Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/LESBOK 280. tbl. 79. árg. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins írak: 200.000 Kúrdar áflótta til fjalla Nikosíu. Reuter. STARFSMENN Flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna segja að her Iraks hafi hrakið 200.000 Kúrda á flótta. Fólkið stefni til fjalla og gera þurfi tafarlaust ráðstafanir til að koma í veg fyrir að það fijósi í hel. Vetur er genginn í garð á svæði Kúrda í norðurhluta íraks og starfsmenn Flóttamannahjálpar- innar segja að margir flóttamann- anna, þar á meðal konur og böm, sofi undir plastábreiðum í fann- fergi og frosti. Mikill straumur flóttamanna var einnig til fjallanna í síðasta mánuði og þá frusu hundr- uð manna f hel. Her íraks er sagður hafa hafið nýja sókn gegn kúrdískum skærul- iðum og starfsmenn Flóttamanna- hjálparinnar segja að tugþúsundir óbreyttra borgara hafi flúið stór- skotaliðsárásir hersins. írösk stjórnvöld vísa þessu hins vegar á bug. Þau segja að Flóttamanna- hjálpin byggi ásakanir sínar á „lygaáróðri ” B and aríkj astj órnar, sem sé mjög í mun að ekki verði fallið frá refsiaðgerðum gegn írak vegna innrásarinnar í Kúveit í fyrra. Margaret Tutwiler, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði að Bandaríkjastjóm hefði miklar áhyggjur af þróun mála í Irak. Allt að tvær milljónir manna flúðu að landamærum Iraks að Tyrklandi og íran eftir að herinn kvað niður uppreisn Kúrda og shíta í kjölfar ósigurs íraka í stríðinu fyrir botni Persaflóa. Orrustunnar um Moskvu minnst Reuter Þess var minnst í Sovétríkjunum í gær að hálf öld er liðin frá því orrustan um Moskvu var háð. Á myndinni má sjá tvo hermenn bera blómsveig sem lagður var á leiði óþekkta hermannsins. Á eftir þeim gengur Boris Jeltsín, forseti Rússlands. í Bandaríkjunum er þess minnst í dag að fimmtíu ár eru liðin frá því Japanir gerðu fyrirvaralausa loftárás á flotastöðina í Pearl Harbour. ^ |jjs 39 Ákall Gorbats.iovs: Lýðveldin sjái Moskvu fyrir mat Moskvu. Reuter. MÍKHAÍL S. Gorbatsjov Sovét- forseti hvatti leiðtoga einstakra lýðvelda til þess að tryggja að Moskvu bærust þær matvörur sem heitið hefur verið. Forsetinn sagði leiðtogum Ukraínu, Hvíta- Rússlands, Kazakhstans og Moldovu að höfuðborgin hefði aðeins til umráða nokkurra daga birgðir af kjöti, sykri og viðbiti. Hann sagði hættu á óeirðum ef ekki rættist úr. Áður hafði Gorbatsjov átt fund með Borís Jeltsín Rússlandsforseta á fimmtudag um að nálæg héruð sæju borginni fyrir birgðum. Jeltsín sagði í gær að verðlag á flestum vörum yrði gefið fijálst 16. desember en búist er við miklum verðhækkunum í kjölfar þessa. Gorbatsjov sagði að komið gæti til „fjöldamótmæla gegn umbótunum” ef matvælaástandið yrði þá jafn slæmt og hann lýsti því núna. Bandaríkin setja viðskipta- bann á öll lýðveldi Júgóslavíu Cyrus Vance teiur minnkandi líkur á að SÞ sendi friðargæslulið til landsins Sar^jevo, Washington. Reuter. CYRUS Vance, sérlegur sendimaður Sameinuðu þjóðanna (SÞ), mótmælti harðlega árásum júgóslavneska sambandshersins á skot- mörk í Króatíu í gær við Veljko Kadijevic, varnarmálaráðherra Júgóslavíu. Harðir bardagar brutust út víðs vegar um Króatíu í gær og sagði Vance það draga úr líkum á að SÞ sendu friðargæslu sveitir til Júgóslavíu. Bandaríkjastjórn ákvað í gær að selja við- skiptabann á öll lýðveldi landsins og gengur því lengra en Evrópu- bandalagið sem einungis beitir Serbíu og Svartfjallaland efnahags- legum refsiaðgerðum. Vance sagði stórskotaliðsárás sambandshersins í gær hryggja sig' því daginn áður hefðu þeir Kadijevic borið saman bækur sínar um hvernig tryggja mætti að vopnahléssamkomulag Serba og Reuter Mannskæður árekstur 24 bifreiða Að minnsta kosti sautján manns biðu bana og tugir slösuðust í liörðum árekstri 24 bíla skammt frá basknesku borginni Bilbao í gær. Skyggni var afar slæmt vegna þoku þegar slysið varð og umferðin mikil þar sem í hönd fór fjögurra daga helgi. Margir þeirra sem týndu lífi brunnu í bifreiðunum. Á myndinni kanna lögreglu- og slökkviliðsmenn slysstaðinn. Króata yrði virt. Króatíska útvarpið sagði að júgóslavneski sambandsherinn hefði haldið uppi stórskotaliðsárás á borgirnar Dubrovnik og Osijek. Útvarpið sagði að 14 manns hefðu fallið og 71 særst í árás sambands- hersins á Osijek í fyrradag. Blaða- menn sem staddir eru í Dubrovnik sögðu a.m.k. tvo borgara hafa týnt lífi í skothríð á borgina í gær og 15 særst. Upplýsingar stönguð- ust þó á því talsmaður sambands- hersins sagði ekkert vera hæft í fregnum þess efnis að herinn hefði skotið á Dubrovnik. Að sögn Tan/ug-fréttastofunnar kom til harðra bardaga í gær við borgina Lipik sem er austur af Zagreb, höfuðborg Króatíu. Þar hefðu króatískir þjóðvarðliðar látið til skarar skríða gegn sveitum sambandshersins. Vance sagði að raunverulegt vopnahlé væri ekki komið á í Júgó- slavíu en það væri megin forsenda þess að SÞ sendu friðargæslusveit- ir til landsins. Hann ræddi í gær við Alija Izetbegovic, forseta Bosn íu-Herzegovínu, og leiðtoga Serba og Króata þar um möguleika á að senda þangað friðargæslusveit- ir til að koma í veg fyrir að upp úr syði milli þjóðarbrotanna. Izet- begovic og Stjepan Kljujic, leiðtogi Króata, voru því fylgjandi en Serb- inn Radovan Karadzic léði ekki máls á því. Franjo Tudjman, forseti Króa- tíu, sagði í gær að með því að neita að viðurkenna sjálfstæði Króatíu stuðluðu Bandaríkjamenn að enn hatrammara stríði í land- inu. Grænlend- ingar opna jólamiðstöð Nuuk. Reuter. GRÆNLENDINGAR opnuðu í gær fyrsta áfanga jólamið- stöðvar í Nuuk, sem verður starfrækt allt árið. Grænlensk fyrirtæki og land- stjórnin hyggjast verja um 115 milljónum ISK í miðstöðina og stefnt er að því að veltan verði rúmur milljarður ÍSK á ári. Búist er við að gestirnir komi einkum frá Bandaríkjunum og Japan með leiguflugvélum. í fyrsta áfanganum er veit- ingahús, sem kennt er við hrein- dýr jólasveinsins, verslun þar sem seldir verða handunnir munir og sýningarsalur. Bygg- ingin verður alls 1.000 fermetr- ar og stefnt er að því að ljúka henni fyrir þarnæstu jól. í byggingunni verður m.a. smiðja jólasveinsins og boðið verður upp á ferðir með sleðum, sem hreindýr draga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.