Morgunblaðið - 07.12.1991, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
60
JílEööur
á
morgun
_______
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Fimmtudag: Biblíulestur í safnaðar-
heimilinu kl. 21.00 og kvöldbænir í
kirkjunni að honum loknum. (Ath.
breyttan tíma.)
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Arna, Gunnar og Pálmi. Guðs-
þjónusta kl. 14. Einleikur á fagott.
Barna- og bjöllukór. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Dóm-
kórinn syngur. Organisti Marteinn
H. Friðriksson. Sr. Þórir Stephen-
sen. Barnastarf á sama tíma í safn-
aðarheimilinu í umsjá Báru Elías-
dóttur. Messa kl. 17. Sigurður Arn-
arson stud. theol prédikar. Kór Tón-
listarskólans í Reykjavík syngur við
messuna. Sr. Ingólfur Guðmunds-
son. Miðvikudag kl. 12.05: Hádegis-
bænir í kirkjunni. Léttur málsverður
á kirkjuloftinu á eftir. Miðvikudag kl.
13.30—16.30: Samvera aldraðra í
safnaðarheimilinu. Tekið í spil. Kaffi-
borð, söngur, spjall og helgistund.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11.6 ára börn og eldri og foreldr-
ar þeirra uppi. Yngri börnin niðri.
Messa kl. 14. Prestur sr.' Gylfi Jóns-
son. Organisti Árni Arinbjarnarson.
Fyrirbænir eftir messu og molasopi.
Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12.00.
Guðspjall dagsins:
Lúk. 21:
Teikn á sólu og tungli.
Orgelleikur í 10 mínútur. Fyrirbænir,
altarisganga og léttur hádegisverð-
ur. Kl. 14: Biblíulesturog kirkjukaffi.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
samvera kl. 10.00. Fjölskyldan í sorg
og missi. Sr. Bragi Skúlason. Messa
og barnasamkoma kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Aðventutónleikar
mótettukórs Hallgrímskirkju kl. 17.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Mið-
vikudag: Kyrrðarstund á aðventu kl.
21. Náttsöngur, orgelleikur, íhugun.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa kl.
10. Sr. Arngrímur Jónsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer
frá Suðurhlíðum um Hlíðarnar fyrir
barnaguðsþjónustuna. Hámessa kl.
14. Sr. Tómas Sveinsson. Aðventu-
tónleikar í kirkjunni kl. 21.00. Barrok-
tónlist fyrir trompet og orgel eftir
Vivaldi og Viviani. Einleikari á tromp-
et Einar Jónsson og orgel dr. Ort-
hulf Prunner. Mánudag: Biblíulestur
kl. 21.00. Kvöldbænir og fyrirbænir
eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups: Kl. 11 óskastund
barnanna. Söngur, sögur, fræðsla.
Guðsþjónusta kl. 14. Kór Langholts-
kirkju syngur. Einsöngur Þóra Ein-
arsdóttir. Organisti Jón Stefánsson.
Prestur sr. Ólöf Ólafsdóttir. Mola-
sopi að guðsþjónustu lokinni. Aftan-
söngur alla virka daga kl. 18 í umsjá
sr. Flóka Kristinssonar.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Barnastarf á sama tíma í
umsjá sr. Sigrúnar Óskarsdóttur.
Kór Fjölbrautaskólans við Ármúla
syngur. Fermingarbörn aðstoða. Sr.
Helgi Hróbjartsson prédikar. Ferm-
ingarbörn og foreldrar þeirra eru
hvött til að mæta. Sr. Jón D. Hró-
bjartsson. Heitt á könnunni eftir
guðsþjónustuna. Kl. 20: Aðventu-
söngur Drengjakórs Laugarnes-
kirkju. Aðventusöngurinn tekur mið
af breskri hefð, þar sem skiptist á
kórsöngur og ritningarlestur.
Fimmtudag: Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimil-
inu að stundinni lokinni.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M.
Halldórsson. Messa kl. 14. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Miðviku-
dag: Bænamessa kl. 18.20. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
SETJARNARNESKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Ræðuefni:
„Hvað merkja Ijósin sjö?” Sr. Ingólf-
ur Guðmundsson messar. Organisti
Þóra Guðmundsdóttir. Barnastarf á
sama tíma í umsjá Eimýjar, Báru og
Erlu. Miðvikudag: Kyrrðarstund kl.
12. Söngur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur hádegisverður í safnaðar-
heimilinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Organleikari Violeta Smid.
Barnastarf á sama tíma. Kirkjubíllinn
fer um Árbæinn fyrir og eftir guðs-
þjónustuna. Aðventusamkoma kl.
20.30 í Árbæjarkirkju. Meðal dag-
skráratriða: Friðrik Sophusson, fjár-
málaráðherra, flytur ræðu. Kirkjukór-
inn og Rarikkórinn syngja jólalög
undir stjórn Violetu Smid. Tvöfaldur
kvartett syngur. Fríða Sigurðardóttir
syngur einsöng. Fermingarbörn lesa
aðventuspádóma. Skólakór Árbæj-
arskóla syngur undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttur, ávarp, helgistund,
aðventuljósin tendruð. Miðvikudag-
ur: Fyrirbænaguðsþjónusta í Árbæ-
jarkirkju kl. 16.30. Prestar Árbæjar-
kirkju taka á móti fyrirbænaefnum.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Heimsókn
barnastarfsins í Seljakirkju. Brottför
frá Breiðholtskirkju kl. 10.55. Barna-
kórinn syngur. Messa kl. 14. Altaris-
ganga. Organisti Þorvaldur Björns-
son. Bænaguðsþjónusta þriðjudag
kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 14. Prestur sr. Magnús Guð-
jónsson. Organisti Kjartan Ólafsson.
Félag fyrrverandi sóknarpresta.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. Barnastarf á sama
tíma. Guðsþjónusta miðvikudag kl.
20.30. Prestur sr. Hreinn Hjartar-
son. Tónlist annast sönghópurinn
„Án skilyrða”. Fyrirbænir í Fella- og
Hólakirkju mánudag kl. 18. Prestarn-
ir.
GRAFARVOGSSÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Umsjón: Valgerður, Katrín
og Hans Þormar. Skólabíllinn leggur
af stað frá Hamrahverfi kl. 10.30 og
fer venjulega skólaleið. Vigfús Þór
Árnason.
HJALLASÓKN: Messusalur Hjalla-
sóknar, Digranesskóla. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Við guðsþjónustuna fer fram söfnun
Hjálparsjóðs Hjallasóknar. Kaffisopi
að lokinni guðsþjónustu. Sóknarfólk
er hvatt til þátttöku. Kristján Einar
Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
sunnudag kl. 11. Rætt um jólaboð-
skapinn og sungnir jólasálmar. Að-
ventusamkoma Kársnessóknar í
Kópavogskirkju kl. 17. Fjölbreytt
dagskrá. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Hall-
fríður Ólafsdóttir flautuleikari og
Þórunn Guðmundsdóttir sópran-
söngkona flytja ásamt organista
Aríu eftir Hándel fyrir sópran, flautu
og orgel. Ræðumaður sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Hjörtur Páls-
son skáld les Ijóð. Aðventusamko-
munni lýkur með ritningarlestri, bæn
og sameiginlegum söng. Kaffisala
verður í safnaðarheimilinu Borgum
að lokinni aðventusamkomunni.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Kirkjudagur Selja-
kirkju. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Barnastarf Breiðholtskirkju kemur í
heimsókn. Guðsþjónusta kl. 14.
Molasopi eftir guðsþjónustuna. Að-
ventukvöld kl. 20.30. Félagar úr Lúð-
rasveit Reykjavíkur leika aðventulög.
Bogi Arnar Finnbogason les sögu,
leikrit i umsjá æskulýðsfélagsins og
kirkjukórinn syngur. Kjartan Sigur-
jónsson organisti og kórstjóri flytur
hugvekju. í lok athafnarinnar verða
aðventuljósin tendruð. Kaffisala
Kvenfélags Seljasóknar í lok að-
ventukvöldsins. Guðsþjónusta í
Seljahlíð laugardag 7. des. kl. 11:
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Aðventu-
hátíð kl. 20.30. Dagskrá: Forspil Jón-
as Þ. Dagbjartsson leikur á fiðlu og
Jónas Þórir leikur á orgel. Kirkjukór-
inn syngur undir stjórn Jónasar Þór-
is. Ræðumaðursr. Heimir Steinsson
útvarpsstjóri. Félagar úr íslenskú
hljómsveitinni flytja tónlist. Ritning-
arlestrar og bænir. Ljósin tendruð.
Veitingar í Kirkjubæ. Þórsteinn
Ragnarsson safnaðarprestur.
FRIKIRKJAN l' Reykjavík: Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Miðvikudaginn 11.
des. kl. 7.30 morgunandakt. Orgel-
leikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar1
Guðný Guðjónsdóttir
Friðbjöm Þorsteins-
son - Aldarminning
Guðný
Fædd 7. desember 1891
Dáin 26. desember 1973
Friðbjörn
Fæddur 8. ágúst 1891
Dáinn 8. apríl 1977
í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu
hjónanna í Vík, Fáskrúðsfírði. Bæði
voru þau fædd á Austfjörðum, hún
á Kömbum í Stöðvarfirði, dóttir
hjónanna Áslaugar Eiríksdóttur hús-
freyju og Guðjóns Guðmundssonar
bónda. Hann var fæddur á Flögu í
Breiðdal, sonur hjónanna Ingibjarg-
ar Friðbjörnsdóttur húsfreyju og
Þorsteins Jónssonar bónda.
Guðný qg Friðbjöm voru bæði vel
ættuð, voru þau bæði komin af Guð-
brandi Þorlákssyni biskup í 12. ættl-
ið.
Aðeins 6 ára gömul missir Guðný
móður sína og varð hún þá ein eftir
með föður sínum, sem fljótlega hætti
búskap á Kömbum, eftir að hann
varð ekkjumaður. Fluttu þau feðgin
þá að Randversstöðum í Breiðdal,
og voru þar í 3 ár í góðu yfirlæti.
Aftur flytjast þau, en þá á Flögu í
Breiðdal, en sem áður er getið
bjuggu foreldrar Friðbjörns þar. Enn
þegar hér er komið er Ingibjörg orð-
in ekkja með 3 syni og var Friðbjörn
þeirra elstur. Friðbjörn var því ekki
nema 12 ára garnall er hann fór að
aðstoða móður sína við búrekstur á
Flögu. Guðjón faðir Guðnýjar gerðist
ráðsmaður að Flögu og er fram liðu
stundir giftist hann Ingibjörgu móð-
ur Friðbjörns.
Árið 1913 ganga þau í hjónaband
Guðný og Friðbjörn og hefja búskap
með foreldrum sínum á Flögu. Að
sjö árum liðnum festa þau kaup á
jörðinni Vík í Fáskrúðsfirði og setja
þar niður bú. Hvorugt þeirra var
fætt með silfurskeið í munni, eins
og sagt er, en báðum var þeim góð-
mennska, fyrirhyggja og dugnaður
í blóð borinn, þeir eiginleikar áttu
eftir að skila þeim stórum farsælum
bamahóp, blómlegu búi og afkom-
endum þeirra fallegar minningar um
þau.
Bjuggu þau í Vík í rúm 50 ár og
hafa afkomendur þeirra nú tekið við
jörðinni. í Vík ráku þau myndarbú
og voru einnig með útgerð. Var þeim
hjónum 9 barna auðið, en eitt þeirra
andaðist í bernsku. Þau eru upp
komust: Áslaug, gift Guðmundi
Magnússyni, eiga þau þrjár dætur;
Aðalsteinn, látinn, hann var kvæntur
Klöru Olfjörð Jónsdóttur einnig lát-
in, eignuðust þau einn son; Geir,
látinn, hann var ókvæntur og barn-
laus; Sigurpáll, látinn, hann var
kvæntur Jónu Mortensen og eignuð-
ust þau tvo syni; Jón kvæntur Sveinu
Lárusdóttur eiga þau einn son;
Björn, hann var kvæntur Ólafíu
Jónsdóttur, þau skildu, eiga þau tvo
syni og eina dóttur; Þórhallur,
ókvæntur og barnlaus og Egill
kvæntur Guðlaugu Þórðardóttur,
eiga þau tvo syni og tvær dætur.
í Vík var margt í heimili og mik-
ið um gestagang, enda voru þau
hjón mjöggestrisin, tóku öllum fagn-
andi og leið komumönnum þar vel.
Aldrei í þeirra búskap varð skortur
á fæði eða klæði, sat fyrirhyggjan
þar í fyrirrúmi. Það sama gilti um
skepnurnar, um þær var vel hugsað
ogvoru þau alltaf vel byrg^aí' fóðri.
Að vera húsmóðir á stóru heimili
er æríð starf, en Guðný lét ekki þar
við sitja, tók hún þátt í öllum útiverk-
um. Samfai'a búskapnum tók Frið-
björn virkan þátt í félagsstörfum,
sat hann í stjórn Kaupfélags Stöðv-
firðinga og í sveitarstjórn Fáskrúðs-
fjarðarhrepps til margra ára.
Barnabörn þeirra hjóna eiga bjart-
ar og hlýjar minningar frá þeim
árum er þau dvöldu hjá ömmu og
afa til lengri eða skemmri tíma. Þar
kynntust þau dugnaði, hógværð og
síðast en ekki síst góðvild, sem þau
gátu gefið af sér til þeirra, þeim til
þroska og velfamaðar, þrátt fyrir
að vera störfum hlaðin. Því þótti.við
hæfí að minnast slíkra sæmdarhjóna
á aldarafmæli. Þeim til heiðurs.
Valgerður Sigurðardóttir
________Brids_________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Úrslit í einmenningi.
Steinþór Ásgeirsson 787
Valdimar Jóhannsson 772
Jón Aspar 754
Þorleifur Þórarinsson 750
Garðar Bjömsson 749
Leifur Jóhannsson 743
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
A-riðill.
Valdimar Jóhannsson 405
Steinþór Ásgeirsson 376
B-riðill.
Leifur Jóhannsson 420
Baldur Ásgeirsson 388
C-riðill.
Eysteinn Einarsson 393
Stefán Pétursson 384
Miðvikudaginn 11. desember verður
spilaður eins kvölds tvímenningur, það
er síðasti spiladagur fyrir jól.
Næsta fimmtudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur.
Frá Skagfirðingum í
Reykjavík
Mikil barátta er nú framundan í
lokaumferðunum. í aðalsveitakeppni
Skagfirðinga. Að loknum 10 umferð-
um af 13 er staða efstu sveita þessi:
Sveit Magnúsar Sverrissonar 181
Sveit Steingríms Steingrímssonar 172
Sveit Sigmars Jónssonar 168
Sveit Aðalbjörns Benediktssonar 166
Sveit Sigurðar ívarssonar 165
Sveit Rúnars Lárussonar 164
Sveit Hjálmars S. Pálssonar 163
Sveit Árna Loftssonar 153
Næstu 2 umferðir verða spilaðar á
þriðjudaginn kerrwr. Sveitakeppninni
lýkur svo annan þriðjudag (einn ieik-
ur) en síðari helming kvöldsins verður
farið í létta jólasveinakeppni með til-
heyrandi jólakonfekti til handa jóla-
sveinum Skagfirðinga, þetta árið.
Bridsfélag Reykjavíkur
Bridsfélag Breiðholts
Nú er lokið barometer-tvímenningi
sem stóð yfir í 5 kvöld. Sigurvegarar
urðu Óli Björn Gunnarsson og Marinó
Kristinsson. Röð efstu para varð þessi:
Óli Bjom GunnarssQn - Marinó Kristinsson 209
ÓlafurH. Ólafsson - Jón Ingi Björnsson 166
Rafn Kristjánsson - Þorsteinn Kristjánsson 115
Haukur Harðarson - Vipir Hauksson 109
JeanJensen-LeifurJóhannesson 79
Bjöm Amórsson - Kristín Guðbjömsdóttir 77
Hæstu skor kvöldsins hlutu:
Ólafur H. Ólafsson - Jón Ingi Bjömsson 55
Friðrik Jónsson - Guðbrandur Guðjohnsen 52
Jean Jensen - Leifur Jóhannesson 42
Næsta þriðjudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. Allir vel-
komnir. Spilað er í Gerðubergi kl.
19.30.
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag lauk barómeter-
keppni féíagsins með sigri Hjálmars
Pálssonar og Sveins Þoivaldssonar.
Þeir hlutu 241 stig.
Röð næstu manna:
AparKristinsson - Erlendur Jónsson 213
Ragnar Bjömsson - Páll Valdimarsson 212
Þröstur Ingimarsson - Ragnar Jónsson 208
GuðmundurGrétarss. -Árni MárBjörnsson 177
Sævin Bjarnason - Guðjón Sigurðsson 144
Hæstu kvöldskor náðu:
Agnar-Erlendur 87
Þröstur - Ragnar ~ 74
Unnur Sveinsdóttir - Inga Lára Guðmundsd. 52
Staða LA Café er vænleg þegar lokið
er 8 umferðum af 12 í aðalsveita-
keppninni en staðan er nú þessi:
LACafé 162
S.Ármann Magnússon 154
Bemódus Kristinsson 138
Verðbréfamarkaðurinn 136
Erla Siguijónsdóttir 131
Tryggingamiðstöðin 129
Jón Steinar Gunnlaugsson 128
Roche 127
Síðasta spilakvöld vann LA Café
S. Ármann 20-10 og Jón Steinar 25-1.
S. Ármann Magnússon vann Roche í
síðari leiknum 24-6.
Næst spilar LA Café gegn Bernódusi
og Verðbréfamarkaðnum. S.Ármann
spilat' við sömu sveitir og sveit Erlu
spilar við Trygingamiðstöðina og Jón
Steinar.
Bridsfélag yngstu spilaranna
Bridsfélag yngstu spilaranna 12-15
ára, hóf starfsemi sína í Sigtúni 9 nú
í haust. Ákveðið var að starfa þtjá
jSunnudaga til reynslu fyrir áramót og
6r sá síðasti sunnudaginn 8. desember.
Öllum á þessum aldri sem áhuga
hafa á að læra að spila brids er vel-
komið að mæta í Sigtún 9 kl. 13.00.
Þar er blandað saman kennslu og
spilaæfingum. Kennari er Dröfn Guð-
mundsdóttir og hefur hún séð um
kennslu og æfingar hjá Bridsfélagi
yngstu spiíaranna.