Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 85
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
85
,• Páll Ólafsson og Ágúst Freyr Ingason. Morgunbiaðið/vip
Skutum vitlaust
á markmanninn
KR-INGARNIR Ágúst Freyr Inga-
son og Páll Ólafsson voru ekki
ánœgðir eftir leikinn vift Stjörn-
tina f 1. deild 2. flokks. „Sóknin
hjá okkur klikkaði og þá sárstak-
Isga f sfftari hólfleik“, sögðu þeir.
„Varamarkmaður þeirra kom
inná um miðjan seinni hálfleik og
við skutum vitlaust á hann. Við
þetta þættist að sendingarnar hjá
iOkkur voru ónákvæmar og við vor-
um seinir aftur í vörninna þannig
að þeir skoruðu mikið úr hraðaupp-
hlaupum“, bættu þeir við.
Þeir félagarnir voru sammála
>um að mikill munur væri á að spila
í 1. deild því liöin þar væru mun
sterkari en þau sem þeir hefðu
spilað við í undankeppninni. „Þessi
deild er mjög sterk því margir leik-
mennirnir eru farnir að leika í
meistaraflokki hjá sínum félögum",
sögðu þeir. Báðir æfa þeir Ágúst
og Páll með meistaraflokki KR eins
og reyndar allir leikmenn 2. flokks.
Þó að þeir væru að sjálfsögðu
ánægðir með að fá tækifæri til að
spreyta sig á meistaraflokksæfing-
um fannst þeim það koma dálítið
niður á samæfingu 2. flokksins.
„Þetta stendur nú til bóta því við
fáum væntanlega fleiri æfingar
saman á næstunni", sögðu þeir.
Þrátt fyrir að þeir félagarnir
væru ánægðir með að deildarfyrir-
komulagi hefði verið komið á í yngri
flokkunum höfðu þeir samt sem
áður ýmislegt við tímasetningu og
fyrirkomulag 1. umferðarinnar að
athuga. „Flestir strákar í þessum
flokki eru á kafi í prófum núna
þannig að umferðin hefði ekki geta
komið á verri tíma. Síðan er alltof
mikið að spila 3 leiki á dag eins
og sum liðin þurfa að gera. Þessir
leikir taka ekki síður á en leikir í
meistaraflokki", sögðu þeir.
Þrátt fyrir að hafa tapað fyrsta
leiknum í 1. umferð 1. deildar tókst
Agústi, Páli og félögum þeirra í
KR aö halda sæti sínu í 1. deild.
Þeir hafa því væntanlega getað
snúið sér að próflestrinum að full-
um krafti að lokinni keppninni.
HANDLEIÐSLA
Dyngja bókaútgáfa, Borgartúni 23 105 Reykjavík, s 91-36638, 91-28177 og 91-30913.
BARNAJOL 1986
Þjálfar einbeit-
ingu og hittni
„BILLIARD" er fþrótt sem all-
margir unglingar leggja stund á
og þeirra á meðal eru þau Ólafur
Guðmundsson, Þorkell Danfel
Eirfksson, Steingrfmur Pálsson,
Haukur Óskarsson, Kjartan Long,
Reynir S. Ólafsson, Jón Erlends-
son og Bjarnþóra Marfa Páls-
dóttir sem umsjónarmaður
Unglingasíðunnar hitti f Keilu-
salnum í Öskjuhlfð þar sem þau
spila oft „billiard".
Fyrst voru krakkarnir beðnir um
að útskýra í grófum dráttum hvað
f íþróttinni fælist. „Það er f raun
; hægt að velja um þrjár leikað-
ferðir í „billiard" sem kallast
„snoker“, „krambúl" og „eight-
ball". Við spilum yfirleitt „snoker"
en þá eru allar kúlurnar notaðar.
f snoker eru margar rauðar kúlur
og fær maður eitt stig fyrir að
koma þeim niður. Komi maður
rauðri kúlu niður má maður skjóta
öðrum litum niður en fyrir það fær
maður fleiri stig. Það góða við
..billiard" er að það þjáflar upp ein-
heitingu og hittni," upplýstu
1 krakkarnir.
Flest höfðu krakkarnir kynnst
-billiard" í fólagsmiðstöðvum
borgarinnar en ekki farið að spila
neitt að ráði fyrr en boröin komu
i Keilusalinn. 011 höfðu þau fyrst
komið í Keilusalinn til að gera eitt-
bvað annað en spila „billiard".
Smám saman soguðust þau síðan
að borðunum með grænu dúkun-
um og fóru að skjóta kúlunum um
þau þver og endilöng.
MorgunblaöiðA/IP
• Billiardborft eru stór og þvf
getur verið gott aft grfpa til að-
stoðarhluta og manna.
Krakkarnir spila „billiard" yfir-
leitt tvisvar til þrisvar f viku og og
þá er þessi hópur yfirleitt saman.
Þau gera þetta fyrst og fremst
ánægjunnar vegna og eru ekkert
að stefna á þátttöku í neinum
mótum enda er ekki mikið um
unglingamót í þessari íþrótt.
Eftir að hafa þegið smá tilsögn
(„billiard" þakkaði blaðarrjaður fyr-
ir sig og kvaddi þennarji hressa
„billiard-hóp".
Einstaklega fallegur postulínsplatti
Jólastemmningin byijar fyrir aivöru hjá okkur þegar barnajólaplattinn er kominn,
því alltaf eru sterk tengsl á milli bama ogjóla.
Myndskreytingin á þessum plöttum er einstaklega falleg og hlýleg og er því
tilvalin jólagjöf eða gjöf I tilefni barnsfæðingar á árinu.
Ingvar Agnarsson skráir í þessa bók af hógværð
og vandvirkni frásagnir Aðalheiðar Tómasdóttur,
eiginkonu sinnar.
Helgi Vigfússon skrifar formála.
UPPLAG Á ÞROTUM
DRAUMAR
OG ÆÐRI HANDLEIÐSLA
Sktásett at tngvari Agnatssyni
Fallegar gjafa umbúðir Verðkr. 2.150,-
Margar fallegar gjafa vörur:
Vantar þig möndlugjöfina?
Við eigum margt sem hægt er að velja úr, t.d. vandað postulínsjólatré með
kertaljósi, kristals kirkjur með kertaljósi og mörg önnur falleg kertaljós.
TEKK-
KEISTMI
Lougaveg 15 simi 14320
ATHYGLISVERÐ BÓK
UM DULRÆN MÁLEFNI
Eina bókin um dulrœn efni
nú fyrir jól.
DRAUMAR
OG ÆÐRI
Aðalheiður Tömasdóttir