Morgunblaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B
214. tbl. 76. árg. ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Pólland:
Stjóminni sagt
að segja af sér
Varsjá. Reuter.
ZBIGNIEW Messner, forsætis-
ráðherra Póllands, lét í gær und-
an mikilli gagnrýni innan komm-
únistaflokksins sem utan og
sagði af sér.
Kommúnistaflokkurinn og tals-
Gjaldþrot
hjá norsk-
um banka
Ósló. NTB.
STÆRSTI einkabanki í Noregi,
Sunnmörsbanken, er gjaldþrota
en hann hefur verið helsti lánar-
drottinn sjávarútvegsfyrirtækja
í Suðvestur-Noregi. Hefúr bank-
inn glatað öllu eiginfé sinu, um
1.417 miiyónum ísl. kr.
menn hinna opinberu verkalýðs-
félaga hafa sakað Messner og stjóm
hans um að standa í vegi efnahags-
legra umbóta og bera ábyrgð á
mikilli verðbólgu og vöraskorti. í
áliti þingnefndar sagði, að verk-
föllin í sumar sýndu, að stjómin
nyti ekki lengur neins trausts og
væri því nauðsynlegt að skipa nýja
stjóm með þátttöku manna utan
kommúnistaflokksins. Talið er
líklegt, að Wladyslaw Baka, félagi
í stjómmálaráðinu og fyrram þjóð-
bankastjóri, taki við forsætisráð-
herraembættinu en hann er hlynnt-
ur meira einkaframtaki og mark-
aðsbúskap.
Stjómvöld í Póllandi hafa boðið
fulltrúum kirkjunnar og stjómar-
andstæðinga til viðræðna á næst-
unni en Lech Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu, setur það skilyrði fyrir samn-
ingum, að Samstaða verði leyfð.
Við því er þó mikil andstaða innan
hersins og kommúnistaflokksins.
Reuter
Þjóðaólga íJúgóslavíu
Um 50.000 Serbar og Svartfellingar söfnuðust saman á sunnudag í bænum Niksic í Svartfjallalandi til
að mótmæla kúgun og misrétti í Kosovo-héraði. Þar er fólk af albönskum ættum í miklum meirihluta og
hefur verið grannt á því góða milli þess og annarra þjóðarbrota.
Síðustu árin hefur Sunnmörs-
banken tapað veralegu fé á við-
skiptum sínum við sjávarútvegs-
fyrirtæki og á þessu ári hafa
skakkaföllin fremur aukist en hitt.
Var um tíma vonast til, að unnt
yrði að komast hjá gjaldþroti með
því að sameina hann öðram banka,
Kreditkassen, en á sunnudag varð
ljóst, að af því yrði ekki. Gunnar
Berge fjármálaráðherra reyndi í
gær að fullvissa sparifjáreigendur
um að þeir ættu ekkert á hættu en
í allan gærdag var stríður straumur
fólks í bankann til að taka út spari-
fé sitt.
í Noregi hefur enginn banki orð-
ið gjaldþrota síðan á kreppuáranum
en þá vora þeir um 100 talsins, sem
fóra á hausinn.
Sovétríkin:
Blóðugir bardagar milli þjóð-
arbrota í Nagorno-Karabakh
Moskvu. Reuter.
TIL MIKILLA átaka kom á
sunnudag milli Azerbajdzhana
og Armena í borginni Khadzhaly
í Nagorao-Karabakh og var bar-
ist jafnt með byssum sem hnifúm.
Sagði í fréttum TASS-fréttastof-
unnar, að 25 hefðu særst, þar
af fjórir alvarlega. í Stepana-
kert, höfúðborg héraðsins, var
allsheijarverkfall í síðustu viku
en íbúarnir, sem era flestir af
armenskum ættum, vijja segja
skilið við Azerbajdzhan og sam-
einast Armeníu.
Embættismenn í Stepanakert
sögðu á sunnudag, að átökin hefðu
hafist þegar Azerbajdzhanar skutu
á langferðabfl með armenskum
Kosningarnar í Svíþjóð:
Jaftiaðarmenn
áfram við sljóm
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, firéttaritara Morgunblaðsins.
Jafnaðarmenn munu áfram sitja við stjóravölinn í Svíþjóð með
tilstyrk kommúnista en hinir eiginlegu sigurvegarar kosninganna,
sem fram fóru á sunnudag, eru græningjar, umhverfísflokkurinn,
sem kom nú í fyrsta sinn mönnum á þing. Frammistaða borgaraflokk-
anna var slök og kenna þeir um kjörsókninni, sem sjaldan eða aldr-
ei hefúr verið minni, 83,3%.
Reuter
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra og leiðtogi jafiiaðarmanna, var
ánægður með úrslitin enda verður hann áfram við stjórnvölinn í
Svíþjóð.
Jaftiaðarmenn fengu 43,7% at-
kvæða og 157 þingmenn, töpuðu
einu prósenti, en mega þó kallast
óbeinir sigurvegarar þar sem þeim
hafði verið spáð meira fylgistapi.
Kommúnistum vegnaði einnig til-
tölulega vel, fengu 21 þingmann,
og saman hafa þessir flokkar því
178 þingsæti af 349. Á fjármála-
markaðnum var þessum fréttum um
óbreytt ástand vel tekið og í fram-
haldi af því hækkuðu hlutabréf og
gengi sænsku krónunnar styrktist.
Hægriflokkurinn fékk 66 þing-
sæti, tapaði 10, Þjóðarflokkurinn
44, tapaði átta, og Miðflokkurinn
41. Var sá síðastnefndi eini borg-
araflokkurinn, sem bætti í raun
stöðu sína þegar til þess er tekið,
að hann bauð nú fram einn en ekki
í samvinnu við Kristilega flokkinn.
Græningjar komu nú mönnum á
þing í fyrsta sinn, fengu 20 þing-
sæti, en fylgið reyndist þó minna
en skoðanakannanir höfðu gefíð til
kynna og þeir náðu ekki að komast
í þá oddaaðstöðu, sem þeir höfðu
stefnt að.
námsmönnum, sem áttu leið um
Khadzhaly, og særðu 18, þar af
fjóra mjög alvarlega. Þegar fréttir
af árásinni bárast til Stepanakert
þustu Armenar til Khadzhaly „þar
sem notaðar vora byssur og hnífar
í fjöldaátökum milli þjóðarbrot-
anna“. Særðust 25 manns og era
nú 17 á sjúkrahúsi.
TASS-fréttastofan sagði, að
nefnd undir forystu Andreis
Volskíjs, fulltrúa Kremlarstjómar-
innar, væri að störfum í Nagomo-
Karabakh en ekki er vitað hvort
það þýðir, að Moskvustjómin hafi
tekið við stjóminni. Þá kom einnig
fram, að ráðist hefði verið á skrif-
stofur ríkissaksóknarans í héraðinu
og á lögreglumenn og hermerin.
Allt símasamband milli Moskvu og
Stepanakert var rofíð í gær og ekki
reyndist heldur unnt að ná sam-
bandi við Jerevan, höfuðborg Arm-
eníu.
í fréttum TASS var skuldinni
skellt á „mútuþega og þjófa“, sem
reyndu að fela spillinguna með því
að etja saman þjóðarbrotunum.
Armenar í Nagomo-Karabakh
segja hins vegar, að vaxandi ókyrrð
í héraðinu megi meðal annars rekja
til þess, að Azerbadjzhönum, sem
„flúið" hafa Armeníu, hefur verið
komið fyrir í héraðinu. Vestrænir
fréttamenn, sem nýlega fengu að
fara til Jerevans, segja, að þar komi
allt að 200.000 manns saman um
hveija helgi til að krefjast samein-
ingar Nagomo-Karabakhs og Arm-
eníu.