Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991 29 EITT SLYS ENN eftir Þorgrím Halldórsson Enn einu sinni hefur orðið dauða- slys í umferðinni á Reykjanesbraut. Enn einu sinni er maður á besta aldri hrifinn á braut frá fjölskyldu sinni og mætur þjóðfélagsþegn hverfur af vettvangi langt um aidur fram. Nú var það hann. En það hefði getað verið hver okkar sem er sem að staðaldri ökum þessa hættulegu leið. Hætturnar leynast allstaðar. Frá lausagangsfé sem stekkur fyrirvara- laust inn á veginn og í veg fyrir bif- reiðar, frá hálkublettum sem mynd- ast fyrirvaralaust, frá vindhviðum sem kasta bifreiðum til og frá að ónefndum hjólförum fullum af vatni sem fleyttu til skamms tíma stjórn- lausum bílunum um veginn. Til allrar hamingju hafa verið framkvæmdir í sumar sem vonandi lagfæra það ófremdarástand — að minnsta kosti um tíma. Já, hætturnar eru margar og margvíslegar og aldrei verður hægt að útiloka þær allar. En ýmislegt má gera til að draga úr þeim, Reykja- nesbúar og aðrir þeir sem nota braut- ina hafa árum saman barist fyrir því að brautin væri tvöfölduð og benda réttilega á að með því hefði mátt koma í veg fyrir mörg alvarleg um- ferðarlys, auk þess sem umferðar- þungi er þar orðin svo mikill að nú- verandi braut annar honum varla á álagstímum. Líklega er Reykjanes- brautin ijölfarnasti þjóðvegur lands- ins þar sem um 7.000 bifreiðar aka þar að jafnaði á dag. Margar þeirra eru stórar áætlunar- og vörubifreiðar sem mynda sogstrók í kringum sig sem getur verið stórhættulegur litl- um og léttum bílum sem mæta þeim. Þegar rætt er um breikkun Reykjanesbrautar eru svörin að jafn- aði þau að ijárhagur ríkisins leyfi ekki slíkar framkvæmdir. En nú flytja ijölmiðlar þær fréttir að hafin sé vinna við gerð jarðganga á Vest- fjörðum sem þjóna eiga 6.000 manna byggð og eiga göng þessi að koma í stað vega sem hafa að jafnaði 80-100 bifreiða umferð á dag. Kostn- aðaráætlun verksins var 3,9 milljarð- ar og enda þótt tilboðið í jarðganga- Þorgrímur Halldórsson gerðina væri allnokkru lægra er þess að vænta að kostnaður nálgist upp- haflega áætlun ef taka á tillit til reynslunnar af opinberum fram- kvæmdum hér á landi. Kostnaður við tvöföldun Reykja- nesbrautar sem flytur nú um 7.000 bifreiðar á dag hefur hins vegar ver- ið áætlaður um einn milljarður króna eða fjórðungur holanna í gegnum fjöllin fyrir vestan. Þar sem fé til vegaframkvæmda er takmarkað hljóta menn að spyrja hvað ráðí þeirri forgangsröðun sem hér kemur fram. Hvað þurfa mannslífin sem tapast að verða mörg áður en þingmenn kjördæmisins taka til hendinni og heíja baráttu fyrir þessari fram- kvæmd? Reykjanesbrautin er ekki einungis aðalsamgönguæð heimamanna held- ur er hún braut allra landsmanna þar sem hún er eina leiðin til og frá alþjóðaflugvellinum og mun verða eina flutningsæðin að væntanlegu álveri í Keilisnesi. Það væri vonandi að við sæjum nú hvaða dugur býr í þingmönnum kjördæmisins ef þeir legðust allir á eitt við að koma þessu þarfaverki í framkvæmd. Höfundur er starfsmaður á Keflavíkurflugvelli sem ferðast um Reykjanesbrautina daglega. Nýjar sendingar af glæsilegum sófasettum með leðri eða áklæði. Hornsófar 2 + horn + 3. Leður á slitflötum. Einnig ný sending af hornsófum með áklæði. Einstaklega hagstaett veró Einnig mikið úrval af hvíldarstólum og sjónvarpsskápum. Opió i dag frá kl. 10-16 Armúla 8, símar 81 22 75 og 68 53 75. Merrild setur brag á sérhvern dag Langar þig í fallega kaffídós ? Merrild kaffið er afar vinsælt og það á sér góðar og gildar ásæður: Hin frábæra fylling og mýkt í bragðinu helst lengur í munni en þú átt að venjast. Kaffið er dijúgt og milt en aldrei rammt eða súrt. Það leynir sér ekki að það er blandað og brennt úr heimsins bragðbestu kaffitegundum frá Kólombíu, Brasilíu og Mið-Ameríku. Góð kaffiráð Gott hráefni er aðalsmerki Merrild kaffisins og mjúki pokinn tryggir aö gæðin haldist svo að þú færð alltaf sama ilmandi kaffið og frábæra kaffibragðið. Tæmdu aldrei pokann í dós. Settu kaffipokann ofan í Merrild kaffi- dósina. Þannig kemst hvorki súrefni né birta að kaffinu og ilmurinn, bragðið og ferskleikinn haldast til síðasta . dropa. Klipptu strikamerkið af rauða Merrild pakkanum og fáðu kaffi-dós eins og þá sem þú sérð hér til hliðar. Allt sem þarf að gera er að geyma strikamerkin af 6 pökkum af rauðum Merrild 500 gr. og senda til okkar. Þá sendum við þér Merrild kaffidós þér að kostnaðarlausu. Einnig getur þú skipt strikamerkjunum í peninga ef þú vilt ekki kaffidósina. 2 strikamerki = 40 kr. 4 strikamerki = 80 kr. 6 strikamerki = 120 kr. 't I f/ Já, takk. □ (krossið við) ég vil gjarnán fá eina Merrild kaffi- dós og séhdi hér með 6 strikamerki af rauðum Merrild 500 gr. ö (krossið við) ég vil gjaman fá greitt fyrir meðfylgjandi '_______________stk. strikamerki samtals________________kr. Hámark 1 umslag og 6 strikamerki á heimili. Nafn________ Heimilisfang Póstnr./bær_ Umslagið sendist til Merrild Kaffe A/S, Pósthólf 4372, 124 Reykjavík. Síðasti innsendingar- dagur er 31. janúar 1992. 701037 28 90 3234 Svona lítur strikamerkið út. Þú finnur það aftaná rauðum Merrild pakka. Merrild Kaffe A/S, Pósthólf 4372, 124 Reykjavík. í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.