Morgunblaðið - 07.12.1991, Síða 34
imH MaaMagau .t >iuoauíiaouaj uiUAjanuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
Upplýsingamiðstöð ferða-
mála lokað næsta sumar
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ ferðamála verður lokað 1. júní næstkom-
andi. Astæða þess er að Reykjavíkurborg' hefur nýverið tekið þá
ákvörðun að hætta þátttöku í rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferða-
mála frá og með 1. júní 1992, en Upplýsingamiðstöðin hefur verið
fjármögnuð af Ferðamálaráði að helming, Ferðamálasamtökum
landshlutanna að 25% og Reykjavíkurborg að 25% allt frá stofnun
hennar árið 1987.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
Ferðamálaráði íslands hefur verið
reynt að fá nýja aðila til að taka
að sér hlut borgarinnar, en þær til-
raunir hafa ekki borið árangur.
Ekki er fyrirsjáanlegt að Ferða-
málaráð hafi fjárhagslegt bolmagn
til að auka framlag sitt, þar sem
frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1992
gerir ráð fyrir að ráðið fái sömu
krónutölu til ráðstöfunnar og á yfir-
standandi ári, en það er um 40%
þeirra fjármuna, sem ákvæði eru
um í landslögum.
Þess vegna verður Upplýsinga-
miðstöð ferðamála lokað frá og með
1. júní 1992, en reynt verður að
sinna ákveðnum verkefnum á skrif-
stofu Ferðamálaráðs eftir þann
tíma. Þeir munu þá sjá um almenna
upplýsingasöfnun, útgáfu handbók-
ar, bæklingadreifingu, ráðgjöf ofl.
Æviminningar Er-
lendar Einarssonar
Morgunblaöið/Árni Sæberg
Frá vinstri: Jón Trausti Harðarson, verkstjóri filmudeildar Odda, Isleifur Jakobsson prentari,
Hörður Daníelsson ljósmyndari og Kristín Þorkelsdóttir hönnuður.
Dagatal AUK komið út
Ný prenttækni notuð í fyrsta skipti
DAGATAL auglýsingastofunn-
ar AUK hf. er komið út í þriðja
sinn og nefnist það Af ljósakri
’92. Myndirnar tók Hörður
Daníelsson og yfirumsjón með
útlitshönnun hafði Kristín Þor-
kelsdóttir. Prentsmiðjan Oddi
annaðist prentun með nýrri
tækni sem eykur dýpt mynd-
anna. Þetta er í fyrsta sinn sem
þessari prenttækni er beitt hér
á landi.
í dagatalinu eru tólf myndir frá
Reykjanesi, Snæfellsnesi, Fells-
strönd, Holtavörðuheiði, Strönd-
um og Hrútafirði. Textinn er á
íslensku, ensku, þýsku og frönsku
og inngang ritar ljósmyndarinn,
Hörður Daníelsson.
Myndirnar eru prentaðar í fjór-
lit og síðan lakkaðar tvisvar sinn-
um. Matt lakk fór á dökka fleti
myndarinnar en glanslakk á ljósu
fletina. Við þetta skerpast and-
stæður ljóss og skugga í myndun-
um, dýpt þeirra eykst og séð frá
vissum sjónarhornum verka þær
á áhorfandann líkt og þvívíð
mynd. „Þetta er algjör nýjung hér
á landi. Oddi vann verkð og gerði
tilraunir með þessa aðferð. Þeir
gerðu einar sex prufur og þetta
er unnið eins og sexlita prentun
en ekki fjögurralita,” sagði Krist-
ín.
LjÓSAKRÍ
4K&.
fiti.es or rnr. uoht • vou uchtmksh ■ ou chamc oe iwuiexe «ú*oo« oaMushox
Af ljósakri ’92.
Erlendur Einarsson
Kjartan Stefánsson
Oddgeir Kristjánsson
A kápu umslags er mynd sem
Sverrir Haraldsson listmálari teikn-
aði á sínum tíma fyrir forsíðu Odd-
geirs, Vor við sæinn.
Undurfagra ævintýr — lög
Oddgeirs Kristjánssonar
UNDURFAGRA ævintýr, útgáfa
á hljómplötum, diskum og tón-
böndum með lögum Oddgeirs
Kristjánssonar er komin út, 26
lög Oddgeirs í um 40 útsetning-
um.
í fréttatilkynningu segir að mörg
laga Oddgeirs Kristjánssonar hafi
verið sívirtsæl hjá þjóðinni síðan
1930, en sum laga Oddgeirs sé
verið að flytja í fyrsta sinn með
þessari útgáfu sem tengd er 80 ára
afmælisári Oddgeirsj sem lést að-
eins 54 ára gamall.
Til fjáröflunar fyrir útgáfuna er
m.a. safnað hjá velunnurum laga
Oddgeirs í Eyjum og á fastalandinu
og með sölu hljómplötunnar sem
Skífan dreifír. Einnig er platan boð-
in til sölu í hveiju húsi í Vestmanna-
eyjum.
Jón Sigurðsson tónlistarmaður
hefur útsett 9 lög fyrir útgáfuna
og Ellert Karlsson fyrir lúðrasveit.
Sjö einsöngvarar syngja á plötunni,
þau Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór
Pálsson, Jóhann Sigurðarson, Guð-
mundur Jónsson, Kristinn Sig-
mundsson, Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir og Þorgeir Andrésson. Þá
syngja Dómkórinn, Karlakór
Reykjavíkur og Fóstbræður og stór-
sveit lúðrasveita og Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leika.
FRÓÐI hf. hefur gefið út bókina
Staðið í ströngu, æviminningar
Erlendar Einarssonar eftir
Kjartan Stefánsson.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í bókinni staðið í ströngu rekur
Erlendur Einarsson ævi- og starfs-
feril sinn. Hann kynntist samvinnu-
hreyfingunni þegar á unga aldri og
hóf starfsferil sinn þar sem innan-
búðarmaður í kaupfélaginu í Vík í
Mýrdal. Leiðin lá síðan í Samvinnu-
skólann en að námi þar loknu gerð-
ist Erlendur starfsmaður Lands-
banka íslands og hugðist leggja
bankastörf fyrir sig. En margt fer
öðruvísi en ætlað er. í bókinni seg-
ir Erlendur frá kynnum sínum af
Vilhjálmi Þór og hvernig hann olli
straumhvörfum í lífi Erlendar. Vil-
Mótettukór Hallgrímskirkju.
hjálmur fékk hann til þess að setja
Samvinnutryggingar á stofn og
taka að sér stjórn þess fyrirtækis
en þaðan lá leið Erlendar síðan í
forstjórastól Sambands íslenskra
samvinnufélaga árið 1954. Var Er-
lendur síðan forstjóri þessa um-
fangsmikla fyrirtækis fram til árs-
ins 1987.
Þá gremir Erlendur einnig frá
óvæntum uppákomum undir lok
starfsferils síns og kemur þar m.a.
bæði hið umtalaða kaffimál við
sögu, svo og átök um eftirmann
hans hjá Sambandinu.”
Staðið í ströngu er 384 blaðsíð-
ur. Bókin er prentunnin hjá G. Ben
prentstofu, en kápuhönnun annað-
ist auglýsingastofan Nýr Dagur.
Aðventutónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju heldur sína árlegu aðventutónleika
sunnudaginn 8. desember nk. kl. 17.00 og verða tónleikarnir í Hall-
grímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Sú hefð hefur skapast
hjá kórnum að halda tónleika á aðventunni sem er sá timi ársins þeg-
ar kirkjan undirbýr komu frelsarans.
Að þessu sinni hefur Mótettukór
Hallgrímskirkju valið að bera á borð
nokkrar af tónlistarperlum endur-
reisnarinnar. Þær bera vitni um
blómaskeið kirkjutónlistar sem hófst
á Ítalíu um aldamótin 1500 og
breiddist út norður álfuna og allt til
Bretlandseyja.
Tónlistin sem kórinn flytur eru
aðventu- og jólamótettur, flestar frá
16. öld eftir tónskáld eins og Victor-
ia, Habler, Eccard, Palestrina og
Tallis. Mótetta (kórverk án undir-
leiks) var notuð til að leggja áherslu
á efni ritningarinnar, hún dvaldi við
orðin og ítrekaði mikilvægi þeirra.
Textarnir og meðferð þeirra er mjög
mismunandi, allt frá rólegri íhugun,
jafnvel dulúð, yfir í fögnuð og lof-
gjörðarsöng.
Umgjörðin er fornt latneskt and-
stef, Veni, veni Emmanuel (kom þú,
kom vor Immanúel) og mótetturnar
tengjast annars vegar boðun Maríu
Guðsmóður og lofsöng hennar sem
er mjög algengur efniviður í aðvent-
umótettunum, þó boðunardagur
hennar sé haldinn hátíðlegur á fös-
tunni. Hins vegar tengist efni tón-
leikanna hinum ýmsu guðspjöllum
aðventunnar, s.s. innreiðinni í Jerú-
salem, sem er stef fyrsta sunnudags
í aðventu jafnt og pálmasunnudags:
Konungurinn kemur, „Gjör dyrnar
breiðar, hliðið hátt”. Sagan er rakin
allt til jóla og tónleikarnir enda á
þekktri mótettu eftir Sweelinck
Hodie Christus natus est (í dag er
Kristur fæddur).
(Frcttatilkynning)
■ EIGENDASKIPTI hafa orðið
á Snyrtivöruversluninni,
Garðabæ. Rósa Halldórsdóttir
snyrtifræðingur hefur nú tekið við
versluninni. Rósa er búin að reka
snyrtistofu í sama húsi í 4 ár. Auk
Rósu í afgreiðslu og á snyrtistofu
eru Birna Sveinsdóttir snyrtifræð-
ingur og Helga Bergmann snyrti-
fræðingur. Breytingar hafa verið
gerðar á versluninni og lögð verður
áhersla a faglega ráðgjöf og góða
þjónustu. Boðið eru upp á alla snyrt-
ingu og mikið úrval af snyrtivörum.
Birna, Rósa og Helga í Snyrti-
vöruversluninni, Garðabæ.