Morgunblaðið - 07.12.1991, Qupperneq 44
IMORQUNBLiAÐIÐ. LAOGARIMGDHT. DBSBMBHB *9BQ
M
Ollum tilboðum í eigur
þrotabús Istess hafnað
Farið verður í mál við Skretting vegna vangreidds hlutafjárframlags
LANDSBANKINN, sem er
stærsti kröfuhafi í þrotabú Istess
hf., hafnaði alfarið tveimur er-
Sýningu Krist-
jönu að ljúka
SYNINGU Kristjönu F. Arndal í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju lýkur á sunnudagskvöld.
Á sýningunni eru um 30 myndir,
mest olíumálverk. Þetta er 10. eink-
asýning Kristjönu, en hún hefur
einnig tekið þátt í fjölda samsýn-
inga bæði hér heima og erlendis.
Kristjana var bæjarlistamaður á
Akureyri á síðasta ári, 1990 og eru
verk á sýningunni meðal annars frá
þeim tima.
Sýningin verður opin í dag, laug-
ardag og á morgun, sunnudag frá
kl. 14 til 21.30.
------» ♦■■■<---
Ljósin kveikt
ájólatrénu
KVEIKT verður á jólatrénu frá
vinabæ Akureyrar, Kandes í Dan-
mörku, á Ráðhústorgi á morgun
laugardag.
Athöfnin hefst kl. 16 með því að
B-sveit Tónlistarskólans á Akureyri
leikur nokkur jólalög. Þá flytur ræð-
ismaður Dana á Akureyri, Sigurður
Jóhannesson, ávarp, en að því loknu
verða Ijós tendruð á jólatrénu.
Halldór Jónsson bæjarstjóri flytur
ávarp og kór Akureyrarkirkju syngur
jólalög, en að lokum koma jólasvein-
ar í heimsókn.
lendum tilboðum í verksmiðjuhús
og vélar þrotabúsins og að svo
stöddu hafnaði hann einnig til-
boði Laxár hf., sem stofnað var
eftir gjaldþrot Istess. Líklegt er
að Fóðurblandan hf. muni gera
tilboð í eignirnar eftir helgi og
er þess nú beðið.
Jóhannes Sigurðsson, bústjóri
þrotabús ístess hf., sagði eftir
skiptafundi í gær að málin skýrðust
í næstu viku, en menn væru að
bíða eftir tilboði í eignirnar frá
Fóðurblöndunni hf., en það er fyrir-
tæki á sama meiði og Laxá, þ.e.
framleiðir m.a. fóður til fískeldis.
Þijú tilboð bárust í eignir þrota-
búsins: Laxá, sem stofnað var síð-
astliðið sumar eftir gjaldþrot Istess,
bauð um 30 milijónir króna í verk-
smiðjuhús og vélar og Skretting
AS í Noregi bauð 58 miiljónir króna.
Tilboð Skretting var skilyrt að því
leyti að gerð var krafa um að van-
greitt hlutafjárframlag upp á 37
milljónir króna yrði fellt niður, en
Skretting var sem kunnugt er stór
hluthafi í ístess hf. Þá bauð finnskt
fyrirtæki, Soffco, 9 milijónir króna
í hluta af vélum þrotabúsins.
Landsbankinn sem er stærsti
kröfuhafínn í búið hafnaði alfarið
tilboðum erlendu aðilanna og tilboði
Laxármanna einnig að svo stöddu,
en fram hafið komið að Fóðurbland-
an hf. myndi gera tilboð í eignirn-
ar. Jóhannes sagði að menn ætluðu
að bíða eftir því tilboði áður en
nokkuð yrði ákveðið.
Ákveðið hefur verið að höfða mál
gegn Skretting AS í Noregi til að
innheimta vangreitt hlutafjárfram-
lag til Istess.
Kröfur í þrotabúið nema um 450
milljónum króna, en fyrirtækið á
útistandandi skuldir upp á rúmlega
í maí 1940 kom stríðið í Eyjafjörð. Nasistar urðu uggandi, kon-
ur fóru í ástandið og karlar í Bretavinnu. Hernámsliðið hóf
njósnaveiðar, kirkjuklukkur Akureyrarkirkju fengu nýtt hlutverk
og Bretar hnepptu Eyjafjörð í herfjötur. Á Dalvík leituðu her-
menn eftir óþekktri „laddí” og „fyrsta dauðsfallið” í styrjöldinni
á íslandi átti sér stað. Fyrir tilviljun tók stríðið land á Ólafsfirði
en á Siglufirði áttu Bretar óhæga vist. Nyrsta „herstöð” setu-
liðsins var í Grímsey. Þetta er sjónarsviðið sem Jón Hjaltason,
sagnfræðingur, hefur undir í þessari nýjustu bók sinni.
Athugið: 1. prentun uppseld frá forlaginu.
2. prentun komin í bókaverslanir.
200 milljónir króna. Þar er um að
ræða skuldir fiskeldistöðva, bæði í
Færeyjum og á íslandi. Ljóst er að
stór hluti af innlendu kröfunum
verður afskrifaður, en Jóhannes
sagði að ef til vill tækist að inn-
heimta eitthvað að skuldum Færey-
inga.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þijú skip komu með rúmlega 2.000 tonn í Krossanes í gær.
Þrjú skip með 2.000 tonn
af loðnu til Krossaness
„VIÐ vorum þrjá sólarhringa að og náðum þessu í 11 köstum, það
er alltof mikið. Við viljum fá þennan afla í 3 til 4 köstum,” sagði
Sigurður Kristjánsson, stýrimaður á Þórði Jónassyni EA, sem kom
inn með fullfermi til Krossaness í gær.
Þrjú skip komu með loðnu til
Krossaness í gær, samtals rúmlega
2.000 tonn. Þórður Jónasson EA
kom um hádegisbil með .715 tonn
eða fullfermi, Súlan EA kom
skömmu síðar með um 780 tonn
og Guðmundur Ólafur ÓF kom í
gærkvöld með um 600 tonn.
Þórður Jónasson EA var að veið-
um norður af Sléttu, skipið fór út
á mánudagsmorgun og kom inn til
löndunar um hádegi á föstudag.
„Við hefðum viljað vera fljótari að
ná þessu, veðrið á miðunum var
einstaklega gott, blíða allan tímann,
en loðnan er mjög dreifð. Menn
bíða eftir að hún þéttist, þá fer
þetta að ganga betur,” sagði Sig-
urður.
Hann sagði að verðið sem borgað
væri fyrir loðnuna nú væri svipað
og borgað var fyrir þremur ánjm.
„Eg veit ekki nákvæmlega hvað
þeir borga núna, en það er í kring-
um 4.500 krónur á tonnið, sem er
svipað og við fengum fyrir þremur
árum, en þá sigldum við með aflann
frá Sokksnesi. Ég held að fáir aðr-
ir en sjómenn myndu sætta sig við
kauplækkun.
Jóhann P. Anderssen, fram-
kvæmdastjóri Krossaness, var að
vonum ánægður og sagði að svo til
allt rými væri fullt eftir þessar þijár
landanir. Það tekur um fimm sólar-
hringa að vinna loðnuna í verk-
smiðjunni. Á þessari vertíð hafa um
3.800 tonn af loðnu borist til
Krossaness.
Eining fær verkfallsheimild:
Óánægja með seinaganginn
segir Sævar Frímannsson
STJÓRN og trúnaðarmannaráði
verkalýðsfélagsins Einingar hef-
ur verið veitt heitnild til verk-
fallsboðunar. Að undanförnu
hafa verið haldnir fundir í deild-
um félagsins og voru atkvæði
talin á síðasta fundinum sem
haldinn var í Ólafsfirði í fyrra-
kvöld og var niðurstaðan sú að
88% sögðu já við þeirri tillögu
að veita stjórn og trúnaðar-
mannaráði heimild til verkfalls-
boðunar.
Sævar Frímannsson formaður
Einingar sagði að á þeim fundum
sem haldnir hafa verið síðustu daga
hafí skýrt komið í ljós mikil óánægja
meðal félagsmanna með seinagang
í viðræðum um kjarasamning. Fólk
væri ósátt með hve illa gengi að
ræða um sérkröfur við atvinnurek-
endur og ekki væri annað á því að
heyra en það væri tilbúið að beita
öllum þeim ráðum sem tiltæk eru
til að fá hreyfingu í málið. Ef önn-
ur ráð duga ekki væri fólk tilbúið
að fara í verkfall.
„Það er ekki annað á fólki að
heyra, en nú sé ekki um annað að
ræða en taka á þessum málum eins
og við mögulega getum. Það er al-
menn óánægja með stöðuna eins
og hún er í dag, því hún er nákvæm-
lega sú sama og þegar byijað var
að reyna að fá viðræður við vinnu-
veitendur. Fólk er tilbúið til að
leggja nánast allt í sölurnar til að
fá hreyfingu á sérkjaraviðræðurn-
ar, jafnvel verkfall. Menn eru til-
búnir að fórna öllu til að koma þess-
um viðræðum af stað, fólk er sárt
og finnst atvinnurekendur draga
lappirnar í málinu og fara undan í
flæmingi,” sagði Sævar.
Heimild sú sem stjórn og trún-
aðarmannaráð Einingar hefur nú
fengið er almenn. Félagssvæði Ein-
ingar er allt Eyjafjarðarsvæðið og
eru félagsmenn, bæði aðal og auka-
félagar rúmlega fjögur þúsund.
Aðventukvöld í
báðum kirkjunum
AÐVENTUKVÖLD verða haldin
í Akureyrarkirkju og Glerár-
kirkju annað kvöld, sunnudags-
kvöldið 8. desember og hefjast
það kl. 20.30.
Efnisskráin í Glerárkirkju verður
blöncjuð tali og tónum, en ræðumað-
ur kvöldsins verður Tryggvi Gísla-
son skólameistari. Kór Glerárkirkju
Ieiðir almennan söng, undir stjórn
Akureyrarbær auglýsir
*“ deiliskipulag við Bugðusíðu
Uppdráttur er sýnir tillögu að deiliskipulagi svæðis, sem af-
markast af Austursíðu, Bugðusíðu, lóð Bjargs við Bugðu-
síðu, og fyrirhuguðu miðhverfi við Hlíðarbraut, liggur frammi
almenningi til sýnis á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar, Hafnar-
stræti 88b, næstu 5 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar,
þ.e. til föstudagsins 10. janúar 1992, þannig að þeir, sem
þess óska, geti kynnt sér tillöguna og gert athugasemdir
sþr. grein 4.4. í skipulagsreglugerð. í tilllögunni er gert ráð
fyrir að á svæðinu verði byggð tvö 7 hæða fjölbýlishús með
samtals 70 íbúðum.
Skipulagsstjóri Akureyrar.
Jóhanns Baldvinssonar, en með
kórnum leikur einnig strengjasveit
og Hólmfríður Benediktsdóttir
syngur einsöng.
Á aðventukvöldinu verður flutt
verkið Laudate Dominum eftir Moz-
art, en 200 ár voru liðin frá and-
láti hans 5. desember síðastliðinn.
1 lok dagskrárinnar verður ljósa-
hátíð þar sem lesnir verða ritningar-
lestrar og tendruð kertaljós, en
unglingar munu aðstoða.
Ræðumaður kvöldsins í Akur-
eyrarkirkju verður Jón Sigurðsson
iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Á
dagskrá verður einnig upplestur og
Kór Akureyrarkirkju syngur jóla
og aðventulög. Einsöngvari verður
Óskar Pétursson, en Gordon Jack
leikur á trompet. Hátíðinni lýkur
með ljósahátíð og helgistund í um-
sjá Æskulýðsfélags Akureyrar-
kirkju.
Akureyrarkirkja hefur jafnan
verið fullsetin á aðventukvöldunum
undanfarin ár, en slíkar kvöldstund-
ir í kirkjunni hafa þótt ómissandi
liður í jólaundirbúningnum.