Morgunblaðið - 07.12.1991, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAÚGARDAGÚR 7. DESEMBER 1991
Sýning á ljóðum
List og hðnnun
Bragi Asgeirsson
Ein er sú nýjung á Kjarvals-
stöðum sem marga hefur glatt,
og það eru sýningar þær í ljóðum
í eystri gangi, sem byrjuðu með
Jóni úr Vör.
Þetta er ekki aðeins skemmti-
leg tilbreyting og upplífgandi
viðbót á staðnum, heldur á fram-
kvæmdin fullan rétt á sér í hús-
inu. Fyrir hið fyrsta er mrgt
skylt með uppsetningu ljóðs og
myndverks, því að það hefur sína
mörkuðu byggingu og hrynjandi
í línuskipan, og þá er leikur að
orðum og störfum í sjálfu sér
einnig myndræn athöfn, svo sem
menn hljóta að hafa orðið varir
við í núlistum á myndlistarvett-
vangi. Þá hafa ljóð ákveðið flæði,
sum eru mjúk og ávö! en önnur
hörð og miskunnarlaus, þar sem
allt orðskrúð og allri óþarfa orðg-
nótt og málamiðlunum er varpað
fyrir róða.
Það má alveg halda því fram
að andstæðurnar „geometria —
informel”, eða formleg — óform-
leg tjáning, eigi jafnt við í ljóðl-
ist og myndlist, og hvað ritlistina
áhrærir eru einkenni sumra rit-
höfunda kliðmjúkt og tært mál,
sem eins og streymir fram, líkt
og kristalstær bergvatnsá, langt
ofan úr fjöllunum, svo sem sjá
Stefan Zweig, en aðra einkennir
hart, kantað og meitlað mál og
kemur þá strax upp í hugann
Marcel Proust.
Sá sem hefur reikað um Pére
Lachaise kirkjugarðinn í París,
hefur vafalítið rekist á leiði Pro-
ust, sem er flatur svartur, kaldur
og gijótharður marmari og eitt-
hvað svo miskunnarlaus og óbif-
anlegur í hinu ferhyrnda aflanga
flatarmálsformi sínu. Það hefur
og verið sagt, að leiðið minni á
skáldskap listamannsins, sem
var meitlaður og harður og hafði
yfir sér svip meinlætis? En það
var öðru fremur áskapað mein-
læti en sjálfviljugt, sem rekja
mátti til illkynjaðs ofnæmissjúk-
dóms, og svo gekk hann einnig
hin síðustu ár Sín með annan
sjúkdóm, er nefnist víst „afasía”,
sem skilgreinir skort á orðminni,
er gerði það að verkum að hann
var þrisvar sinnum lengur en
aðrir að hamra saman eitt orð
og eina setningu, en þegar það
hafði tekist var hún þrisvar sinn-
um betur rituð en flest annað á
franskri tungu í samtímanum!
Minnir þetta annars ekki dálít-
ið á höggmyndlist?
Ofanskráð vona ég að bregði
upp ljósi á skyldleika myndlistar
og ritaðs máls, hvorutveggja í
bundnu sem óbundnu máli, er
hér má einnig nálgast skyldleik-
ann frá öðrum hliðum og njóta
þá tilstyrk heimspeki og goða-
fræði, en það læt ég öðrum um,
enda er það ekki minn heimavöll-
ur.
— Það eru ljóð Þóraríns Eld-
járns, sem nú og fram til 8.
desember prýða eystri gang
Kjarvalsstaða og eru tilefni þess-
ara útlistana. Þetta eru viturlegt
framhald, því að þeir báðir Jón
úr Vör og Þórarinn eru orðhagir
menn en um leið sleppir öllum
skyldleika, því að þegar Jón er
alvörugefið, hjartprútt skáld al-
þýðunnar, einkennir Þórarinn
eins konar glaðhlakkaleg hæðni
Þórarinn Eldjárn
og óvænt kímni með ádeilubroddi
í bland.
Uppsetning ljóðanna hefur
tekist ve! og jafnvel betur en
fyrra skiptið, því nú er kominn
nokkur reynsla af framkvæmd-
inni, þannig að skoðandinn á
hægara með að nálgast ljóð Þór-
arins.
Hér er að mínu viti á ferð
snjöll lausn til að koma ljóðinu
á framfæri til almennings og
þótt menn lesi ekki nema eitt
eða tvö ljóð getur það haft dijúga
þýðingu. Sjálfur ætlaði ég í
fyrstu einnig að hlaupa yfir ljóð
Jóns og þarnæst Þórarins og
koma svo aftur, en mál þróuðust
svo í báðum tilvikum að ég las
þau öll, og sum margsinnis, mér
til sannrar ánægju og sálartetr-
inu til kraftbirtingar.
— Svo blessunarlega getur
þetta þróast og að lokum ber
einungis að þakka fyrir sig.
Hljómdiskur með tónlist
eftir Lárus H. Grímsson
ÚT ER kominn hjá íslenskri
tónverkamiðstöð hljómdiskur
með tónlist eftir Lárus H.
Grímsson.
Á diski Lárusar eni 7 raftón-
verk frá tímabilinu 1986—1990
og eru 5 þeirra samin fyrir leikhús
og kvikmyndir. Verkin á diskinum
eru þessi: Amalgam frá árinu
1986, samið við samnefndan bal-
lett Hlífar Svavarsdóttur, The
Tempest, samið fyrir sýningu
Þjóðleikhússins á leikriti Sha-
kespeares árið 1989; Kiss of the
Spiderwoman var samið fyrir sýn-
ingu Alþýðuleikhússins á Könguló-
arkonunni árið 1988. By the Skin
of my Teeth er frá árinu 1987 og
var samið sérstaklega fyrir sem-
balleikarann Þóru Johansen. Verk-
ið var frumflutt af Þóru í júní
1987 á Festival of Modern Music
í Middelburg. Le Voeu eða Galdur-
inn er samið fyrir franska upp-
færslu á Galdra-Lofti eftir Jóhann
Siguijónsson og Hótel Þingvellir
er nokkurskonar forleikur að sam-
nefndu leikriti Sigurðar Pálssonar,
sem sýnt var í Borgarleikhúsinu
árið 1990. Vetrarrómantík frá ár-
unum 1982—83 er tileinkað
bernskuslóðum höfundar norður í
landi en einnig „kulda og stórhríð-
um, skafrenningi, harðfenni og
hláku; skuggum, myrkri og draug-
Lárus H. Grímsson
um ...” eins og segir í bæklingi.
Hljómdiskinum fylgir bækling-
ur á þremur tungumálum, ís-
lensku, ensku og þýsku. Textinn
í bæklingnum er skrifaður af Rík-
harði Erni Pálssyni.
Myndverk á forsíðu gerði Erl-
ingur Páll Ingvarsson, myndlistar-
maður.
■ IÐUNN hefur endurútgefið
tvær fyrstu Ævintýrabækurnar
eftir Enid Blyton, Ævintýraeyj-
una og Ævintýrahöllina í nýjum
búningi. I kynningu útgefenda seg-
ir m.a.: „Ævintýrabækurnar eru
tvímælalaust vinsælasti bókaflokk-
urinn sem Enid Blyton hefur skrifað
enda kannast allir við páfagaukinn
Kíki og krakkana Jonna, Önnu,
Finn og Dísu. Bækur Enid Blyton
hafa skemmt íslenskum börnum á
áratugi. Auk Ævintýrabókanna má
nefna Fimmbækurnar, Dularfullu
bækurnar, Ráðgátubækurnar og
Leynifélagsbækurnar.” Það var
Sigríður Thorlacius sem þýddi
þessar tvær bækur sem nú koma út.
" Hann var sko ekki eðlilegur". Ég sá þab eins og skot..."
(Saxi læknir um Þórhall Sigurðsson ungan)
Maðurinn á bak við þúsund andlitin
Fáir hafa kitlab hláturtaugar landsmanna jafn rækilega og
Þórhallur Sigurbsson, sem bregbur sér betur en nokkur annar í
allra kvikinda líki. Nú hefur annar spéfugl, Þráinn Bertelsson,
sem kunnur er af gamansömum kvikmyndum sínum og
útvarpsþáttum, sett saman bók um feril Ladda frá upphafi til
þessa dags.
Þessi bók á eflaust eftir ab koma mörgum í gott skap, en hún á
líka eftir að koma mörgum á óvart. Þráinn gægist nefnilega
undir skelina á listamanninum og Laddi segir hispurslaust frá lífi
sínu, - höröum heimi skemmtanabransans og Ijúfa lífinu í
kringum hann, uppvexti sínum, fjölskyldu, vonum, sigrum og
vonbrigðum.
Hver er maöurinn með þúsund andlitin? Hver er þessi feimni
Hafnfirðingur, sem á svo auövelt með að koma öllum
landsmönnum til a veltast um af hlátri? Hvernig stóð á því ab
upprennandi húsgagnasmiður varð vinsælasti skemmtikraftur
þjóðarinnar? Þráinn skrifar um Ladda á einlægan og opinskáan
hátt og lesendurfá að kynnast Þórhalli Sigurðssyni, manninum
sjálfum bak við öll gervin.
r
0** hf'
LIF OG SAGA
Su&urlandsbraut 20 sími: 91 -689938