Morgunblaðið - 07.12.1991, Qupperneq 23
MORGJJNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
23
íslensk menntastefna -
mikilvægi grunnmenntunar
eftir Sigrúnu
Gísladóttur
Allir virðast sammála um gildi
menntunar fyrir einstaklinginn og
þjóðfélagið sem heild. Þegar horfst
er í augu við staðreyndir og hverju
þarf að kosta til þess að íslenski
grunnskólinn standi jafnfætis skól-
um annarra þjóða, þ.e. lenging dag-
legs viðverutíma (og skólaársins)
einsetinn skóli, fækkun nemenda í
bekkjum, þá er einfaldlega sagt:
stopp, — þessu höfum við ekki efni
á. Skólinn er þar að auki gjörsam-
lega úr takti við þjóðfélagið. Áður
voru mæðurnar heima og sinntu
börnum og búi. Nú þegar konurnar
eru farnar út á vinnumarkaðinn
hefur enginn tekið að sér þeirra
fyrri störf heima fyrir. Alltof mörg
íslensk börn eru vannærð. Ekki í
hefðbundnum skilningi þess orðs
heldur eru þau vannærð vegna
skorts á mannlegum samskiptum
við foreldra sína eða aðra ábyrga
uppalendur. Börnin umgangast
mest önnur böm og er þá nema von
að orðaforðinn og málskilningurinn
sé rýr. Þáttur mannlegra samskipta
við börnin er vanræktur — sem þó
er svo mikilvægur fyrir þroska og
vellíðan hvers einstaklings.
Mikið er rætt og ritað um stöðu
íslands í stöðugt opnara og hindr-
unarlausara samfélagi Evrópuþjóð-
anna. I því samhengi hefur m.a.
komið fram að þjóð eins og Danir
eyða 50% meira fjármagni á hvern
grunnskólanemanda en gert er á
Islandi.
Lítum á nokkrar staðreyndir.
Skólaárið á íslandi er mun styttra
en erlendis. Daglegur vinnutími
barnanna í skólanum, sérstaklega
yngri barnanna, er mun styttri.
Launakostnaður er minni aðallega
vegna lágra kennaralauna hér á
landi. Fyrri hluti dagsins er besti
tíminn til náms. En hvað gerum við
í tvísettum skóla, sem hvergi þekk-
ist nema á íslandi. Mörg börn „fá”
fyrst að mæta í skólann eftir há-
degi, þá farin að þreytast og sum
orðin leið á því að bíða ein heima
allan morguninn. Og heimavinna
sem við verðum að byggja á vegna
hins takmarkaða skólatíma, hvenær
og hvernig á að sinna henni?
Óreglulegur háttatími er þekkt
og séríslenskt fyrirbrigði eins og
tvísetningin. Augljóst er að tvísetn-
ing ýtir undir að börn seu vakandi
fram eftir öllu. Þeim foreldrum sem
„ Alltof mörg íslensk
börn eru vannærð. Ekki
í hefðbundnum skilningi
þess orðs heldur eru þau
vannærð vegna skorts á
mannlegum samskiptum
við foreldra sína eða
aðra ábyrga uppalend-
ur. Börnin umgangast
mest önnur börn og er
þá nema von að orða-
forðinn og málskilning-
urinn sé rýr.”
verða að fara til vinnu snemma
morguns hentar betur að barnið
sofT'frameftir.
í umræðum um skólamál er.
minnt á að við kennum þó allar
námsgreinar eins og tíðkast erlend-
is. Hið rétta er að við tæpum á
þessu öllu án þess að geta gert
námsefninu viðhlítandi skil vegna
þess hve tíminn er naumt skammt-
aður. Enginn þarf að velkjast í vafa
um árangur af slíku sýndar-
mennsku skólahaldi.
Kostnaður við menntamálin hef-
ur þanist út á síðustu áratugum
eins og aðrir þættir ríkisgeirans.
Þegar betur er að gáð kemur í ljós
að það er framhaldsskólastigið sem
hefur þanist út og af því leiðir mikla
kostnaðaraukningu fyrir ríkið.
Staðreyndin er sú hvað grunnskól-
ann varðar að þar hefur verið niður-
skurður. Tvisvar hafa ráðherrar
fækkað vikustundaíjölda grunn-
skólanemenda í sparnaðarskyni.
Ný grunnskólalög hafa tekið
í umræðunni um stöðu íslands í samfélagi Evrópuþjóða hefur komið fram að t.d. Danir eyða 50%
meira fjármagni á hvern grunnskólanemanda, en gert er á íslandi.
Sigrún Gísladóttir
gildi. Þau kveða á um að stefna að
einsettum skóla, lengdum dagleg-
um skólatíma og fækkun nemenda
í bekkjum yngstu árganganna.
Hvaða fregnir berast nú úr ráðu-
neyti menntamála? Endurskoða beri
þessi ákvæði laganna með það fyrir
augum að fresta gildistöku þeirra.
Á sama tíma undirbúa ráðamenn
ísl. þjóðarinnar markvisst nánara
samband og samkeppni við Evrópu-
ríkin. Þau sömu ríki sem hafa skiln-
ing á gildi grunnmenntunar þegna
sinna sem síðar framhaldsskólinn
og skóli lífsins byggir á.
Ljóst er að hér höldum við uppi
menntastefnu sem við höfum engan
veginn efni á þegar til framtíðar
er litið. Svo tala menn um að byggja
handboltahöll, gera rándýra búvör-
usamninga sem þjóðin hefur engin
efni á, gera samninga um jarð-
gangagerð sem þjóðin hefur heldur
engin efni á. Hver er forgangsröð-
unin — eðaöllu heldur hvar er skyn-
semin í þessu öllu saman?
Höfundur er skólastjóri í
Garðabæ.
RATTAN-húsgagnalínan frá Cerda á Spáni hefur tryggt sér sess í Evrópu og
Bandaríkjunum fyrir að vera ein fjölbreyttasta RATTAN-línan sem völ er á og
tvímælalaust með hagstæðast verð miðað við gæði. Hjá CERDA er hægt að
velja um 13 viðarliti ásamt miklu úrvali áklæða.
3ja sæta + 2 stólar 219.800,- stgr. - Sófaborð 21.420,- stgr.
Hliðarborð 19.440,- stgr. - Borðlampi 23.310,- stgr. - Barborð 42.120',- stgr. -
Barstóll 11.520,- stgr.
I I
JUBITER 3ja sæta sófi + 2 stólar 224.800,- stgr.
Lincoln House sófasettin eru ein sígildasta sófasettalínan með
tauáklæði sem framleidd eru í dag.
Þessi húsgagnalína er frá Viktoríutímabilinu og er hún oft kölluð
rómantíska línan. Lincoln House býður upp á gluggatjöld og
veggfóður í stíl við áklæðið.
ROEDEAN - 3ja sæta + 2 stólar kr. 178.900,- stgr.
CHESTERFIELD-sófasett með ekta hand-
verkuðu antikleðri frá stærsta leðurhús-
gagnaframleiðanda Bretlands, Pendragon,
tryggir ekki bara lægsta verðið heldur líka
mestu gæðin.
3ja sæta sófi + 2 lágir stólar kr. 197.800,- stgr.
Stakur 3ja sæta kr. 88.900,- stgr.
Stakur 2ja sæta kr. 72.900,- stgr.
Master Wing hábak kr. 59.850,- stgr.
OPIÐ LAUGARDAG
HU SGAGNAVERSLUN,
Síðumúla 20 - sími 688799.