Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 47
Aðventu-
kvöld í Sel-
fosskirkju
AÐVENTUKVÖLD verður haldið
í Selfosskirkju sunnudaginn 8.
desember og hefst það klukkan
20,30. í fréttatilkynningu frá séra
Sigurði Sigurðarsyni sóknarpresti
á Selfossi segir að aðventukvöldin
hafi jafnan verið haldin annan
sunnudag í aðventu sem nú og
finnist mörgum þau vera orðin
ómissandi þáttur í jólaundirbún-
ingnum.
I þetta sinn mun Margrét Frí-
mannsdóttir alþingismaður flytja
hugvekju. Kirkjukórinn og barnakór
kirkjunnar munu syngja undir stjórn
Glúms Gylfasonar, sem auk þess leik-
ur einleik á orgelið. Hópur úr æsku-
lýðsstarfí kirkjunnar mun kynna
starfið og syngja. Fermingarbörn
kynna íhugunarefni aðventunnar og
tendra ljós á aðventukransinum.
Eftir samkomuna býður kvenfélag
Selfosskirkju öllum samkomugestum
í kaffi og smákökur í safnaðarheimil-
inu. Þar bjóða þær líka til kaups
laufabrauð, sem þær hafa bakað og
handunninn jólavarning.
reer naaMaKaa .v HUOé.aaAO iAJ aiQAJunuöflOM t)i
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991 47
Emil íKattholti leiklesinn
Undirbúningur undir sýningar á bamaleikritinu Emil í Kattholti stand-
ur nú yfir í Þjóðleikhúsinu. Nokkur börn taka þátt í sýningunni en hér
að ofan má sjá þijú þeirra sem leika aðaHilutverkin, Emil og Idu.
Fremst á myndinni (f.v.) eru Sturla Sighvatsson 10 ára og Jóhann
Ari Lárusson 11 ára, sem ieika Emil, og Anita Briem 9 ára, sem leik-
ur ídu ásamt Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur 10 ára. Aftan við krakk-
ana standa Gísli Rúnar Jónsson, sem leikur Alfreð vinnumann, Bessi
Bjarnason, sem leikur pabba Emils og ídu, Margrét Guðmundsdóttir,
sem leikur mömmuna, og Margrét Kristín Pétursdóttir, sem leikur
Línu vinnukonu. Við val á leikurum var leitað til rúmlega 200 barna.
Reiknað er með að verkið verði frumsýnt um mánaðamótin janúar
og febrúar.
Jóladagskrá í
Hlaðvarpanum
JÓLADAGSKRÁ Hlaðvarpans,
sem jafnan hefur verið haldin
úti á laugardöguni í desember-
mánuði er hafin. I dag verður
dagskrá frá klukkan 14 og frain
eftir degi.
Dómkórinn syngur klukkan 14
og hálfri klukkstund síðar söng-
sveitin Jarþrúður. Klukkan 15 hefst
atriði dagskrár, sem heitir: Grýla
flengir óþekktarorma og klukkan
15,30 er kvennahljómsveitin „Hver
þekkir þær?” á dagkrá.
Listmarkaður Hlaðvarpans selur
vörur í umboðssölu og einnig hefur
verið opnaður sérstakur listmuna-
markaður í kjallara, þar sem 20
listamenn selja eigin handverk. Þá
er sérstakur bókamarkaður opinn í
dag með titla eftir höfunda, sem
gefa út verk á eigin vegum eða hjá
litlum forlögum. í Galleríi Hlað-
varpans er nú sýning á verkum
Guðmundar A. Jónssonar frá Hyrn-
ingstöðum í Reykhólasveit.
Grýla í Hlaðvarpanum.
Stjórnvöld styðja
kröfur gegn Líbýu
í SAMRÆMI við þá afstöðu, sem íslenzk sljórnvöld hafa til hvers
konar hryðjuverkastarfseini, styðja þau heilshugar þær kröfur, sem
Bretland og Baudaríkin hafa sett fram á hendur stjórnvöldum í
Líbýu og skora á þarlend stjórnvöld, að verða skilyrðislaust við
þeim, segir í frétt frá utanríkisráðuneytinu.
Þar segir ennfremur: „Eftir
umfagnsmiklar rannsóknir hafa
bandarísk og bresk stjórnvöld kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að hryðju-
verkamenn af líbýsku þjóðerni hafi
með samþykki stjórnvalda í Líbýu
valdið sprengingunni um borð í
þotu bandaríska flugfélagsins Pan
American, sem fórst yfir bænum
Lockerbie í Skotlandi í desember
1988 með þeim afleiðingum að 270
manns létust.
Með tilvísun til sönnunarganga
hafa stjórnvöld í Bretlandi og
Bandaríkjunum krafist þess að
stjórnvöld í Líbýu framselji hryðju-
verkamennina. Jafnframt hafa
stjórnvöld í Líbýu verið krafin um
skaðabætur og frekari upplýsingar
um málið.
Bandarísk og bresk stjórnvöld
hafa látið íslenskum stjórnvöldum
í té upplýsingar um þær rannsókn-
ir, sem kröfurnar á hendur líbýskum
stjómvöldum eru byggðar á.” Af
því tilefni hefur Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
ákveðið þá stuðningsyfirlýsingu,
sem getið er í upphafi fréttarinnar.
Morgunblaðiö/Uiðrik Jóhannsson
Búfræðikandítatarnir sem útskrifuðust ásamt Sveini Hallgrímssyni
skólastjóra,
Hvanneyri:
Útskrift á eftir áætl-
un vegna verkfalla
Hvannatúni í AndaktíS—^
VERKFOLL vorið 1989 oliu því
að nám og útskrift tíu búfræði-
kandídata frá búvísindadeild
Bændaskólans á Hvanneyri fór nú
fram 1. desember í stað hefðbund-
innar útskriftar á vorin.
í viðurvist fjölda gesta afhenti
Sveinn Hallgrímsson skólastjóri bú-
fræðikandidötum skírteini með stað-
festingu prófa og námsárangurs.
Sveinn taldi, að tæplega nógu marg-
ir búfræðikandidatar væru nú í fram-
haldsnámi; það sé mikilvægt að leið-
beinendur og starfsfólk í landbúnað-
inum sé vel menntað á tímum aukin-
ar kröfu neytenda um gæði landbún-
aðarafurða og hagstæðs verðlags.
Hann sagðist t.d. álíta að þörf sé á
einum eða tveimum sérfræðingum
til viðbótar í hrossarækt og undir-
strikaði hagkvæmni af návist Hag-
þjónustu landbúnaðarins til að sinna
síauknum kröfum um kennslu í bún-
aðarhagfræði.
Fulltrúar margra stofnana og
samtaka, s.s. Félag ísl. búfræði-
kandidata, Rannsóknastofnun land-
búnaðarins, Búnaðarfélag íslands,
Stofnlánadeild landbúnaðarins og
Landsamtök kúabænda afhentu við-
urkenningar fyrir bestan námsár-
angur í ýmsum greinum eða gjafír
til Bændaskólans. Sigríður Jónsdóttir
hlaut hæstu einkunn að þessu sinni
og flutti hún ávarp fyrir hönd útskrif-
aðra kandidata. - D.J.
Gísli H. Sigurðsson
Ólafur E. Friðriksson
Saga Gísla H. Sig-
urðssonar læknis
IÐUNN hefur gefið út bókina
Læknir á vígvelli - Störf Gísla
H. Sigurðssonar í hernumdu
Kúveit. Ólafur E. Friðriksson
skráði.
í kynningu útgáfunnar segir:
„Gísli H. Sigurðsson læknir segir
hér í fyrsta sinn ítarlega hina ein-
stæðu sögu af lífi sínu og Birnu
konu sinnar á dögum hernámsins í
Kúveit. Hann lýsir því hvernig það
var fyrir íslendinga að ganga að
daglegum störfum og sinna læknis-
skyldum undir stöðugri dauðaógn.
Bókin er mögnuð lýsing á því
fjarstæðukennda ástandi sem skap-
ast þegar þjóðfélag hættir nánast
að vera til — að minnsta kosti sem
siðmenntað samfélag — og lögmál
ofbeldis og villimennsku taka við.
Þegar Gísli og Birna reyndu að
komast til íslands urðu mörg ljón
á veginum. Sú saga hefur ekki öll
verið sögð fyrr en í þessari bók.”
Bókin er prentuð í Prentbæ hf.
Norræna húsið:
Fyrirlestur um Carl F.
Ifill og teikningar hans
GORAN Chnstenson, forstöðu-
maður Listasafnsins í Málmey,
heldur fyrirlestur um sænska
listmálarann Carl Fredrik Hill
og teikningar hans sunnudag-
inn 8. desember kl. 16 í fundar-
sal Norræna hússins.
Sýning á verkum listamannsins
hefur staðið yfir í sýningarsölum
Norræna hússins frá 9. nóvember
og lýkur sýningunni á sunnudag-
inn 8. desember.
Carl Fredrik Hill fæddist 1849
og lést 1911. Hann hlaut eftir
dauða sinn viðurkenningu sem
einn merkasti listamaður Svíþjóð-
ar.
Hann var samtímamaður m.a.
Edvards Munchs og Akseli Gallen-
Kallela. Carl Fredrik Hill telst einn
snjallasti landslagsmálari Svía.
(Fréttatilkynning)
Jólatónleikar
KÓR Fjölbrautarskólans í Ármúla
heldur jólatónleika í Laugarnes-
kirkju laugardaginn 7. desember.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17.
Á efnisskrá eru jólalög frá ýmsum
löndum og tímabilum. tjórnandi kórs-
ins er Rinaid Vilhjálmur Turner og
undirleikari David Knowles. Aðgang-
ur er ókeypis.
ísafjörður:
Gullsmiður
sýnir í
Slunkaríki
DÝRFINNA Torfadóttir gull-
smíðameistari opnar sýningu á
verkum sínum í Slunkaríki á
Isafirði í dag, laugardag, klukk-
an 16.00. Dýrfinna starfrækir nú
gullsmíðaverkstæði og verslun á
Isafirði en hún lauk námi í gull-
smíði 1979.
Á sýningunni, sem stendur til 23.
desember, verða skúlptúrar, brjóst-
nælur, hálsmen og aðrar handunnir
munir úr gulli, silfri og öðnim
málmum. í tveimur verkanna notar
hún hrosshár og fiskroð til mótvæg-
is við málminn.
Eitt af verkum Dýrfinnu á sýn-
ingunni.
DHL með
jólapakka-
þjónustu
FYRIR jólin gefa DHL hraðflutn-
ingar hf. fyrirtækjum og ein-
staklingum kost á sérstakri jóla-
pakkaþjónustu. Felst hún í hrað-
sendingu á jólapökkum til út-
landa á afsláttarverði.
DHL hraðflutningar hf. er hluti
af alþjóðlegu hraðflutninganeti
DHL sem byggist á eigin flugvélum,
sendibílum og vélhjólum auk ann-
arra hefðbundinna flutningatækja.
Skilafrestur á jólapökkum er til
16. desember.
(Fréttatilky iming)