Morgunblaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞREJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
75^
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Brann ömggt í
Evrópukeppni
Brann, lið Bjama Sigurðssonar
og Teits Þórðarsonar, sigraði
Moss, lið Gunnars Gíslasonar 1:0 í
undanúrslitum norsku bikarkeppn-
innar um helgina.
Atle Torvanger
skoraði mark Brann
á 27. mínútu. Moss
sótti stíft eftir það
en traust vöm Brann og góð mar-
kvarzla Bjama Sigurðssonar komu
í veg fyrir að Moss næði að skora.
Gunnar Gíslason átti hörkuskot að
marki Brann þegar tíu mínútur
voru til leiksloka en Bjami varði
Frá
Sigurjóni
Einarssyni
i Noregi
glæsilega.
Brann er nú komið í úrslit bikar-
keppninnar og mætir deildarmeist-
urum Rosenborg á Ulleval leikvang-
inum 23. október. Brann hefur nú
þegar tryggt sér þáttökurétt í Evr-
ópukeppni bikarhafa næsta ár,
vegna þess að Rosenborg tekur
þátt í Evrópukeppni meistaraliða.
Leikur íslendingaliðanna fór
fram í Moss en fjölmargir áhang-
endur Brann komu þangað og hróp-
uðu„Teitur, Teitur..." í leikslok,
greinilega ánægðir með gang mála.
Wfc,.. .
Bjami Sigurðsson stóð sig mjög vel gegn Moss.
GOLF / HM AHUGAMANNA
íslendingar
dæmdir ur leik
Tvenn mistök í HM í golfi komu íslendingum í koll
ÍSLENSKA golfsveitin var
dœmd úr leik á laugardag á
heimsmeistaramóti áhuga-
manna í golfi sem fram fór í
Sviþjóð. Tveimur íslenskum
keppendum var vísað úr
keppni. Hilmari Björgvins-
syni, fyrír að gleyma að skila
skorkortinu sinu strax að lok-
inni keppni, og Birni Knúts-
syni, fyrir að sleppa bolta
ólöglega. Ef aðeins öðrum
hefði veríð vikið úr keppni
hefði íslenska sveitin getað
haldið áfram, en þar sem
keppendurnir voru tveir urðu
fslendingar að hætta keppni
á næst síðasta degi.
Mikið hefur verið deilt um
þessa dóma, einkum þó í
máli Hilmars. f reglunum segin
„Skila skal skorkorti eins fljótt
og mögulegt er." Ekki eru tekin
fram neina tímamörk. Hilmar
fékk sér hinsvegar snarl er hann
kom inn og skilaði svo kortinu
um 20 mínútum síðar. Þessar
mínútur urðu íslenska liðinu
dýrkeuptar.
Dómurinn í máli Björns mun
þó vera réttur, þrátt fyrir að fram-
kvæmdin hafi komið mönnum
spánskt fyrir sjónir. Bjöm var á
næst siðustu holu og boltinn lá
að stóru skilti. Eftir að hafa feng-
ið ráðleggingar frá starfsmanni
ákvað Bjöm að sleppa boltanum.
Síðar kom í ljós að það var ólög-
legt, enda segir skýrt og greini-
lega í reglunum að skiltin séu
hluti af vellinum.
„Mjög strangt"
„Þetta er, að okkar mati, mjög
strangur dómur í máli Hilmars ,“
sagði Konráð R. Bjamason, for-
seti Golfsambands Islands í sam-
tali við Morgunblaðið. „Síðara
atvikið er kannski skiljanlegt, en
bæði málin em leiðinleg og slæmt
að lenda í þessu.
Við emm heldur ekki sáttir við
framkvæmdina og teljum að það
hefði mátt standa betur að þessu,"
sagði Konráð.
Bretar og Írar unnu
Sameiginleg sveit Breta og íra
sigraði á mótinu, lék á 882 högg-
um en næstir komu Bandaríkja-
menn á 887 höggum, þá Ástralíu-
menn á 895 höggum , Svíar á
897, Frakkar á 899 og Danir á
906. Sveit Breta og íra náði
þriggja högga forystu á Banda-
ríkjamenn eftir annan dag og jók
hana í sex högg eftir þriðja dag
en að lokum skildu fimm högg
sveitinar að. Heimamenn höfðu
fimm högga forystu eftir fyrsta
daginn en döluðu síðan og lentu
f fjórða sæti.
HANDKNATTLEIKUR / ALÞJOÐLEGT MOT KVENNALANDSLIÐA
íslenskur sigur
ÍSLENZKA kvennalandsliðið
sigraði Spánverja 21:17 í
síðasta leik alþjóðlegs móts í
handknattleik, sem fór fram
um helgina hór á landi. ís-
lenzka A-landsliðið varð því
sigurvegari á mótinu, Spán-
verjar í öðru sæti, Portúgalir í
því þriðja en íslenzka B-lands-
liðiðífjórðasæti.
Leikur íslendinga og Spánveija
var í raun úrslitaleikur um
ÚrslH á mótinu
Ísland-Portúgal......18:14
ísland B-Spánn.......17:24
ísland A-ísland B....24:11
Spánn-Portúgal.......24:12
Portúgal-ísland B....23:1
Ísland-Spánn.........21:1
England l.deild
ARSENAL- SOUTHAMPTON......2:2
COVENTRY - CHARLTON.......3:0
UVERPOOL- TOTTENHAM ......1:1
LUTON- MAN.UTD............0:2
MIDDLESBROUGH- WIMBLEDON .1:0
MILLWALL- EVERTON ........2:1
NEWCASTLE - NORWICH..... 0:2
FJ.MkJa u J T Mörk Stlg
NORWiCH 4 4 0 0 8:3 12
SOUTHAMPT. 4 3 1 0 9: 3 10
millwall 4 3 1 0 8: 3 10
liverpool 4 2 2 0 6:2 8
arsenal 4 2 1 1 12:8 7
EVERTON 4 2 1 1 7: 3 7
derby 4 2 1 1 4:2 7
man. utd. 4 2 1 1 3:1 7
COVENTRY 3 2 0 1 6: 2 6
ASTON VILLA 4 1 3 0 8: 7 6
QPR 4 1 1 2 2:2 4
SHEFF. WED. 4 1 1 2 3: 6 4
WESTHAM 4 1 1 2 4: 9 4
NOTT. FOR. 4 0 3 1 4:6 3
MIDDLESBRO. 4 1 0 3 3:5 3
CHARLTON 4 1 0 3 3: 10 3
TOTTENHAM 3 0 2 1 5: 6 2
LUTON 4 0 i 3 3:7 i
WIMBLEDON 4 0 1 3 3: 9 1
NEWCASTLE 4 0 1 3 2: 10 1
Guðmundur
Jóhannsson
skrifar
efsta sætið á mótinu. íslenzku
stúlkumar byijuðu vel og vömin
var sterk. Þær kom-
ust í 9:4 og 12:7 en
slökuðu síðan örlítið
á og var staðan 12:9
í hálfleik. í upphafi
síðari halfieiks kom síðan afleitur
kafli hjá íslenzka liðinu. Það var
einkum sóknin sem gekk ekki upp
og gengu Spánveijar á lagið og
jöfnuðu 13:13. Þá tóku íslendingar
aftur við sér og sigu örugglega fram
úr.
Margrét Theodórsdóttir og
Guðríður Guðjónsdóttir áttu góða
kafla í leiknum en duttu niður þess
á milli. Rut Baldursdóttir var traust
í vöminni og lífaði upp á sókarleik-
inn í síðari hálfleik. Kristín Péturs-
dóttir átti góðan leik í hominu og
Halla Geirsdóttir, markvörður,
varði vel. Lánumaðurinn Gomez var
yfirburðaleikmaður í liði Spánveija.
Ísland-Spánn
21 : 17
íþróttahúsið við Seljaskóla, alþjóðlegt
handknattleiksmót kvenna, þriðjudag-
inn 19. október 1988.
Gangur leiksina: 1:0, 1:1, 5:1, 5:2,
6:2, 6:3, 7:3, 7:4, 9:4, 9:6, 10:6, 10:7,
12:7, 12:9, 13:9, 13:13, 17:13, 17:14,
19:14, 19:15, 20:15, 20:16, 21:16
21:17.
Mörk ístands: Margrét Theodórsdóttir
6/3, Guðriður Guðjónsdóttir 6/2, Rut
Baldursdóttir 3, Kristfn Pétursdóttir
3, Ema Lúðvfksdóttir 1, Guðný Gunn-
steinsdóttir 1, Katrfn Friðriksen 1,
Ama Steinsen 1.
Mðrk Spánar: Gomez 8/2, Arranz 3,
Cruzsanchez 2/1, Uizcaino 1, Ba-
issacederes 1, Garcia 1, Ugarte 1.
Morgunblaðiö/Þorkell
GuðríAur Guðjónsdóttlr fylgist einbeitt með skoti sínu yfir spænsku vöm-
ina í leiknum í gær. Skömmu síðar söng knötturinn í netinu.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Norwich á toppinn!
NORWICH er komið í efsta
sæti ensku 1. deildarinnar
eftir sigur á Newcastle.
Reyndar virðast ekki fara
saman frægð og velgengi
þessa dagana því auk Nor-
wich hafa Millwall og Sout-
hampton raðað sár í þrjú
efstu sætin.
orwich hefur sigrað í fyrstu
flóram leikjum sínum í vetur
og þar með slegið 68 ára gamalt
met félagsins. Dale Gordon og
Robert Fleck skoraðu mörk Nor-
wich en markvörður Newcastle,
Dave Beasent bjargaði liði sínu
frá stærra tapi.
Millwall er nú komið í þriðja
sæti deildarinnar eftir sigur á
Everton, 2:1. Tony Cascarino
skoraði bæði mörk Millwall og
hefur nú skorað fimm mörk í fjór-
um leikjum. Everton náði svo að
minnka muninn á 82. mínútu er
Alan McLeary skoraði sjálfsmark
eftir homspymu.
Slagsmál
Það gekk mikið á í leik Arse-
nal og Southampton á Highbury.
Southampton komst í 2:0 eftir
aðeins 25 mínútur með mörkum
frá Matthew Le Tissier og Rodney
Wallace. En leikmenn Arsenal
gáfust ekki upp og Brian Mar-
wood minnkaði muninn úr víta-
spymu á 82. mínútu. Þegar sjö
mínútur vora komnar fram yfir
venjulegan leiktíma jafnaði Alan
Smith.
Leikmönnum beggja liða var
heitt í hamsi og miðvörður Saut-
hampton, Glenn Cockerill, fékk
þungt högg frá Paul Davis þegar
boltinn var víðsQarri. Cockerill var
borinn útaf kjálkabrotinn. Dómar-
in sá ekki atvikið, en það sást
greinilega í sjónvarpi og Davis því
líklega í vondum málum.
Liverpool varð að sætta sig við
jafntefli gegn Tottenham 1:1 á
Anfield, þrátt fyrir að vera einum
leikmanni fleiri síðustu mínútum-
ar. Peter Beardsley náði forys-
tunni fyrir Liverpool á 78. mínútu
en Terry Fénwick jafnaði tveimur
mínútum síðar. Þá var Chris Fair-
clough vikið af leikvelli fyrir að
slá John Aldridge. Liveipool sótti
stíft síðustu mínútumar en Ian
Rush skaut framhjá af þriggja
metra færi, rétt fyrir leikslok.
Peter Davenport og Bryan Rob-
son skoraðu mörk Manchester
United gegn Luton. Liðið lék þó
mjög illa, enda margir bestu leik-
menn liðsins meiddir.
OL/SUND
Bryndís
sigraði
Í2. riðli
Bryndís Ólafsdóttir sigraði í 2.
riðli í 200 metra skriðsundi
kvenna á Ólympíuleikunum í Seoul
í gærkvöldi.
Bryndís synti á 2:07,11 sek. sem
er 0,9 sek. frá íslandsmeti hennar.
Þrátt fyrir sigurinn í riðlinum
komst Bryndís ekki í úrslit í þess-
ari grein.
FELAGSLIF
Aðalfundur
Aðalfundur handknattleiks-
deildar Víkings fer fram í
kvöld kl. 20.30 í félagsheimilinu við
Hæðargarð.
LOTTO: 2 16 28 36 37 + BONUS: 32