Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991 57 Sagnir um Steinahelli Eftirfarandi sagnir um Steina- helli eru skráðar af Jóni Sigurðs- syni frá Steinum, Einari Guðmunds- syni og Þórði Tóinassyni frá Skóg- um. „Einu sinni kom Skúli hrepps- stjóri á Grund Þorvarðarson prests nú (1863) að Prrestbakka á Síðu, verandi í Holti hjá föður sínum, austan fyrir ósinn ríðandi í tungls- ljósi, hjarni og léttangri, og reið hann léttan. En er hann kom á móts við steininn fyrir framan hell- isdyrnar stendur hesturinn alt í einu kyrr, svo hann kemur honum ekki feti framar. En er hann fer að knýja hann, stendur hann upp á apturfót- unum með frýsi og ólátum, en Skúli, sem er einhuga og kappsfullur, vildi víst ekki láta undan, en alt kom það fyrir eitt. Svo gekk hann vestur eptir götunni, skoðaði og skimaði í allar áttir, en sá ekkert; sneri síðan austur og upp fyrir heliinn og fór fyrir ofan hann. Frá þessu heyrði eg hann sjálfan segja.” Feigðardraumur „Veturinn 1901 dreymdi Jón Eyjófsson frá Moldnúpi eftirfarandi draum sem þótti fyrirboði þess að Björgólfur fórst á uppstigningardag um vorið og með honum 27 manns. Honum fannst hann vera staddur í Steinaheili, en þar var þingstaður Eyfellinga. Þótti honum Páll sýslu- maður Briem vera að þinga þar. Virtist honum vera margt fólk sam- an komið, konur og karlar. Borð hafði verið fært í hellinn og bekk- skrifli eins og jafnan, er þingað var. Ekki sá hann aðra hluti inni. Þótti honum vera heldur en ekki völlur á sýslumanni og hefði hann dæmt til dauða stóran hóp karla og kvenna, er þar stóð. Jón þóttist skynja, hver væru í hópnum. Þau voru flest Austur-Eyfellingar. Loks þóttist hann sjá, er höfuðin tóku að ijúka af bolunum ... Bjóst Jón við, að líflátsdómar sýslumanns boðuðu feigð karla þeirra og kvenna, er stefnt hafði verið í hell- inn.” Undirgöng „Frá Steinahelli lágu göng austur að vestasta bænum í Steinum. Bak við stofukrókinn í þeim bæ var op- inn brunnur, innanbæjar, og lágu tröppur niður að vatninu. Þann brunn mátti aldrei byrgja, slæm fénaðarhöld, jafnvel mannraunir, voru ella í vændum. Huldufólk sótti vatn í hann og sá til þess, að hann yrði engum að meini. Kálfur slapp austur í ranghalann í Steinahelli og kom upp um brunninn.” Viðgerð á Steinahelli „Magnús Jónsson frá Eystri- Skógum bjó nokkur ár í Steinum um 1890. Hann fékk Sveinbjöm Sveinsson á Rauðafelli til að stækka Steinahelli og lét vinnumann sinn, Pál Pálsson, hjálpa honum. Á leið- inni út í helli sagði Sveinbjörn: „Við skulum fara okkur hægt í dag, ég ætla að sjá til, hvað mig dreymir í nótt.” Páll spurði, hvort hann væri vanur að haga svo verk- um, er líkt stæði á, og kvað hann svo vera. Þeir mjötluðu lítið úr berg- inu um daginn. Um nóttina gengu Sveinbirni draumar í vil, var hanr glaður í bragði og vann ósleitileg; með meitla sína og klöppu dagim eftir.” Lesendur og gagnrýnendur eru sammála A BOKALISTA DV (3/12) Nákvæm, ýtarleg, samfelld, gegnheil... afar vel skrifuð bók, textinn skipulegur og mikið lagt í stílinn... áhugaverð, fróðleg, skemmtileg ...en fyrst og fremst ærleg, virðingarverð, heiðarleg." Erlendur Jónsson, Morgunblaðið Endurminningar sem eru í senn einlægar og hlýjar. Ingólfur Margeirsson heldur hér vel og skipulega utan um mikið efni. Samstarf þeirra hefur fætt af sér skemmtilega og ljúfa frásögn sem vísar lesandanum beint inn f í hjarta Árna Tryggvasonar." Elías Snæiand Jónsson, DV ÆVISAGAN ORN OG ORLYGUR Sí&umúli 11 - 108 Reykjavík - Sími: 684866 KOLA PORTIÐ -og þú færðlíka meira fyrir peningana þínai OPIB: Laugardag ÍPá kl. 10-16 og sunnudag Ipá kl. 11-17. f vis ' kinova han
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.