Morgunblaðið - 07.12.1991, Page 78

Morgunblaðið - 07.12.1991, Page 78
78 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991 HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA „Skemmti legt. en erfitt verkefni” segir Þorbjörn Jensson, þjálfari meistaraliða Vals, sem mætir Evrópumeisturum Barcelona í Laugardalshöllinni á morgun „ÞETTA er mjög spennandi verkefni og eitt það erfiðasta sem íslenskir handknattieiks- menn hafa glímt við," sagði Þorbjörn Jensson, þjálfari ís- landsmeistara Vals, sem mæta Evrópumeisturum Barcelona í Laugardalshöllinni á morgun - í fyrri ieik liðanna í 8-liða úrslit- um Evrópukeppni meistara- liða. Barceiona er með geysi- lega öflugt lið - það besta í heimi. Barcelona kemur hingað með sex leikmenn landsliðs Spánar, sem varð sigurvegari í Risakeppn- inni (Super Cup) í Þýskalandi á dögunum. Markverðina Rico, sem hefur leikið 217 landsleiki og Barru- fex, sem hefur leikið 21 landsleik. Línumanninn Grau (21 landsleikur), hornamennina Serrano (234), sem er fyrirliði landsliðsins, og Barneito (23). Skjdtuna Madip, sem hefur leikið 67 landsleiki. Fyrir utan þessa leikmenn leika Júgóslavarnir Vukovec (150 landsleikir) og Vujovic (163). Þriðji Júgóslavinn Portner (110) er meiddur. „Barcelona leikur mjög fjöl- breyttan og óskipulagðan hand- knattleik, þar sem hraðinn ræður ríkjum. Varnarleikurinn hjá liðinu er einnig mjög hreyfanlegur, en lið- ið leikur 3-3 vörn, sem er nálægt því að vera maður á mann. Við þurfum að svara henni með mjög skipulögðum leik og koma í veg fyrir að Spánvetjarnir nái hraðaupphlaupum,” sagði Þorbjörn. - Eru leikmenn þínir ekki orðnir spenntir? „Það er óhægt að segja það, enda eru þeir flestir mjög ungir og óreyndir. Það er mitt verkefni að yfirvinna spennuna hjá þeim. Strák- arnir gefa allt sem þeir eiga í leik- inn og gera allt til að leggja Barce- lona að velli. Við höfum legið yfir leikjum Barcelona, sem við höfum á myndbandi.” - Kemur þú með að láta taka leikmann hjá Barcelona úr umferð? „Ég mun ekki bytja á því, en við erum tilbúnir að gera það - eftir hvernig leikurinn þróast. Við erum tilbúnir að taka jafnvel tvo leikmenn úr umferð. Það verðúr allt sett á fulla ferð og leikið í botn.” Of mikiðálag Þorbjörn sagði að Valsmenn hafi ekki fengið mikinn stuðning frá HSÍ. „Það er óþolandi á sama tíma og við erum að undirbúa okkur fyr- ir Evrópuleikina gegn Barcelona hér heima um helgina og á Spáni um næstu helgi, er búið að setja á erfiðan leik okkar gegn Eyjamönn- um í bikarkeppninni á þriðjudaginn. Við höfum um nóg að hugsa í sam- bandi við Evrópukeppnina og 1. deildarkeppninni, svo ekki sé verið að bæta bikarleik við á þessum tíma. Það er of mikið álag á okkur að þurfa að vera að beijast á þrem- ur vígstöðum í einu,” sagði Þor- bj.'rn. Leikurinn verður í Lauga 'dals- höllinni n m<'rgnn k). 17. Mannvirkianefnd Knattspyrnumannvirki Mannvirkjanefnd Knattspyrnusambands íslands hefur í hyggju að setja á stofn gagnabanka fyrir aðildarfélög sambandsins. Þangað eiga félög og aðrir, sem hyggja á framkvæmdir á þessu sviði, að geta leitað og aflað sér upplýsinga um ráðgjafa, verktaka og efnissala. Mannvirkjanefndin óskar eftir upplýsingum um fyrirtæki og einstakl- inga, sem starfa á þessu sviði. Þar skal m.a. koma fram reynsla og verksvið auk almennra upplýsinga. Upplýsingar skal senda til: KSÍ - Mannvirkjanefnd, íþróttamiöstööinni laugardal 128 Reykjavík IÞROTTA- RANNSÓKNIR Heilbrigðis- og rannsóknaráð ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til rannsókna á sviði íþrótta. Umsóknarfrestur rennur út 1. febrúar 1992. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu ÍSÍ í Iþróttamiðstöðinni, Laugardal. Heilbrigðis- og rannsóknaráð ÍSÍ. Valdimar Grímsson, fyrirliði Valsliðsiris, sem stendur í ströngu í Laugar- dalshöllinni kl. 17 á sunnudag. HANDKNATTLEIKUR / SVIÞJOÐ Reynt verður ad tryggja að Saab verði áfram með Allt verður gert til reyna að halda lífi í sænska félaginu Saab, þannig að það getur áfram verið með í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í vet- ur. Eins og hefur komið fram þá er félagið gjaldþrota - skuldar 45 millj. ÍSK. Félagið á ekki krónu til að borga húsaleigu fyrir alla flokka sína í handknattleik. Reiknað er með að borgarstjórnin í Lindköping hlaupi undir bagga í sambandi við Frá Grétari Þór Eyþórssyni iSviþjóð húsaleigu. Félög í Svíþjóð eiga nú erfitt með að fá fyrirtæki til að fjármagna starfsemi sína. Talið er að ástæðan fyrir því að Saab-verksmiðjurnar í Lindköping hafi dregið úr greiðslum til félagsins, sé að verkefni verk- smiðjunnar sé að dragast saman. Fyrirtækið hefur smíðað herþotur. Sænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að draga úr útgjöldum vegna varn- armála. Því er spáð að tugþúsund störf í sambandi við hergagnaiðnað verði lögð niður á næstu árum. i í f r Blómabúdin Burkni, Linnetsstíg 3, Hafnarfiröi, símar 652020 — 50971. Blóm og skreytingar við allra hæfi. Sparrisjjóður Hafnarfjarðar HAFNARFJARÐARSLAGUR 1. deild handbolti m.fl.k. í Kaplakrika laugardaginn 7. des. kl. 16.30: FH HAUKAR Nú verður tekið á... Karatesýning í hálfleik. Bingó í Kaplakrika sunnudaginn 8. des kl. 20.00. Um helgina Handknattleikur Pjórir leikir verða leiknir í 1. deildarkeppni karla. HK - ÍBV leika í Digranesi kl. 14 í dag og kl. 16.30 leika FH - Haukar í Kaplakrika og Stjarnan - Grótta í Garðabæ. Á sunnudagskvöld kl. 20 leika Víkingur - UBK í Vík- inni. Körfuknattleikur Pjórir leikir verða í úrvalsdeild- inni. Haukar - Valur leika í dag kl. 14 í íþróttahúsinu við Strand- götu. Á sunnudag kl. 16 leika Skallagrímur - Njarðvík í Borgar- nesi og kl. 20 leikur Tindastóll gegn KR á Sauðárkróki og Þór fær Grindavík í heimsókn á Akur- eyri. Knattspyrna Fyrsta stigamót KSÍ fer fram á Akranesi í dag. Mótið hefst kl. 10. Sextán lið leika í fjórum riðl- um og verður leikið í báðum íþróttahúsunum á Akranesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.