Morgunblaðið - 08.04.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993
Vilja hlut-
laust hval-
veiðieftirlit
JAPANIR hyggjast leggja til
að komið verði á nýju kerfi sem
heimilar hlutlausum eftirlits-
mönnum að fylgjast með hval-
veiðum og er það liður í tilraun-
um þeirra til að fá ríki, sem
hafa lagst gegn hvalveiðum, til
að fallast á að veiðamar verði
hafnar á ný. Þeir hyggjast
leggja tillöguna fram á fundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins í Japan
í næsta mánuði.
Vopnahlé í
Abkhazíu
VOPNAHLÉ hélst í Abkhazíu-
héraði í gær þegar háttsettir
embættismenn frá Georgíu og
Rússlandi ræddu hvernig binda
mætti enda á átökin þar. Bar-
dagamir stöðvuðust skyndilega
í fyrrakvöld þegar Pavel
Gratsjev, utanríkisráðherra
Rússlands, hvatti leiðtoga hér-
aðsins, sem beijast fyrir að-
skilnaði frá Georgíu, til að virða
vopnahléið.
Alfred Butts
Höfundur
Scrabble látinn
HÖFUNDUR orðaspilsins
Scrabble, Alfred Butts, lést á
sunnudag, 93 ára að aldri.
Áætlað hefur verið að 100 millj-
ónir Scrabble-leikja hafi verið
seldar út um allan heim.
Óánægja með
kjarnorkuúr-
gang Rússa
KIICHI Miyazawa, forsætisráð-
herra Japans, kvaðst í gær hafa
miklar áhyggjur af fréttum þess
efnis að Rússar héldu áfram
að sökkva geislavirkum efnum
i Kyrrahafið i grennd við Jap-
an. Japanska dagblaðið Mainic-
hi Shimbun greindi frá því að
kjarnorkuúrgangi væri enn
sökkt um 1.000 km norður af
japönsku eyjunni Hokkaido.
Tævan og Kína
í viðræður
SENDINEFND frá Tævan kom
til Kína í gær til að undirbúa
viðræður sem gætu leitt til var-
anlegra samskipta kínverskra
og tævanskra embættismanna.
„Þegar menn líta aftur til fortíð-
arinnar fyllast menn hryggð,“
sagði Cheyne Chiu, sem fer
fyrir tævönsku nefndinni.
Nýr yfirmað-
ur hjá Scala
ÍTALSKA stjórnin hætti í gær
tilraunum sínum til að koma í
veg fyrir að Carlo Fontana yrði
að hætta störfum sem yfirmað-
ur Scala-óperunnar. Starfs-
mannafélögum innan óperunn-
ar hafði tekist að fá réttarúr-
skurð um að ekki hefði verið
staðið rétt að skipun hans í
starfið. Stjórnin hefur nú hætt
við að áfrýja þeim úrskurði og
óskað eftir því að nýr maður
verði skipaður í starfið.
Kínversk farþegaþota flýgnr inn í gífurlega ókyrrð í lofti
Boðunardagur Maríu
ALEXEJ II, patríarki Rétttrúnaðarkirkjunnar í Rússlandi, veitir lít- í gær samkvæmt tímatali kirkjunnar. Þetta er í fyrsta sinn frá
illi stúlku í -Moskvu heilagt sakramenti á boðunardegi Maríu sem var 1918 sem dagurinn er haldinn hátíðlegur með messu í Kreml.
Tveir farþegar biðu bana
og 150 slösuðust alvarlega
Anchorage. Reuter.
TVEIR farþegar kínverskrar
þotu biðu bana er hún flaug
fyrirvaralaust inn í gífurlega
ókyrrð á flugleiðinni frá
Sjanghæ í Kína til Los Angel-
es í Bandaríkjunum. Flug-
mönnunum tókst að ná valdi
á henni og nauðlentu í herstöð
á eynni Shemya í Aleúta-eyj-
akeðjunni suður af Alaska.
Atburðurinn varð í fyrradag.
Þotan var eins og í heljargreipum
er hún flaug inn í ókyrrðina, hentist
til og frá að sögn fulltrúa kínverska
flugfélagsins. Farangur í geymslu-
hólfum í farþegaklefanum kastaðist
um allt og auk þeirra tveggja far-
þega sem biðu bana slösuðust rúm-
lega 150, margir þeirra alvarlega. I
fyrstu var sagt að 265 manns hefðu
verið um borð í flugvélinni en síðar
að þeir væru 205, mest Kínveijar.
Reuter
MD-11 þota
ÞOTA af gerðinni McDonnell Douglas MD-11, en kínverska þotan
sem lenti í gífurlegri ókyrrð á leið til Los Angeles var sömu gerðar.
Flugmenn þotunnar, sem var af
gerðinni McDonnell Douglas MD-11
og í eigu Austur-kínverska flugfé-
Iagsins, sendu frá sér neyðarkall og
báðu um heimild til að lenda á næsta
flugvelli, sem var í eftirlitsstöð
bandaríska flughersins á eynni
Shemya, syðstu eyju Aleúta-eyj-
anna. Þar lentu þeir heilu og höldnu
klukkustund síðar.
Andreotti einanarast
Róm. Reuter. ^ ^
GIULIO Andreotti, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ítalíú,
heldur áfram að einangrast
I ítalska stjórnmálaheimin-
um eftir því sem fleiri stað-
reyndir koma fram sem
bendla hann við mafíuna. í
gær skýrði rannsóknarnefnd
á vegum ítalska þingsins frá
því að fyrrum nánasti aðstoð-
armaður hans, Salvo Lima,
hefði verið tengiliður Andre-
ottis við mafíuna.
Lima, sem var borgarstjóri í
Palermo á Sikiley, var myrtur í
Viðriðinn mafíuna?
GUILIO Andreotti. Hermt var í
gær að fyrrum aðstoðarmaður
hans, Salvo Lima, hefði verið
tengiliður hans við mafíuna.
fyrra. Er talið að mafían hafi stað-
ið á bak við morðið og að ástæðan
hafi verið sú að honum hafi ekki
tekist að tryggja væga dóma yfír
nokkrum af forystumönnum maf-
íunnar árið 1987.
í skýrslu frá rannsóknarnefnd-
inni eru tekin af öll tvímæli um
að Lima hafi verið viðriðinn maf-
íuna en hún var samþykkt af þing-
mönnum allra flokka, þar á meðal
kristilegra demókrata, flokks
Andreottis. Sagði dagblaðið Corrí-
ere della Sera að flokkurinn hefði
með þessu ákveðið að einangra
fyrrum leiðtoga sinn.
Fluttir til Alaska
Að sögn fulltrúa flugfélagsins
voru engar sjáanlegar skemmdir á
þotunni en til stóð að skoða hana
ítarlega í Shemya þar sem grunur
lék á að skemmdir af völdum svipt-
inganna í háloftunum leyndist innan
byrðings.
Aðstaða var ekki fyrir hendi á
Shemya til að gera að sárum þeirra
slösuðu svo brugðið var á það ráð
að senda bandarískar herflugvélar
með þá til Anchorage í Alaska, en
þangað er 2.500 kílómetra leið frá
Shemya. Þangað voru 153 sendir til
aðhlynningar með fimm flugvélum.
Að sögn manna sem tóku þátt í
hjálparstarfinu var fyrst og fremst
um höfuð- og kviðmeiðsl að ræða
hjá hinum slösuðu og var talið að
þeir hefðu orðið fyrir farangri sem
kastaðist úr skápum í ijáfri farþega-
klefans.
Undra-
jarðepH
Dyflini. Itcuter.
SAMTOK írskra grænmet-
isræktenda hafa hafið her-
ferð til að vekja athygli á
kostum frægustu afurðar
sinnar, írsku kartöflunnar.
I nýjasta fréttabréfi samtak-
anna segir að kartaflan sé til
margs nýtileg og meðal annars
geti hún fjarlægt augnpoka og
læknað gigt. Eflaust megi nýta
kartöfluna til fjölmargra ann-
arra hluta og eru lesendur
hvattir til að koma með tillögur.