet Shop Boys
CryWolf A-ha
TwoPeople TinaTurner
For America Red Box
Each Time You Break My Heart
Nik Kamen
Sverrir Stormsker fer upp báða lista í
félagi við Þórð heitinn.
Það fer ekki mikið fyrir leysidiskunum,
en hljómgæðin eru engu iík.
eysidiskasala
eykst enn
SALA á svokölluðum
leysidiskum (Compact
Discs) hefur farið fram
úr öllum spám eina ferð-
ina enn. Telja menn lítil
takmörk á þenslu þessa
geira tóniistariðnaðar-
ins.
Sífellt fleiri hljómsveitir
hafa nú gefið allt efni sitt
frá upphafi út á leysidisk-
um og má nefna nöfn eins
og Rolling Stones, Queen,
Duran2, Police, Dire
Straits og Bruce
Springsteen. Er talið að
þessi útgáfa muni ýta
undir sölu á geislaspilur-
um, sem aftur eykur eftir-
spurn.
í Bretlandi einu er talið
að árssalan muni nema
sjö milljónum diska áður
en árið er allt. Salan í
Bandaríkjunum og Japan
er þó töluvert örari og er
markaðseftirspurn í
Bandaríkjunum engan
veginn fullnægt.
Sumum hefur fundist
leysidiskarnir í dýrasta
lagi, en þeir kosta ekki
undir 1.000 krónum hing-
að komnir. Fróðir segja
oss að þrátt fyrir að fjölda-
framleiðsla verði meiri og
eftirspurn fullnægt, sé
ekki líklegt að þeir lækki
mjög í verði, þar sem að
efniskostnaður verði alltaf
hár.
Að undanförnu hefur
þó borið á útgáfu á ódýr-
ari diskum með saman-
safni vinsælla laga. Er það
l//'rg/n-útgáfan, sem hefur
staðið fyrir því. Er að vona
að íslendingar fái að njóta
þess.
Sinfóníuhljómsveit íslands
- í taktviðtímann
PLÖTUDÓMUR
Árni Matthíasson
Minnugur þess hve
Lundúnasinfóníunni
tókst vel upp þegar
hún lék inn á plötu
popplög í sínfóníuút-
setningu, hefur ein-
hverjum dottið það
snjallræði í hug að láta
Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leika sama ieik,
í þeim tilgangi (von-
andi) að afla sinfóní-
unnar fjár.
Ekki ætla ég hér að
fjölyrða um skoðun mína
á því þegar verið er að
útsetja misgóð, en alltaf
léttvæg, popplög fyrir
fullskipaðar sinfóníu-
hljómsveitir. Hitt er svo
annað mál að mér er til
efs að hægt sé að gera
það verr en gert er á
þessari plötu. Bæði er
það að úsetningar eru
alltaf flatar og leiðinleg-
ar og síðan er það þessi
hræðilegi trommu
diskótaktur sem er
gegnumgangandi í gegn
um flest öll lögin. (Hver
er hann eiginlega þessi
Ed Welch? Hann er
a.m.k ekki í takt við
tímann.) Einna helst
minnir þetta glundur
helst á þriðja flokks
þýska danstónlist.
Þrátt fyrir það hve
misheppnuð þessi plata
er að mínu mati, þá efa
ég það ekki að hún eigi
eftir að seljast vel, vona
það reyndar, sinfóníunn-
ar vegna, en mér er
spurn hvort tilgangurinn
helgi ávallt meðalið.