Morgunblaðið - 08.04.1993, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C
82.tbl. 81. árg. FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Öryg'gisráðid
meðmælt að-
ild Makedóníu
Aþenu. Reutör.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær án
atkvæðagreiðslu að mæla með aðild Makedóníu að samtök-
unum. Búist er við að allsherjarþingið samþykki síðan aðild-
ina í dag og verða ríki SÞ þá 181. Grikkir og Makedóníu-
menn hafa ákveðið að hefja viðræður til að reyna að að
binda enda á fimmtán mánaða langa deilu ríkjanna varð-
andi nafnið á Makedóníu, sem er eitt af lýðveldum fyrrver-
andi Júgóslavíu. Grikkir fullyrða að með því að nota þetta
heiti séu Makedóníumenn að gefa í skyn að þeir geri landa-
kröfur en nyrsti hluti Grikklands ber sama nafn.
Vegna deilnanna verður fáni
Makedóníumanna fyrst um sinn
ekki látinn blakta við hlið hinna
ríkjanna fyrir utan aðalstöðvarnar
í New York. íbúar Makedóníu eru
um tvær milljónir og þar er mikil
fátækt.
Grikkir hafa staðið gegn því inn-
an Evrópubandalagsins að banda-
lagsríkin viðurkenni fullveldi Make-
dóníu og málið hefur valdið tilfinn-
ingaróti meðal Grikkja. í gær sagði
hins vegar Mihalis Papaconstant-
inou, utanríkisráðherra Grikklands,
að í næstu viku myndu hefjast við-
ræður milli þeirra og Makedóníu-
manna um nafnamálið.
Skákeinvígi Kasparovs og Shorts
Gengið framhjá
hæstbjóðendum?
„ÞAÐ VEIT enginn á þessu stigi hver stendur fyrir væntan-
íegu einvígi þeirra Nigels Shorts og Garrí Kasparovs,“
sagði Matthew Patten, talsmaður London Chess Group, sem
bauð hæsta verðlaunaféð, í samtali við Morgunblaðið í gær.
og Kasparov samþykktu að ganga
til sérstakra viðræðna við þennan
hóp og gefa tveggja vikna frest til
þess að kanna hvort samningar
gætu tekist. Sá frestur rennur út
næstkomandi þriðjudag. Þangað til
erum við í lausu lofti.
Málið er í biðstöðu og við skulum
vona að biðleikurinn hafi ekki verið
afleikur. En skákheimurinn er afar
skrítin veröld, það máttu vita. Þess
vegna stendur tilboð okkar áfram,
en við verðum að bíða til þriðjudags
með að sjá hvort við verðum látnir
sigla okkar sjó“.
Patten sagði
það rangt að Short
og Kasparov hefðu
tekið boði sem
enska blaðið Tim-
es stæði að ásamt
hollenskum aðil-
um, en Times hef-
ur látið í það skína
í fréttum. Þessir ___________
aðilar buðu 1,7 Kasparov
milljóna punda
verðlaunafé, jafnvirði 165 milljóna
króna, en London Chess Group 2,0
milljónir punda.
„Það sem gerðist var að Short
Geislamengað
ský yfir Síberíu
RJoskvu. Reuter.
RUSSNESK stjórnvöld viðurkenndu í gær að eldsvoði í
efnaverksmiðju við Tomsk í Síberíu væri alvarlegasta at-
vik sinnar tegundar frá því eldsvoði varð í lqarnorkuverinu
í Tsjemóbyl 1986. Geislamengun væri hins vegar óveruleg.
Að sögn orkuráðuneytisins í
Moskvu olli gasmyndun í úrantanki
sprengingu. Við það kviknaði eldur
en fljótlega tókst að slökkva hann.
Sjónvarpsstöð í Moskvu skýrði
síðar frá því að rússneski flugherinn
fullyrti að ’geislavirkt ský frá verinu
væri á ferð og flugi yfir Síberíu.
Væri það í þriggja kílómetra hæð
og stefndi á 36 km hraða á klukku-
stund í átt til árinnar Jenísej, eins
af stórfljótum Síberíu sem upptök
á í Mongólíu og rennur til sjávar í
Norður-Ishafið.
-
IlloranuMnÍiið
'■ H ISðlfllI n . ....
l—L 3 LJ.IIJ.UJ ED r—rr - Il-~i
Morgunblaðið flyzt úr
Aðalstrætí í Kringluna 1
MORGUNBLAÐIÐ í dag er síðasta tölu-
blaðið, sem unnið er í Aðalstræti 6, því að
um páskana flyzt öll starfsemi blaðsins
undir eitt þak í nýju blaðhúsi í Kringlunni
1, sem Árvakur hf., útgáfufélag blaðsins,
hefur reist þar á undanförnum 17 mánuð-
um. Við þessi tímamót eru liðin tæp 20 ár
frá því að starfsemi Morgunblaðsins var
síðast öll undir sama þaki í Aðalstræti 6,
er prentsmiðja og afgreiðsla fluttust í
Skeifuna. Síðastliðinn áratug var orðið það
þröngt um starfsemi Morgunblaðsins í
Aðalstræti 6, að blaðið hefur þurft að
skipta ritstjórninni í þrennt og hefur hún
einnig verið hýst í Hafnarstæti 20 og á
Hverfisgötu 6. Um tíma var ritsljómin
einnig í Tryggvagötu 26.
Við þessa breytingu má segja, að tímamót verði
í sögu Morgunblaðsins, sem í nóvember verður 80
ára, því að blaðið hefur frá fyrsta tölublaði verið
gefið út í miðbæ borgarinnar^var fyrst til húsa í
Austurstræti, lengst af í húsinu númer 8, _þar sem
það í fyrstu var prentað í Prentsmiðju Isafoldar
hf., en þar til húsa var einnig fyrsta prentsmiðjan,
sem Morgunblaðið eignaðist sjálft. Árið 1956 flutt-
ist blaðið síðan í Aðalstræti 6 og var fyrst prentað
þar 22. maí 1956 í fyrstu stórvirku „rotations“-press-
unni sem keypt var til landsins. Það varð jafnframt
siðasta blýprentvél blaðsins, sem hætt var að nota
á árinu 1973.
Þótt prentsmiðja Morgunblaðsins hafi flutzt í
Aðalstræti 6 22. maí 1956, fluttist bókhald blaðsins
og ritstjórn ekki í Aðalstrætið fyrr en 28. júní það
ár. Var síðan öll starfsemin þar til ársins 1973, eins
og áður sagði, er keypt var offsetprentvél, sem í 10
ár prentaði blaðið. Hún var í Skeifunni 19 og var
síðan leyst af hólmi af núverandi prentvél, sem hús
var reist yfir í Kringlunni 1. Það hús hefur til þessa
einnig hýst afgreiðslu blaðsins frá 1984. Fyrsta tölu-
blaðið var prentað þar í júlí það ár.
Flutningurinn nú um páskana er mikið verk borið
saman við flutninginn 1956. Þá tóku menn ritvélar
sínar undir handlegginn og settust niður á nýjum
stað. Nú eru þúsundir tölvutenginga, sem tækni-
menn þurfa að aftengja á þremur stöðum í borginni
og tengja síðan í nýju húsi. Reykjavíkurborg hefur
keypt þann hluta Aðalstrætis 6, sem Árvakur hf.
átti, fyrir Borgarbókasafn Reykjavíkur. Morgunblað-
ið óskar lesendum sínum gleðilegra páska.