Morgunblaðið - 21.11.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987
Hjartans þakkir og kveðjur sendi ég öllum
þeim, er sýndu mér vinsemd og hlýhug á 95
ára afmœli minu 13. nóvember sl.
Guð blessi ykkur öll.
Petrína Narfadóttir.
Trixini
töframaðurinn með bláa steininn sýnir töfrabrögð í menningar-
miðstööinni Gerðubergi laugardaginn 21. nóv. 1987 kl. 14.00.
ALLIR VELKOMNIR
QERMANIA Qoethe-instftut
í MIKLU ÚRVALI
Höfum einnig fengið mikið af gardínuefnum á
verði frá 190,- kr. meterinn.
Sendumíþóstkröfu.
SÍÐUMÚLA31.108 REYKJAVÍK. SÍMI 84222.
MEZHDUNARODNAYA
KNIGA
Sovésk bókasýning
í tilefni 70 ára afmælis Októberbylting-
arinnar í Rússlandi verður sýning
haldin á sovéskum bókum, hljómplöt-
um, frímerkjum og plakötum í húsa-
kynnum MÍR, Vatnsstíg 10, dagana
21. nóv. til 6. des. nk.
Sýningin verður opnuð laugardaginn
21. nóv. kl. 14 og síðan opin um helg-
ar kl. 14-17, en á virkum dögum kl.
17-19.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
MÍR.
Vlð gðngum frá
og sendum
jólapakkana
um allan heim.
Sendum um
allan heim!
Jólasveinar
eruákreiki
í gluggunum
_ _ til að minna ykkur á, að óðum
í Hafnarstræti bSfíÆMf «1™.
fyrir sér ef jólagjafirnar
vina og ættingja
eriendis eiga
_ ... . . , . að ná fram í tíma. ..
OpiA til Id. 16 í dag.
•ww * « • fyrir
og Knnglunm.::
Allar sendingar eru fulltryggðar
yöur að kostnaðartausu.
RAVIflAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19 & KRINGLUNNI
Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída
REIGAN, SJULTS,
VINBERGUR OG MIS
Einn af traustustu vinum og
stuðningsmönnum Rónalds Reig-
an, forseta, Kasper Vínbergur, sem
verið hefir vamarmálaráðherra
síðan stjómin tók við fyrir sjö
árum, sagði af sér um daginn.
Hann hafði dyggilega hjálpað for-
setanum að standa við kosningalo-
forðið um það, að koma herafla
landsins í gott lag og endumýja
hergögnin, sem fyrirrennari hans,
Jimmí gamli Karter, hafði látið
grotna niður í einfeldni og sakleysi.
Vínbergur bar fyrir sig, að hann
þyrfti að helga konu sinni alla sína
krafta, því hún hafði átt við mikla
vanheilsu að stríða. Einhvetjir
höfðu þó eftir konunni, að þetta
væri kjaftæði í kallinum, og ku
hún hafa bætt við, að varla þyrfti
hann að fara að skipta sér af sér
núna. Aðrir sögðu raunverulega
ástæðuna fyrir afsögninni vera þá,
að vamarmálaráðherrann væri al-
gjörlega á móti því, að Reggi og
Gorbi færu að undirrita samninga
um gagnkvæma eldflaugaafvopn-
un. Hvað sem satt er, þá kemur
það sér vel fyrir Vínberg, að hann
skuli eiga heilsulausa konu, því það
hefði orðið vandræðalegt fyrir
Reigan, ef hin ástæðan hefði orðið
opinber.
Á laugardaginn bauð Reigan svo
Vínbergi, Mís, dómsmálaráðherra,
og Sjúlts, utanríkisráðherra, upp í
Camp David í afslappelsi, en jafn-
framt til að geta kvatt vin sinn
Kasper, sem er á förum til Kali-
fomíu. Þeir kappamir, klæddir í
vinnubuxur og peysur eða blússur,
sátu úti á hlaði, en konumar voru
inni í hlýjunni að ptjóna og spjalla.
Reigan var auðvitað með kúreka-
hatt og sat við að höggva eldivið,
sem er hans næstbezta tómstunda-
gaman: það bezta er að fara í
reiðtúr á uppáhalds-hestinum.
Kallamir spjölluðu margt, riQ-
uðu upp gamla daga og hlógu
dátt. Eins og oft vill verða, þegar
svona óformlegar samræður fara
fram, var vaðið úr einu í annað,
og allt í einu barst talið að ís-
landi. Það er nú einmitt þess
vegna, að fréttamaður ykkar festir
þessar línur á pappír.
Það var Sjúlts, sem minntist á
það, að íslendingar hefðu viljað
endurtaka leiðtogafundinn frá því
í fyrr. Hann sagði þá samt hafa
tekið því vel, þegar þeim var á það
bent, að Reigan vildi sýna Gorba
bandaríska gestrisni og fara með
hann á McDonalds. Utanríkisráð-
herrann sagðist þó ekki vera viss
um það, hvort íslandsmenn hefðu
skilið máltækið, að eldingu slægi
ekki oft niður á sama stað: Þá
sagði Reigan, að sér líkaði vel við
íslendinga. Þeir væru duglegir og
fylgnir sér, og væri forseti þeirra
feiknarlega aðlaðandi og mikil
„lady“.
Tók nú Mís til máls og sagði,
að sér hefði nú verið nóg boðið,
þegar hann sá, hvemig íslendingar
hefðu farið með utanríkisráðuney-
tið í Regnboga-skipa og hvala-
málunum. Þeir hefðu ekki hætt
fyrr en þeir hefðu verið búnir að
svínbeygja Sám frænda og fara
með sigur af hólmi. Sjúlts vildi nú
ekki viðurkenna það, en benti líka
á, að Vínbergur hefði varað við
því, að eyjaskeggjar myndu e.t.v.
segja sig úr NATO og reka herinn
frá Keflavíkurvelli.
Reigan gerði nú hlé á viðar-
högginu, tók af sér hattinn, strauk
svitann af brá sér með blússuerm-
inni og þurrkaði sultardropa úr
nefínu. Sagðist hann vilja segja
þeim strákum að hallmæla ekki
Islandsmönnum, því þjóðfélag
þeirra væri að mörgu leyti fremra
því bandaríska f frelsi einstaklinga
og verzlunar. Þeir voru m.a. með
allra fyrstu þjóðum að taka upp
fijálsar ástir. Nú brá fyrir glampa
í augum gamla kvikmyndaleikar-
ans.
Hann sagði þá hafa unnið að
því statt og stöðugt að létta af
höftum á mörgum sviðum. Þeir
væru búnir að gefa frjálsan hljóð-
varps- og sjónvarps-rekstur og
opna áfengisútsölu f Stykkishólmi.
íbúamir hefðu nú frelsi til að vefja
sig skuldum með vestrænum
greiðslukortum, og um daginn
sagðist hann hafa heyrt, að þeir
duglegustu hefðu verið heiðraðir
við hátíðlega athöfn, og þeim af-
hent gullkort.
En beztu fréttimar um hið
aukna verzlunarfrelsi á íslandi
sagði hann vera ákvörðun íslenzka
viðskiptaráðherrans, að gefa sex
fyrirtækjum leyfí til þess að flytja
út frystan fisk til Bandaríkjanna.
Fram að þessu hefðu tvö einokun-
arfyrirtæki setið ein um hituna og
haldið uppi verðinu. Nú myndi
þetta breytast, verðið lækka og
bandarískir neytendur njóta góðs
af. Vonandi myndu stjómarvöld
ekki stoppa hér, heldur veita öllum
117 frystihúsum sínum leyfí til að
flytja út eigin framleiðslu. Þjóðin
ætti heilan her af markaðssérfræð-
ingum og auglýsingasnillingum,
sem vantaði eitthvað til að selja.
Eins og oft vill verða sleppa
þeir valdamestu ekki orðinu. Og
fór þannig nú í þessum hópi, því
Reigan hélt áfram að tala um Is-
land. Hann sagðist öfunda þessa
litlu þjóð. Hún ætti ekki við að
etja nein þau vandamál, sem
hrjáðu þær stærri. Ekki þyrftu
landsmenn að punga út fúlgum í
vopnabúnað og herlið. Ekki væri
þar kynþáttavandamál og raunar
engin fátækt. Þjóðin væri spreng-
menntuð og allir vel læsir og
skrifandi. Ekki stæði öll heims-
byggðin á öndinni yfir því, hvort
íslenzka krónan væri veik eða
sterk. Klykkti hann út með því að
segja, að ef hann væri yngri, myndi
hann óska sér, að hann væri
fslenzkur stjómmálaforingi. Það
hlyti að vera bæði auðvelt og gam-
an að stjóma landi eins og íslandi.
Nú kallaði Nancy út um
gluggann og bauð köllunum að
koma inn og fá sér kaffísopa. Hún
sagðist vera rétt búin að hella upp
á könnuna og skera jólakökuna,
sem hún hefði bakað kvöldið áður.
Morgunblaðið/Boeing Photo
Samsetning fyrstu Boeing 787-400 farþegaþotunnar í Boeingverakmiðjunum. Flugleiðir hafa pantað
tvær vélar af þessari tegund.
Samsetning fyrstu Boeing
737-400 vélarinnar hafin
NÝHAFIN er samsetning fyrstu
flugvélarinnar af gerðinni Bo-
eing 737-400 f Boeing-verksmiðj-
unum í í Washingtonfylki í
Bandaríkjunum. Flugleiðir hafa
pantað tvær flugvélar af þessari
gerð en þær vélar verða ekki
afhentar fyrr en á árinu 1989.
Vinna hófst þann 29. október
sfðastliðinn við að festa vængina á
bol fyrstu vélarinnar. Gert er ráð
fyrir að sú vél verði tilbúin f janúar
á næsta ári og verða þá gerðar á
henni prófanir f 7 mánuði. Byrjað
verður að afgreiða pantanir í sept-
ember.
Boeing 737-400 er 3 metmm
lengri en Boeing 737-300. í flugvél-
unum verður notaður nýjasti tölvu
og rafeindabúnaður auk þess sem
þær em hljóðlátari og spameytnari
en eldri gerðir. Þegar hafa 88 Bo-
eing 737-400 flugvélar verið
pantaðar hjá verksmiðjunum af 9
flugfélögum. Alls hafa 1907 vélar
verið pantaðar af 737 gerðinni og
er hún orðin mest selda flugvélar-
tegund heims.