Morgunblaðið - 07.12.1991, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
9
Teg. 674. 100 - 120 - 140 og 160 cm breið. Verð frá kr. 30.900 m/dýnu stgr.
Teg. 596. 80 - 90 - 140 og 160 cm breið. Verð frá kr. 24.700 stgr.
Teg. 661. 90 og 100 cm breið. Verð frá kr. 28.200 m/dýnu stgr.
DICO® járnrúm
Mikið úrval í breiddum og litum
Vönduð og varanleg jóíagjöf
Visa - Euro raðgreidslur
OPIÐ í DAG Tll KL. 18.00
SUNNUDAG FRÁ KL. 14.00-16.00
□BHBBEl
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFMARFIRÐI SÍMI54I00
Breskir draumar sem
brugðust
Margt bendir til þess að á leiðtogafundi
Evrópubandalagsins (EB) sem hefst í
Maastricht á mánudag náist samkomu-
lag um að koma á mynteiningu fyrir alda-
mótin og stóraukið pólitískt samstarf
aðildarríkjanna. John Major, forsætisráð-
herra Bretlands, reynir þó að hindra að
í fyrirhuguðum breytingum á Rómarsátt-
málanum verði lögð drög að ríkjabanda-
lagi á borð við Bandaríkin og Margaret
Thatcher, fyrrum forsætisráðherra, berst
ákaft gegn frekari samruna. En ekki eru
heldur allir Evrópusinnar í Bretlandi
ánægðir með þróun mála frá því að land-
ið gekk í EB í ársbyrjun 1973 og blaðið
The Sunday Times fjallar um brostna
drauma í forystugrein sinni í síðasta
mánuði.
Fögnr fyrir-
heit
„Það var ekki ætlunin
að þetta yrði með þessum
hætti,” segir í greininni.
„Þegar Bretar loksins
gengu í Evrópubandalag-
ið fyrir tveim áratugurn
var það stofnun sem
hafði einsett sér að láta
gott af sér leiða i heimin-
um og hét því að virða
margbreytileika þjóða og
emstakra svæða í banda-
laginu. Auk efnahags-
legra raka fyrir aðild var
bent á að ríki eins og
Bretland, meðalstórt,
fyrrverandi nýiendu-
veldi, gæti að svo komnu
máli helst haft áhrif á
heimsmálin og gætt
hagsmuna shma á al-
þjóðavettvangi með því
að styðjast við smneigin-
legan mátt EB-þjóðanna.
Fólk gerði sér grein fyrir
því að samráð aðildar-
rikjanna gagnvart mikil-
vægum heimsmálum
myndi verða æ viðtæk-
ara, einnig að svo gæti
farið að sameiginlegar
varnir myndu einhvern
tima komast á dagskrá.
Jafnframt vissu menn að
setja yrði vissar, sameig-
inlegar reglur er giltu í
öllum bandalagsríkjun-
um ef takast ætti að
koma á raunhæfum og
réttlátum markaðsvið-
skiptum milli rikjanna.
En engimi sá fyrir að
okkur yrði í sífellt ríkari
mæli stjómað frá Bmss-
el, að framkvæmdastjórn
EB myndi reyna að
skipta sér af hveiju smá-
atriði í daglegu lífi fólks
undir fölskum formerkj-
um „samræmingarinnar”
og jafnframt að samning-
ur EB um neytendamál,
sem var ein af helstu
undirstöðmn Rómarsátt-
rnálans mcð áherslu sinni
á fijálst markaðskerfi,
yrði mistúlkaður til að
hægt yrði að nota liaim
til að þjóna hagsmunum
ýmissa einokunarsam-
taka, bænda jafnt sem
tölvuframleiðenda. Því
miður er þetta það sem
gerst hefur. Evrópska til-
raunin mikla er koniin á
villigötur.”
Evrópsk barn-
fóstra
„Undir stjóm Jacques
Delors hefur fram-
kvæmdastjónún orðið
tröllsleg, evrópsk bam-
fóstra, hún gripur inn í
rás viðburða hvenær sem
henni þóknast og lætur
takmarkanir á valdsviði
sínu í sáttmálum banda-
lagsins sig engu skipta.
Bmssel-valdið spýr
stanslaust upp úr sér fyr-
irmælum er vai'ða hvert
einasta svið lífs okkar,
reynt er að banna fólki
að borða ristað kom með
rækjubragði og reynt að
skilgreina gulrætur sem
ávexti (til að koma skikk-
an á reglugerð um sultu-
gerð).
Fáránleikhm vex með
degi hverjum. Nú er til
reglugerð þai- sem fjallað
er um evrópskan staðal
fyrir „læknisfræðilegan
varnarbúnað” og er þar
úrskurðað að allir
smokkar skuli vera sex
þumlungar að lengd,
óteygðir, og þvermálið
rúmir tveir þumlungar
(það olli fiirðu að ítalir
lögðu til lægi-i tölur).
Aðrar reglur em þess
eðlis að þær geta valdið
vemlegu efnaliagslegu
tjóni, dregið úr mögu-
leikum fyrirtiekja til
samkeppni. Fram-
kvæmdastjórnhi hefur
(að áeggjan fulltrúa
Grikkja sem er sósíalisti)
lagt fram 48 tillögur sem
liafa að markmiði að
samræma viimulöggjöf
og hljóti þær samþykki
verður öll vinna unglinga
bönnuð (blaðsölubörn
yrðu úr söguimi) og sama
er að segja um vinnu á
sunnudöguni (þ. á m.
verslun um helgar), auk
þess er um að ræða aðrar
tillögur um takmörkun á
því hvernig fólk hagi
starfstíma sínum ...
Bruðl, spilling,
hræsni
Flestar vonir okkar
hafa bmgðist. Sameigin-
lega landbúnaðarstefnan
(CAP) er sem fyrr sví-
virða andspænis þeiin
hugmyndum sem ætlunin
var að bandalagið ynni
að á alþjóðavettvangi,
dælt er milljörðum punda
í niðurgreiðslur og styrki
til frandeiðslu á mat sem
væri mun ódýrara að
kaupa á alþjóðlegum
mörkuðum, um leið em
möguleikar þriðjalieims-
landa á matvælaútflutn-
ingi skertir. Meðaltals-
ái'sstyrkurinn á hveija
bandalagskú er hærri en
meðalárstekjur fjöl-
skyldu í þriðja tieiminum.
CAP er orðið að samheiti
fyrir bmðl, spillingu og
liræsni__
Hefði bandalaginu
verið falið að bregðast
við inrn’ás Saddams
Hussehis í Kúveit væri
íraski einræðisheiTann
ennþá í Kúveit (og ef til
vill eimiig í Saudi-Arab-
íu). A meðan skotið er
af serbneskum fallbyss-
um á Dubrovnik, ómetan-
legan evrópskan Qársjóð,
lætur bandalagið sér fátt
um finnast en eyðir í
staðinn orku sinni í að
fjalla um bragðið af rist,-
uðu komi og stærð
smokka. Það var ekki
ætlunin að þetta yrði með
þessum hætti.”
Háir vextir á verðbréfamarkaði
Opið í Kringlunni í dag á milli kl. 10 og 16.
Við bjóðum mikið úrval verðbréfa með háum vöxtum.
Lilja Sigurðardóttir viðskiptafræðingur verður í Kringlunni
með upplýsingar og ráðgjöf.
Húsbréf...............8,2 - 8,4%
Sparisklrteini........7,9-8,0%
Féfangsbréf...........10,0%
Kj arabréf............8,4%*
Markbréf..............8,9%*
Tekjubréf.............8,4%*
Skyndibréf............6,2%*
Skuldabréf traustra
bæjarsjóða............9,2 - 9,8%
Erlend verðbréf. Mikið úrval hlutabréfa.
* Ávöxtun miðast, við sl. 3 mánuði.
VERÐBRÉFAMARKAÐU R
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700