Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 39
MOKGUNBLAPIÐ LAUQARDAGU.R 7, DESEMBER 1,991
«39
Sviss:
Gagnrýni á vínneyslu
kom ráðherrunum vel
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins.
RÁÐHERRARNIR sjö í Sviss voru kjörnir til að sitja áfram í ríkis-
stjórn landsins næstu fjögur árin á sameinuðu þingi í Bern á miðviku-
dag. Jean-Pascal Delamuraz, viðskiptaráðherra, hlaut besta kosningu
eða 172 atkvæði af 243. Hinir ráðherrarnir hlutu 127 til 151 at-
kvæði. Rene Felber, utanríkisráðherra, var kjörinn forseti landsins
til eins árs, en ráðherrarnir skiptast á að gegna því embætti í eitt ár
í senn.
Það er á allra vitorði að Delam-
uraz, sem er frá vínræktarkantón-
unni Vaud, þykir hvítvínssopinn
góður. Sjaldan er sagður brandari
um ríkisstjórnina án þess að hvít-
vínsdrykkju hans sé getið. En það
var aldrei rætt um hana í alvöru
opinberlega þangað til Blick, út-
breiddasta dagblað Sviss, hafði ný-
lega eftir þingmanninum Christoph
Blocher að ráðherrarnir úr frönsku-
mælandi hluta landsins, Delamuraz
og Felber, drykkju of mikið. Þessi
„ódrengilega” árás varð til þess að
frönskumælandi þingmenn studdu
sína menn hvort sem þeir voru
ánægðir með þá eða ekki og tals-
menn bænda, sem eru óánægðir
með stefnu Delamuraz í landbúnað-
armálum og höfðu hótað að greiða
atkvæði gegn honum, studdu hann
í ráðherrakjörinu.
Delamuraz og Felber stóðu að
samningnum um evrópskt efna-
hagssvæði (EES) fyrir Sviss. Alfred
Ogi, samgöngumálaráðherra, á
heiðurinn af samningi við Evrópu-
bandalagið (EB) um ferðir 40 tonna
flutningabíla um Sviss, en sá samn-
ingur ruddi veginn fyrir EES. Ogi
er talinn vinsælasti ráðherra lands-
ins og var spáð góðri kosningu. En
þingheimur kærir sig ekki um stór-
stjörnur frekar en svissneska þjóðin
almennt og hann hlaut aðeins 151
atkvæði af 240.
Frjálslyndi flokkurinn (FDP),
Kristilegi þjóðarflokkurinn (CVP),
jafnaðarmenn (SP) og Svissneski
þjóðarflokkurinn (SVP) hafa verið
saman í ríkisstjórn síðan 1959.
Stærstu flokkarnir þrír, FDP, CVP
og SP, töpuðu allir fylgi í þingkosn-
ingum í haust. Ofgaflokkar til
hægri og vinstri, eins og Bílaflokk-
urinn og Græningjar, unnu á en
þó ekki nóg til þess að stofna „töfra-
formúlunni”, eins og ríkisstjórnar-
mynstrið er kallað, í hættu.
Nokkurrar óánægju gætir með
ríkisstjórnarfyrirkomulagið og talið
er víst að það verði endurskoðað
og því jafnvel breytt á næstu árum.
Tillögur ríkisstjórnarinnar þykja oft
nokkuð útþynntar svo að allir ráð-
Taugastríð araba og ísraela:
herrarnir geti stutt þær og hún
þykir ekki gegna nógu miklu for-
ystuhlutverki í þjóðfélaginu. En hún
hefur tekið af skarið varðandi EES
og EB og eitt helsta verkefni henn-
ar næstu fjögur árin verður að
sannfæra þjóðina um ágæti EES
og nauðsyn þess að Sviss gangi í
EB.
Orrustuskipið USS West Virginia brennur í Pearl Harbour 7. desemb-
er 1941.
Hálf öld frá árásinni á Pearl Harbour:
Tregða Japana við að biðjast afsök-
unar veldur reiði 1 Bandaríkjunum
Tókýó, Pearl Harbour. Reuter.
SAMTÖK hermanna sem lifðu af loftárás Japana á flotastöðina í Pe-
arl Harbour hafa brugðist mjög illa við þeirri ákvörðun japanskra
stjórnvalda að bera ekki fram opinbera afsökunarbeiðni en hálf öld er
í dag liðin síðan árásin átti sér stað. Til stóð á japanska þinginu að
samþykkja yfirlýsingu þar sem fórnarlömb japansks stríðsreksturs í
síðari heimsstyrjöld væru beðin afsökunar en stjórn og stjórnarand-
staða gátu ekki komist að samkomulagi um á hvaða formi hún ætti
að vera. „Ef þeir vilja ekki biðjast afsökunar, af hveiju segja þeir það
þá ekki hreint út?” spurði Kenneth Creese, formaður fyrrnefndu sam-
takanna. „Okkur er illa við þá og þeim er illa Við okkur.”
Tvö þúsund og fjögur hundruð ins, Fijálslynda lýðræðisflokksins
bandarískir hermenn létu lífið í árás- (LDP), við að bera fram afsökunar-
inni á Pearl Harbour-flotastöðina á
Hawaii og stór hluti Kyrrahafsflota
Bandaríkjamanna var eyðilagður.
Japanir misstu hins vegar einungis
þijátíu flugvélar í árásinni sem kom
Bandaríkjamönnum algjörlega í opna
skjöldu. Daginn eftir lýstu þeir Jap-
önum stríð á hendur.
Andstaðan innan stjórnarflokks-
beiðni jókst verulega, að sögn japan-
skra íjölmiðla, eftir að George Bush
Bandaríkjaforseti neitaði fyrr í vik-
unni að biðjast afsökunar, fyrir hönd
Bandaríkjamanna, á að kjarnorku-
sprengjum hefði verið varpað á Hi-
roshima og Nagasaki í lok stríðsins.
„Af hveiju verðum við með eigin
höndum að ata sögu Japans aur,”
sagði Masayuki Fujio, fyrrum mennt-
amálaráðherra, við Kyodo-fréttastof-
una.
Harðorðasta fordæmingin á stríðs-
rekstri Japana af hálfu japanskra
stjórnvalda kom hins vegar fram í
viðtali sem bandaríska dagblaðið
Washington Post átti við utanríkis-
ráðherrann Michio Watanabe og birt-
ist á miðvikudag. í viðtalinu segir
Watanacbe: „Við finnum til mikillar
sorgar vegna hinna óþolandi kvala
og sorgar sem við ollum bandarísku
þjóðinni og þjóðum Asíu og Kyrra-
hafsins á meðan á Kyrrahafsstríðinu
stóð, stríði sem Japanir hófu með
skyndiárásinni á Pearl Harbour.”
Þegar japanskir fjölmiðlar spurðu
Watanabe út í þessi ummæli sagði
hann þau á allan hátt samræmast
fyrri afstöðu japanskra stjórnvalda.
Framhaldsviðræð-
ur hefjast lík-
lega á þriðjudag
Damaskus, Washington, Jerúsalem. Reuter.
SÝRLENDINGAR saka ísraela um að reyna að torvelda viðræður
um frið í Miðausturlöndum með því að neita að mæta á tilskildum
tíma til viðræðna í Washington. „Þessar aðgerðir ísraela gegn friðin-
um og yfirlýsingar þeirra þar sem lögð er áhersla á að halda fast
í hernumdu svæðin liafa sýnt umheiminum að stjórn ísraels rekur
útþenslustefnu en ekki friðarstefnu," sagði Hafez al-Assad, forseti
Sýrlands, í sjónvarpsávarpi. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra Isra-
els, ítrekaði á miðvikudag að ísraelar myndu aldrei láta af hendi
nein landsvæði. Auknar líkur eru taldar á því að framhaldsviðræður
deiluaðila hefjist á þriðjudag eftir mikið áróðurstríð að undanförnu.
Israelskir hermenn hafa haldið
uppi útgöngubanni í sex daga á
svæði á Vesturbakkanum þar sem
um 50.000 Palestínumenn búa, þar
á meðal borgina Ramallah og er
þetta gert vegna morðs á landnema
úr röðum gyðinga sl. sunnudag.
Talsmenn stjórnvalda sögðu að
Moshe Arens varnarmálaráðherra
væri hlynntur því að varðstöð sem
herinn setti á laggirnar á svæðinu
yrði breytt í landnemabyggð.
Bandaríkjamenn reyna nú að
finna lausn á deilunni um fundar-
tíma sem allir geta sætt sig við.
Stjórnmálaskýrendur telja nú aukn-
ar líkur á að viðræðurnar hefjist á
þriðjudag og talsmenn Palestínu-
manna létu í það skína i gær að
svo yrði. Fulltrúar araba segja að
ekki komi til greina að hefja viðræð-
urnar á mánudag og engin af sendi-
nefndum þeirra hefur heitið því að
vera í borginni þar til á þriðjudag.
Talsmenn araba í væntanlegum við-
ræðum í Washington hafa gagnrýnt
harðlega töfína sem verður vegna
afstöðu ísraela. „Þetta er beinlínis
móðgun við umheiminn og þá sem
standa fyrir þessari ráðstefnu,”
sagði Hanan Ashrawi, talsmaður
Palestínumanna. „Israelar sýndu
ekki einu sinni þá kurteisi að senda
fulltrúa til að biðjast afsökunar á
fjarvistinni”.
Benjamin Netanyahau, aðstoðar-
utanríkisráðherra Israels, sem er í
Washington, vísaði gagnrýninni á
bug og sagði að öllum hefði verið
ljóst að ísraelsku fulltrúarnir myndu
ekki koma fyrr en á mánudag.
Hann virtist þó slaka nokkuð til er
hann sagði stjórn sína reiðubúna
að ræða öll efnisatriði í Washington
en áður hafa ísraelar sagt að ein-
göngu ætti að Ijalla um vinnureglur
viðræðnanna þar. Raunverulegar
friðarviðræður ættu hins vegar að
fara fram einhvers staðar nær vett-
vangi deilumálanna, helst til skiptis
í ísrael og arabalöndunum.
-------» ♦ «---------
■ VARSJÁ - Pólska þingið
kaus lögfræðinginn Jan Olszewski
sem forsætisráðherra landsins í
gær, daginn eftir að Lech Walesa
forseti hafði útnefnt hann til starfs-
ins. Hlaut Olszewski 250 atkvæði
en mótatkvæði voru 47 og 107 þing-
menn tóku ekki afstöðu. Eftir kjör-
ið sagði Olszewski að horfur í efna-
hagsmálum landsins væru dökkar
og væri breytinga til batnaðar ekki
að vænta í bráð. Miklu fremur yrði
þjóðin að búa sig undir frekari
þrengingar.
■ PEKING - Kínverski stúd-
entaleiðtoginn Li Minqi var dreginn
fyrir rétt í gær og sakaðaur um
undirróðursstarfsemi. Hann var
handtekinn 4.. júní í fyrra vegna
ræðu sem hann hélt kvöldið áður í
háskólanum í Peking í tilefni þess
að þá var ár liðið frá því kínverski
alþýðuherinn braut grimmilega á
bak aftur friðsamleg mótmæli stúd-
enta á Torgi hins himneska friðar
í Peking.
VANDA
KÁPUR
ÚLPUR
JAKKAR
PILS
BUXUR
SKYRTUR
PEYSUR
mm
NATTKJOLA
SLOPPAR
NÆRFÖT
SLÆÐUR
HANSKAR
TREFLAR