Morgunblaðið - 07.12.1991, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 07.12.1991, Qupperneq 38
*%8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER A! 1991 Réttarhöldin í máli Williams Kennedys Smiths: Verjendur reyna að draga framburð konunnar í efa West Palm Beach. Reuter, The Daily Telegraph. VITNALEIÐSLUR I réttarhöldunum yfir William Kennedy Smith standa nú yfir í Palm Beach á Florida en þrítug kona hefur kært hann fyrir nauðgun. Smith er náfrændi Edwards Kennedys öldungar- deildarþingmanns og hefur málið vakið gífurlega athygli. í fyrradag svaraði konan þrítuga spurningum Roys Blacks, veijanda Smiths, í tíu klukkustundir og braust hún oftsinnis í grát þegar hún svaraði hinum væðgarlausu spumingum vetjandans. Gerði dóm- arinn tvívegis hlé á réttarhöldunum meðan hún var að jafna sig þrátt fyrir beiðnir hennar um „ljúka þessu sem fyrst”. Leitaðist Black við að finna ósamræmi í frásögn konunnar og gera lítið úr þeim framburði hennar að Smith hefði fyrirvaralaust ráðist á hana þar sem hún gekk í tungl- skininu fyrir utan hús Kennedy- ættarinnar. Konan segir árásin hafa átt sér stað eftir að hún sá hann afklæðast og stinga sér til sunds í sjónum. Hún hefði þá orðið ótta- slegin og ætlað að flýja af vett- vangi en Smith elt hana uppi og skellt henni niður á jörðina. „Það eina sem ég veit er að hann felldi mig, dró upp kjólinn minn, færði mig úr nærbuxunum og nauðgaði mér,” sagði konan. Eitt vafaatriðanna í réttarhöld- unum er hvar hún fór úr svörtum Givenchy-sokkabuxum sínum og skóm sem hún segist hafa klæðst þegar hún hélt til Kennedy-heimilis- ins með Smith í sportbíl sakborn- ingsins. Fatnaðurinn fannst síðar í bílnum sem hún hafði lagt fyrir utan húsið. Black hefur bent á að í yfirheyrslum hjá lögreglunni eftir hina meintu nauðgun hafí konan ekki munað hvar hún fór úr þeim en sagt að líklega hefði hún farið úr þeim í bílnum ef þau ætluðu niður á ströndina. Hún endurtók í fyrradag að hún væri ekki viss hvar hún fór úr þeim. I lögregluyfir- heyrslunni sagði hún einnig að það var ekki fyrr en inn í húsið var komið sem Smith stakk upp á því að þau færu niður á strönd að synda. Aðspurð um hvort hún hefði farið úr sokkabuxunum af einhverri annarri ástæðu sagði hún: „Eg veit ekki um neina”. Ákærandinn Moira Lasch sýndi í gær kviðdómnum kjól þann og nærfatnað sem konan klæddist kvöldið sem hún segir Smith hafa nauðgað sér. Voru sokkabuxurnar fullar af götum. „Ég tel þær hafi verið tættar í sundur,” sagði Bar- bara Carabello, sérfræðingur í rétt- arlæknisfræði á skrifstofu lögreglu- stjórans í Palm Beach, við réttar- höldin í gær. Hún sagði einnig að sæði hefði fundist í svörtum nær- fatnaði konunnar og á einum stað á veislukjól hennar. Þetta sannaði að samræði hefði átt sér stað en ekki hvort það hefði verið með sam- þykki konunnar. í svörum Carabello við spurning- um Blacks, veijanda Smiths, kom fram að hún hefði fundið korn sem líktust sandi nálægt rennilási kjóls- ins. Hið meinta fórnarlamb hefur áður sagt að hún hafi gengið með Smith um ströndina en aldrei lagst né sest niður. Carabello sagði einn- ig að engir áverkar væru á bijósta- haldara konunnar en því hefur Black haldið mjög á lofti til að sanna sakleysi Smiths. Hún bætti því hins vegar við að það væri mjög sjald- gæft í nauðgunarmálum að bijósta- haldarar yrðu fyrir skemmdum. Reuter Barbara Carabello (t.h.), sérfræðingur í réttarlæknisfræði, rannsakar sokkabuxur ákæranda í nauðgunar- málinu en Moira Lasch dómari fylgist með. Maxwell-spilaborgin hrunin: Gífurlegar skuldir og grun- semdir imi stórkostlegt misferli London. Reuter. RÉTTUM mánuði eftir að Robert Maxwell fannst látinn í sjónum við Kanaríeyjar var kveðinn upp dauðadómur yfir öllu hans mikla fjármála- og fyrirtækjaveldi. Það kiknaði undan skuldunum og fjölskylda hans gafst upp þegar í ljós kom, að skömmu fyrir dauða sinn hafði hann „tekið að láni” tugmilljarða ISK hjá lífeyrissjóðum ýmissa fyrirtækja, sem hann átti hlut í, og síðan selt tryggingai- þær er hann hafði lagt fram vegna þeirra lána. Æra Maxwells þykir ekki lengur mikils virði og eru orð eins og „glæpamaður” á margra vörum. Að kröfu sona Maxwells, Kevins og lans, var skipaður sérstakur fjárhaldsmaður með einkafyrir- tækjum fjölskyldunnar en skuldir þeirra eru áætlaðar um 150 millj- arðar ÍSK. Kemur það í hans hlut að annast sölu á hlutum hennar í öðrum fyrirtækjum, meirihluta- eign í Mirror-dagblaðasamsteyp- unni og Maxwell-útgáfufyrirtæk- inu, og alls konar ítök önnur, meðal annars í knattspyrnufélög- um og rannsóknarfyrirtækjum. Fjármálasérfræðingar efast hins vegar um, að söluandvirðið hrökkvi fyrir skuldunum, sem eru að miklú leyti til komnar vegna kaupa Maxwells á bandarískum fyrirtækjum, þar á meðal dagblað- inu New York Daily News og út- gáfufyrirtækinu Macmillan. Fjársvikadeild bresku lögregl- unnar er nú að kanna hvað varð um tugmilljarða ÍSK sem Maxw- ell flutti úr lífeyrissjóðum ýmissa fyrirtækja, sem hann átti stóran hlut í, um 42 milljarða frá Mirror- samsteypunni einni, en talið er, að féð hafi verið notað til að grynnka á skuldum einkafyrir- tækja Maxwells. Dagblaðið The Financial Times sagði í gær, að synir Maxwells, hefðu einnig stað- ið að þessari „lántöku” hjá lífeyris- sjóðunum og væri raunar ekki víst, að hún hefði verið ólögleg. Daily Mirror, sjálft flaggskip Maxwells í fjölmiðlaheiminum, er hins vegar ekki í neinum vafa um lögmæti eða ólögmæti fjármagns- flutninganna. „Lygin” var risastór fyrirsögn á forsíðu blaðsins í gær en þar sagði, að Maxwell hefði logið að fjármálastjóra blaðsins þegar hann vildi vita hvað orðið hefði um féð. Þá sagði dagblaðið Sun, helsti keppinautur Daily Mirror, að Maxwell hefði einfald- lega verið „glæpamaður”. „Aumingjaskapur bankanna” Fjármálaumsvif Maxwells hafa lengi þótt mjög vafasöm og í skýrslu, sem breska stjórnin lét gera 1972, er komist að þeirri nið- urstöðu, að hann sé ófær um stjórna almenningshlutafélagi. Ekkert frekar var þó aðhafst en Owen Stable, lögfræðingur, sem átti þátt í skýrslugerðinni, sagði í gær, að „aumingjaskap bank- anna” væri um að kenna hvemig komið væri. Það verður heldur ekki létt verk eða löðurmannlegt að greiða úr Maxwell-gjaldþrotinu. Hann átti meira eða minna í yfir 400 fyrirtækjum og auk þess er vitað um sjóðsstofnanir erlendis, sem stjórnað var frá Gíbraltar og Liechtenstein. Uppi eru hugmyndir um, að starfsfólk á Daily Mirror kaupi hlut Maxwell-íjölskyldunnar í blaðinu en New York Daily News hefur fengið greiðslustöðvun í von um, að hún forði því frá „Maxw- ell-skriðunni”. Þá var jafnvel talið, að gærdagurinn yrði síðasti út- gáfudagur vikublaðsins The European, sem er að öllu leyti í eigu Maxwell-fjölskyldunnar, nema kaupandi fyndist að því. í gær var skýrt frá því, að hluta- bréf Macmillan-útgáfufyrirtækis- ins í Berlitz-málaskólunum væru horfin en til hefur staðið að selja þau japanska útgáfufyrirtækinu Fukutake Publishing. Er verið að rannsakað það mál. Leiðtogafundurinn í Maastricht; Delors segist telja frest vera betri en slæmt samkomulagi Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. ÝMISLEGT þykir nú benda til að ríkisstjórnarráðstefnur Evrópu- bandalagsins (EB) um breytingar á sáttmálum þess verði ekki leidd- ar til lykta í Maastricht í næstu viku eins og staðið hefur til frá því til þeirra var boðað. John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að hann hygðist tryggja að ákvæði um að stefnt væri að myndun „bandaríkja” yrði fellt niður í þeim breytingum sem gerðar verða á Rómarsáttmálanum, stofnskrá EB. ERLENT Le Pen í Bretlandi: Heimsóknin veldur fiaðrafoki I.omlon. Rpuíi>r. London. Reuter. ÞRIGGJA daga heimsókn Jean-Marie Le Pens, leiðtoga franska hægriöfgaflokksins Þjóðarfylkingarinnar, hefur valdið miklu fjaðra- foki í Bretlandi. Hafa stjórnmálamenn úr öllum flokkum keppst við að fordæma skoðanir hans. Meginstefnumál Þjóðarfylkingarinnar er andstaða við innflytjendur og benda skoðanakannanir í Frakk- landi til að flokkurinn hafi vcrulega aukið fylgi sitt að undanförnu. Dagblaðið The Times hafði í for- ystugrein skömmu fyrir heimsókn Le Pen látið í Ijós ótta um að hann ætlaði að reyna að koma á tengslum við skoðanabræður sína í Bretlandi. Le Pen sagði hins vegar að helsta markmið heimsóknarinnar væri að halda fund þingflokks hægriöfga- manna á Evrópuþinginu en enginn Breti er á meðal þeirra. Fjöldi mótmælenda safnaðist saman fyrir utan hótelið þar sem Le Pen hélt blaðamannafundinn og hafði lögreglan mikinn viðbúnað vegna þessa. Mótmælendurnir sögðust einnig ætla að safnast sam- an um kvöldið en þá snæddi Le Pen kvöldverð í boði „Stofnunarinnar um vestræn gildi”. Ekkert varð úr fyrirhugaðri heimsókn Le Pens til Bretlands fyr- ir fimm árum vegna mótmæla stjórnmálamanna og samtaka gyð- inga. Ráðherrar fordæmdu hins vegar harðlega skoðanir hans og sagði Kenneth Baker innanríkisráð- herra að besta leiðin til að takast á við „eitraðar” hugmyndir hans væri að Ieiða þær fram í dagsljósið og tortíma þeim. Major sagði að hinar aðildarþjóð- irnar vissu hver afstaða Breta væri. „Að sjálfsögðu verður samið um málin og ég geri ráð fyrir að það verði mikil orrahríð.” Þjóðveijar hafa lagt mikla áherslu á að eining náist um aukna samvinnu á stjórnmálasviðinu ekki síður en varðandi mynteiningu og jafnvel hótað að undirrita ekki sam- komulag um breyttan sáttmála ef það gangi ekki eftir. Danir hafa sett það að skilyrði að samþykkt verði ákvæði um rétt aðildarríkis til að draga sig út úr mynt- og stjórnmálasamstarfinu sem stefnt er að, fari svo að tillaga þar að lútandi hljóti samþykki í þjóðarat- kvæði. Jacques Delors, forseti fram- kvæmdastjórnar EB, sagði í gær að breytingarnar myndu hafa í för með sér að bandaríki yrðu til hvert sem orðalagið yrði að þessu sinni. Á fundi með blaðamönnum í Bruss- el á fimmtudag sagði hann að betra væri að fresta niðurstöðum ráð- stefnanna en að komast að slæmu samkomulagi. Önnur tækifæri ættu eftir að gefast bæði í Lissabon og London á næsta ári. Delors varaði við því að Bretar einir yrðu gerðir að blórabögglum í samningaviðræð- unum um nánara samstarf aðildar- ríkjanna í peningamálum, utanríkis- málum og öryggis- og varnarmál- um. Delors sagði að deilur um lífs- kjarajöfnun væru ekki síður alvar- legar en ágreiningur við Breta vegna sameiginlegs gjaldmiðils, fé- lagslegra réttinda og sameiginlegr- ar varnarstefnu. Delors sagði Spán- veija, Portúgala og íra Ieggja mikla áherslu á að í Maastricht yrði raun- veruleg lífskjarajöfnun tryggð á milli hinna ríkari og fátækari íbúa bandalagsins. Hann benti jafnframt á að Danir hefðu ýmislegt við sam- eiginlega öryggis- og varnarstefnu að athuga ekki síður en Bretar. Delors kvaðst telja að sameigin- legum gjaldmiðli yrði komið á innan EB í síðasta lagi 1. janúar 1999. Flest benti til þess að árið 1996 yrði ár stækkunar og það væri þess vegna óráðlegt að fresta mörgum þáttum yfirstandandi umræðu fram undir það. Delors lagði áherslu á að aðildarríki bandalagsins stæðu frammi fyrir því að velja á milli breytinga sem þau kysu sjálf yfir sig og breytinga sem óumflýjanleg þróun þröngvaði upp á þau.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.