Morgunblaðið - 07.12.1991, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
Nýju vagnarnir eru svipaðir strætisvögnum SVR.
Hagvirki kaupir fimmtán
Scania-strætisvagna
FYRIRTÆKIÐ Hagvirki - Klettur hf. hefur undirritað samning við
ísarn hf. um kaup á fimmtán nýjum Scania-strætisvögnum. Vagnarn-
ir munu frá 1. júní nk. aka á leiðum innan Hafnarfjarðar, Garðabæj-
ar, Kópavogs og Álftaness svo og á milli Hafnarfjarðar og Reykjavík-
ur. Vagnarnir verða afhentir í maí.
Kveikt á
Oslóartrénu
KVEIKT verður á jólatrénu á
Austurvelli á morgun, sunnu-
dag, klukkan 16. _ Leif Nybö,
varaborgarstjóri Oslóar, mun
afhenda Reykvíkingum jólatréð
sem er gjöf frá Oslóarbúum.
Magnús L. Sveinsson, forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur,
veitir trénu viðtöku.
Óslóarbúar gáfu Reykvíkingum
fyrsta jólatréð fyrir 40 árum eða
árið 1951. Þá tendraði Marie Ell-
ingsen ljósin á jólatrénu, en að
þessu sinni kveikir sonur hennar,
Othar Ellingsen, forstjóri, Ijósin á
trénu.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á
Austurvelli fyrir athöfnina og lýk-
ur henni með því að Dómkórinn
syngur jólasálma. Þá taka jóla-
sveinarnir við og skemmta yngstu
borgurunum undir stjórn Aska-
sleikis.
Að sögn Gísla Friðjónssonar,
framkvæmdastjóra Hagvagna hf.,
en það er heitið á fyrirtækinu sem
sjá mun um rekstur vagnanna, eru
vagnarnir svipaðir þeim sem Stræt-
isvagnar Reykjavíkur nota af Scan-
ia-gerð en rauðir að lit. Vagnarnir
eru gerðir fyrir 75 til 80 farþega
en munu taka um 40 manns í sæti.
Verð vagnanna fékkst ekki upp
gefið.
VEÐUR
Heimild: Veðurstota Islands
(Byggt á treðurspá kl. 16.15 i gær)
I DAG kl. 12.00
VEÐURHORFUR I DAG, 7. DESEMBER
YFIRLIT: Við vesturströnd Grænlands er víðáttumikil 950 mb lægð
sem þokast norður en á sunnanverðu Grænlandshafi mun mynd-
ast iægð í nótt og mun hún hreyfast í norðausturátt. í fyrstu verð-
ur hlýtt um allt land en í fyrramálið tekur að kólna, fyrst vestanlands.
SPÁ: Suðvestanátt með slyddu- eða snjóéljum um landið vestan-
vert en nokkuð bjart eystra. Smám saman kólnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestan- og vestanátt. Snjókoma og
éljagangur um landið vestanvert en þurrt og nokkuð bjart veður
eystra. Víðast verður vægt frost.
HORFUR Á MÁNUDAG: Sunnanátt og hlýnandi veður. Rigning eða
slydda um landið sunnan- og vestanvert en sennilega þurrt norð-
austanlands.
Svarsímí Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* r *
r * r * Slydda
f * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
EE Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
pj' Þrumuveður
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltí veður Akureyri 9 skýjað Reykjavík 8 rigningogsúld
Bergen 1 léttskýjað
Helsinki -t-9 léttskýjað
Kaupmannahöfn 6 skýjað
Narssarssuaq 5 úrk. í grennd
Nuuk 5
Ósió 3 léttskýjað
Stokkhólmur 1 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Algarve 17 alskýjað
Amsterdam 4 heiðskírt
Barcelona 11 léttskýjað
Berlín 1 alskýjað
Chlcago *14 léttskýjað
Feneyjar heiðskírt
Frankfurt 2 léttskýjað
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 3 skúrásíð. klst.
London 7 mistur
Los Angeles vantar
Lúxemborg 1 skýjað
Madríd 11 skýjað
Malaga vantar
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal vantar
NewYork 2 alskýjað
Orlando vantar
París 2 heiðskírt
Madeira 18 rign.ásíð. klst.
Róm 11 heiðskírt
V(n 2 skýjað
Washington vantar
Winnipeg vantar
Forsætisráðuneytið:
Guðmundur Benedikts-
son lætur af störfum
ráðuneytisstj óra
GUÐMUNDUR Benediktsson
lætur af störfum ráðuneytis-
stjóra í forsætisráðuneytinu eftir
27 ára starf í ráðuneytinu í jan-
úar 1992. Mun hann áfram vinna
sérstök verkefni á vegum ráðu-
neytisins.
Guðmundur starfaði sem mála-
flutningsmaður þangað til hann hóf
störf í dómsmálaráðuneytinu í byij-
un ársins 1962. Dómsmálaráðherra
var þá Bjarni Benediktsson og flutt-
ist Guðmundur með honum yfir í
forsætisráðuneytið. Hann varð
ráðuneytisstjóri 1. janúar árið 1970
þegar forsætis- og menntamála-
ráðuneyti var skipt í tvö ráðuneyti.
Jafnframt því embætti hefur hann
gegnt störfum ritara ríkisráðs ís-
lands.
Aðspurður sagði Guðmundur að
engar stórbreytingar hefðu orðið í
ráðuneytinu frá því hann hóf þar
störf. Þær væru kannski of litlar
og ástæða til að nýir menn kæmu
inn. Hann sagðist hafa orðið 67 ára
í sumar og gæti hætt störfum þar
sem hann væri kominn á svokallaða
95 ára reglú. Engu að síður myndi
hann halda áfram að starfa að sér-
verkefnum í ráðuneytinu.
Guðmundur Benediktsson
Embætti ráðuneytisstjóra hefur
verið auglýst til umsóknar og stend-
ur umsóknarfrestur til 27. desem-
ber 1991.
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra:
Sala Búnaðarbankans
verði vel undirbúin
HALLDÓR Blöndal, landbúnað-
arráðherra og fyrrverandi
Iðntæknistofnun:
22 sóttu um
forstjóra-
stöðuna
UMSÓKNARFRESTUR um
stöðu forstjóra Iðntækni-
stofnunar er runninn út. AIls
sóttu 22 um stöðuna, en ekki
verður uppgefinn listi yfir um-
sækjendur, þar sem stjórn
stofnunarinnar hafði lofað að
farið yrði með umsóknir sem
trúnaðarmál.
Stjórnin mun nú ákveða hverj-
um hún mælir með og mun nafn
þess umsækjanda verða kunngert
í upphafi næstu viku. Fráfarandi
forstjóri, Páll Kr. Pálsson, sem
tekið hefur við framkvæmdastjó-
rastöðu hjá Vífilfelli hf., lét af
störfum sem forstjóri Iðntækni-
stofnunar hinn 1. desember.
bankaráðsmaður í Búnaðar-
bankanum, segist telja eðlilegt
að rekstrarformi bankans verði
breytt með því að hefja sölu
hlutabréfa í bankanum en segist
leggja áherslu á að sú breyting
verði vel undirbúin.
„Það er í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar að selja ríkisbank-
ana. Ég tel eðlilegt að breyta
rekstrarformi Búnaðarbankans og
ýmissa annarra ríkisstofnana, en
hef lagt mjög ríka áherslu á að
það mál verði vel undirbúið og vel
að því staðið. Það vita allir að
Búnaðarbankinn er sterk og vel
rekin stofnun, svo ég vænti þess
að margir muni vilja ávaxta fé
sitt með því að gerast hluthafar í
bankanum. Ég hef góðar minning-
ar af samstarfi mínu við banka-
stjóra Búnaðarbankans og starfs-
fólk,” sagði Halldór. Hann var
inntur álits á þeim ummælum fjár-
málaráðherra á morgunverðar-
fundi Verslunarráðsins á fimmtu-
dag að bjóða ætti almenningi Bún-
aðarbankann á hálfvirði. Halldór
sagðist ekki hafa heyrt þau um-
mæli og gæti því ekki tjáð sig um
þau.
Athugasemd að
gefnu tilefni
Vegna þess sem fram kom í
grein Sigurðar Helgasonar í
Morgunblaðinu í gær, fimmtudag,
þar sem gefið var í skyn að Björn
Bjarnason, stjórnarformaður AI-
menna bókafélagsins hf., hefði
verið leystur undan persónulegum
ábyrgðum af Eimskipafélagi ís-
lands hf., skal eftirfarandi tekið
fram:
Stjórnarformaður félagsins
hefur aldrei verið og er ekki, frek-
ar en aðrir stjórnarmenn Almenna
bókafélagsins hf., í persónulegum
ábyrgðum fyrir skuldum þess.
Óli Björn Kárason, fram-
kvæmdastjóri Álmenna
bókafélagsins hf.
Athugasemd
Undirritaðir tilsjónarmenn Al-
menna bókafélagsins hf. á
greiðslustöðvunartímabili þess
vilja taka fram eftirfarandi vegna
greinar Sigurðar Helgasonar:
Ekkert það hefur komið fram
sem sýnir að stjórnarformaður
Almenna bókafélagsins hf. eða
aðrir stjórnarmenn þess hafi tek-
ist á hendur ábyrgðir fyrir skuld-
um félágsins.
Pétur Guðmundarson,
hæstaréttarlögmaður.
Heimir Haraldsson, löggilt-
ur endurskoðandi.
►
>
i
i
í
i
i