Morgunblaðið - 07.12.1991, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
Aðventukvöld Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði
Fríkrikjan í Hafnarfirði.
AÐVENTUKVÖLD Fríkirkjunn-
ar í Hafnarfirði verður á morgun
sunnudag og hefst klukkan
20,30.
Stefán Júlíusson rithöfundur
flytur hugleiðingarorð kvöldsins,
lesin verður jólasaga og kór Öldut-
únskóla kemur fram og syngur
undir stjórn Egils Friðleifssonar.
Kirkjukórinn flytur sérhæft efni og
leiðir almennan söng undir stjórn
organistans, Kristjönu Þórdísar
Ásgeirsdóttur.
Samverustundinni lýkur svo með
því að tendurð verá kertaljós í kirkj-
unni og sunginn sálmurinn „Heims
um ból”. Allir eru velkomnir.
>
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Martial Nardeau, Guðrún S. Birgisdóttir
og Elín Guðmundsdóttir, hljóðfæraleikarar á aðventutónleikum
Laugarneskirkju.
Aðventutónleikar
í Laugarneskirkju
AÐVENTUTÓNLEIKAR verða haldnir í Laugarneskirkju þriðjudag-
inn 10. desember og hefjast þeir klukkan 20,30 og standa í um það
bil klukkustund. Aðgangseyrir er 700 krónur.
Flutt verða þtjú verk eftir J.S
Bach. Fyrst á efnisskrá er sónata
í e-moll fyrir flautu og fylgirödd,
þá ensk svíta í a-moll fyrir sembal
og að lokum G-dúr sónata fyrir
tvær flautur og fylgirödd.
Hljóðfæraleikarar verða Guðrún
S. Birgisdóttir og Martial Nardeau,
sem Ieika á barokkflautur, Elín
Guðmundsdóttir á sembal og Ólöf
Sesselja Óskarsdóttir á barokkselló
og gömbu.
Árnesingakórinn í Reykjavík.
J ólakaffitónleikar Árnesingakórsins
breytt. Einnig verða skemmtiatriði sumar.
og fram koma nokkrir einsöngvar- Söngstjóri kórsins er Sigurður
ar. Bragason og undirleikari er Bjarni
Kórinn hefur æft af miklum Jónatansson.
krafti frá þvf í haust Og býr SÍg (Fréttatilkynning)
undir utanlandsferð næstkomandi
Jólasýning Arbæjar-
safns opnar á morgnn
FRESTA varð opnun jólasýningar Árbæjarsafns 1. desember vegna
óveðurs, en þess í stað verður sýningin opnuð 8. desember kl. 13.
Þá munu gestir geta fylgst með laufabrauðsskurði og kertasteypu
í Árbænum, auk þess sem lesnar verða jólasögur á baðstofulofti og
sýnt hvernig jólatré áður fyrr voru vafin sortulyngi og skreytt.
Aðventumessa sr. Kristins Ág-
ústs Friðfinnssonar verður í gömlu
safnkirkjunni kl. 13.30 ogíPrófess-
orsbústaðnum frá Kleppi verða sýn-
ingar um jólahald fyrr á tímum,
smákökubakstur og jólaföndur.
Jólasýningin verður einnig opin
sunnudagana 15. og 22. desember
frá kh 13 til 17, en þá verða færri
atriði á dagskrá. Aðgangseyrir fyr-
ir fullorðna er kr. 258, en frítt er
inn á svæðið fyrir böm yngri en
16 ára. Gestir eru hvattir til að
mæta hlýlega klæddir og í jóla-
í Miðhúsi verður sýning á göml-
um jólakortum og jólakort prentuð,
en í Hábæ gefst gestum kostur á
að bragða á ljúffengu hangigkjöti.
í Dillonshúsi verður veitingsalan
opin og þeir sem kupa vilja kandís-
sykur og ýmsan jólavarning geta
brugðið sér í krambúðina.
Auk þessa verða íslenskir jóla-
sveinar á ferli og dansað verður í
kringum jólatréð kl. 14.30. Karl
Jónatansson leikur þá undir á harm-
óníku og tíu ára börn úr Ártúns-
skóla syngja jólalög.
Kjötkrókur á jólasýningu Árbæj-
arsafns 1991.
skapi til að njóta aðventunnar
með starfsfólki safnsins.
(Fréttatilkynning)
ÁRNESINGAKÓRINN í Reykja-
vík heldur jólakaffitónleika í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14,
Reykjavík, sunnudaginn 8. des-
ember kl. 15.00.
Lagaval tónleikanna er fjöl-
• Grafík
eftir
• Hauk Dór
• IngiEierg M.
• Jód Reykóal
• Karóiu L.
• Tolla
• m Hall
★ Málverk
eltir
• Atla Má
Opið laugardaga og sunnudaga fram að jólum
SIGTÚN110 - SÍMI 25054 SÉRVERSLUN MEÐ INNRÖMMUNARVÖRUR
★ Nýtt:
★ Speglar
★ eftir máli
★ Speglar
★ í rósóttum
★ rðmmum
★ Myndarammar
★ úi tié
★ m/rótarspnn
★ Álrammar,
★ 30 stærðir
PLAKATA-
SÝNING
laugardag frá kl. 10-18
og sunnudag
frá kl. 10-18