Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
35
Sigrún Magnúsdóttir:
Yfirdráttur borgar-
innar vaxið um millj-
arð á fimm mánuðum
Fullyrðingar um slæma stöðu gróf-
lega orðum auknar, segir borgarsljóri
NOKKRAR umræður urðu um lántökur og fjármagnskostnað borgar-
sjóðs á fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld. Að sögn Sigrúnar Magnús-
dóttur hefur skuldin á yfirdrætti borgarinnar hjá Landbankanum
vaxið um rúman milljarð á fimm mánaða tímabili, frá júní til nóvem-
ber.
Sigrún sagðist hafa bent á versn-
andi stöðu borgarinnar í júní sl. þeg-
ar ársreikningar borgarsjóðs og
stofnana hans fyrir árið 1990 hefðu
verið til umræðu. Meirihluti sjálf-
stæðismanna hefði hins vegar sagt
henni að það væri á misskilningi
byggt að staðan yrði áfram svo slæm
þar sem borgin væri að fá inn þjóð-
vegafé þ.e. að ríkið borgaði þjóðvegi
í þéttbýli. Það skuldabréf upp á 772
milljónir kom inn á hlaupareikning
borgarinnar í júlí og var staðan á
reikningnum þá 890 milljónir í yfir-
drætti. 1 nóvember hefði yfirdráttur-
inn hins vegar verið kominn upp í
1,9 milljarð króna þannig að á fimm
mánuðum hefur yfirdrátturinn hjá
borginni aukist um milljarð.
í bókun frá borgarfulltrúum Nýs
vettvangs sagði að komið hefði í ljós
að kostnaður af yfirdrætti á hlaupa-
INNLENT
reikningi hefði vaxið jafnt og þétt
síðustu ár. Vaxtagreiðslur af yfir-
drættingum væru nú samkvæmt
fjárhagsáætlunargögnum taldar
verða 280 milljón krónur á yfirstand-
andi ári eða nær þrisvar sinnum
hærri en framreiknaðar vaxta-
greiðslur yfirdráttar hefðu orðið árið
1988.
„Mál er að linni óhóflegum lántök-
um borgarsjóðs af þessu dýrasta
lánsformi bankakerfisins en meðal-
prósenta hlaupareikningsvaxta var
21% á tímabilinu 1. janúar tii 31.
oíctóber 1991,” sagði í bókun Nýs
vettvangs.
Markús Örn Antonsson óskaði
bókað á fundinum að Reykjavíkur-
borg leitaðist jafnan við að fá hag-
stæðustu vaxtakjör í viðskiptum við
Landsbankann en væri að sjálfsögðu
háð ákvörðun bankastjórnarinnar
þar um. Reykjavíkurborg hefði mjög
sterka stöðu fjárhagslega og afl til
fjölþættra framkvæmda auk um-
fangsmikils reksturs. Borgarstjóri
sagði að skuldir borgarinnar sem
hlutfall af tekjum ársins væru langt-
um lægri en almennt gerðist hjá
bæjarfélögum í landinu og fullyrð-
ingar minnihlutans um slæmt ástand
í ljármálum hennar því gróflega orð-
um auknar.
Borgarstjórn:
Samþykkt að
stuðla að
fækkun slysa
á skíðafólki
TILLAGA frá borgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokks uni að fela
fulltrúa borgarstjórnar í Blá-
fjallanefnd að leggja áherslu á
aðgerðir, sem fækkað gætu
slysum hjá skíðafólki, var sam-
þykkt samhljóða á fundi borg-
arstjórnar í fyrrakvöld.
Tillögunni fylgdi greinargerð
þar sem fram kom að aðgerðirnar
yrðu fólgnar í aukinni skíða-
kennslu, koma þyrfti upp ráð-
leggingar- og eftirlitsstöð á fjöl-
mennum skíðastöðum þar sem
gefnar yrðu leiðbeiningar um út-
búnað og hann lagfærður og loks
að betra eftirlit yrði haft með
skíðalyftum.
Júlíus Hafstein sem mælti fyr-
ir tillögunni lagði áherslu á að
erlendar rannsóknir hefðu leitt í
Ijós að fækka mætti slysum á
skíðafólki með þessum aðgerðum.
Tillaga um breytta land-
notkun í Geldinganesi felld
BORGARFULLTRÚAR Nýs vettvangs lögðu til á fundi borgarstjórnar
í fyrrakvöld að sú breyting yrði gerð á samþykktu Aðalskipulagi Reykja-
víkur 1990-2010 að landnotkun í Geldinganesi yrði breytt úr íbúðar-
svæði í athafnasvæði og að fiskimjölsverksmiðju yrði ætlaður staður á
athafnasvæði þar. Tillagan var felld með tíu atkvæðum meirihluta Sjálf-
stæðisflokks m.a. með þeim rökum að þegar væri búið að samþykkja í
Aðalskipulagi Reykjavíkur að reisa
svæðinu.
Tillögu borgarfulltrúa Nýs vett-
vangs fylgdi greinargerð þar sem
m.a. voru nefnd þau rök að Geldinga-
n'es væri í mjög góðum tengslum við
fyrirhugaðar aðalsamgönguæðar
höfuðborgarinnar bæði á sjó og landi.
Svæðið væri í talsverðri fjarlægð frá
fyrirhugaðri íbúðabyggð en það eitt
og sér skapaði aukið svigrúm fyrir
hugsanlega atvinnustarfsemi og veð-
urfarslega væri svæðið hagstætt fyr-
ir grófari atvinnustarfsemi sem
hugsanlegt væri að fylgdi t.d. hávaði
og lyktarmengun. í Geldinganesi
væru ríkjandi austlægar vindáttir
sem gera myndu það að verkum að
hugsanleg lyktarmengun bærist á
haf út en ekki inn yfir byggð.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði
vinnubrögð fulltrúa Nýs vettvangs
einkennileg þar sem engar athuga-
semdir eða ábendingar hefðu komið
5000 til 6000 manna íbúðabyggð á
frá þeim um þetta efni þegar Aðal-
skipulag 1991-2010 hefði verið sam-
þykkt í borgastjórn þrátt fyrir að
upplýsingar hefðu þá legið fyrir í
langan tíma um nýtt starfsleyfi fyrir
fiskimjölsverksmiðjuna í Örfirisey.
Vilhjálmur sagði Geldinganes vera
eitt glæsilegasta byggðasvæði í
borginni og fráleitt væri að fella nið-
ur 5000 til 6000 manna íbúðabyggð
til að setja þar upp eina verksmiðju.
Hann nefndi að lokum að höfnin í
Örfirisey væri eina fiskihöfnin í
Reykjavík þar sem höfnin í Eiðsvík
væri hugsuð sem flutningahöfn. Það
væri því bæði eðlilegt og skynsam-
legt að verksmiðjan væri í góðum
tengslum við fiskihöfnina.
Katrín Fjeldsted benti á varðandi
rekstur fiskimjölsverksmiðjunnar að
í drögum að starfsleyfi væri gengið
út frá því að ekki yrði um lyktarm-
engun að ræða.
Borgarstjórn skorar á stjórnvöld:
Fé verði varið til uppbygg-
ingar heilsugæslustöðva
TILLAGA um að borgarstjórn skori á rikisstjórnina að beita sér fyrir
því að á fjárlögum ársins 1992 verði varið fé eða a.m.k. aflað heimildar
í 6. grein til áframhaldandi uppbyggingar heilsugæslustöðva í Reykja-
vík var samþykkt samhljóða á fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld.
Sigrún Magnúsdóttir bar tillöguna báru fram breytingartillögu þar sem
fram og benti á að samkvæmt frum-
varpi til fjárlaga væri engu fé varið
til uppbyggingar heilsugæslustöðva
í borginni né heldur væri heimildará-
kvæði í 6. grein.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
kveðið var á um að fénu yrði varið
til að koma á fót heilsugæslustöð í
Grafarvogshverfi og til að sinna öðr-
um brýnum forgangsverkefnum. Svo
breytt var tillagan samþykkt sam-
hljóða.
í beinni útsendingu á Stöö 0 annan hvern þriðjudag.
Jóla-Happó 26.DES.
SPENNANW!
10.DES.,
7.JAN., 21.JAN., 4.FEB., 18.FEB., 3.MARS .... -efþúáfímiða!
ARGUS/SlA