Morgunblaðið - 08.04.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTÍJDAGUR'8. ATRÍL 1993
021
Björgvin Þór Jóhannsson
„Mikilvægt er að starfs-
menn skólanna fái
vinnufrið til að laga
menntunina enn betur
að íslensku atvinnulífi.“
nú verið að skoða bekkjarkerfi
Stýrimannaskólans og áfangakerfi
Vélskólans með þetta markmið í
huga.
Oðru máli gegnir hinsvegar um
efnisinnihald séráfanga skólanna
sem miðast aðallega við þau at-
vinnuréttindi og þar með þau mark-
mið sem viðkomandi skóli stefnir
að. Þetta veldur því að efnisinni-
hald séráfanganna er í flestum til-
vikum mjög frábrugðið frá einum
skóla til annars þótt finna megi
dálitla skörun í sumum tilvikum.
Sem dæmi mætti taka kælitækni-
kennslu í vélskólanum og Fisk-
vinnsluskólanum. í Vélskólanum er
lögð megináhersla á hina fræðilegu
undirstöðu vélrænnar kælingar,
kælimiðla og viðhald og rekstur
kælivéla ásamt umhverfismálum.
Hinsvegar er í Fiskvinnsluskólanum
lögð meiri áhersla á fiskinn sem
hráfefni og þær ástandsbreytingar
sem fiskurinn verður fyrir við fryst-
ingu, áhrif frystihraða á gæði vör-
unnar, áhrif mismunandi geymslu-
hitastigs á geymsluþol o.s.frv. Eins
og sjá má er þarna um gjörólík
svið að ræða sem hvort um sig
krefst mikillar sérhæfingar og væri
því tímasóun að kenna þetta í sam-
eiginlegum áföngum nema að menn
ætli sér að gera vélstjóra einnig að
matvælasérfræðingum og öfugt og
lengja þá námið sem því nemur.
Miðað við hvernig starfsréttindi eru
skilgreind núna er mjög lítið sem
hægt er að samkenna af séráföng-
um þessara þriggja skóla og ef það
yrði gert hefði það óhjákvæmilega
í för með sér ofmenntun og leng-
ingu námstímans.
Samvinna skóla er yfirleitt af
hinu góða og hana ber vissulega
að efla en það er mikilvægt að
skólamenn fái að vinna að þessu í
friði. Vélskólinn og Stýrimanna-
skólinn hafa þegar hafið slíka sam-
vinnu og er verið að skoða fleiri
leiðir til að auka hana. Einnig hafa
viðræður farið fram milli Tækni-
skóla íslands og Vélskólans um
samvinnu á ýmsum sviðum en þar
virðast vera mun meiri möguleikar
á samvinnu í séráföngum og í sam-
nýtingu á tækjabúnaði en hvað
Stýrimannaskólann varðar. Einnig
hefur Vélskólinn átt nokkurt sam-
starf við Háskóla íslands. Nú sem
stendur er í gangi samstarfsverk-
efni um vetnisbrennslu. Auk þess
hafa ýmis félög úti í atvinnulífinu
haft samstarf við Vélskólann varð-
andi endurmenntun og nýtingu á
tækjabúnaði.^
Vélskóli íslands veitir tækni-
menntun á breiðum grunni, sem er
þrepaskipt þannig að nemandinn
getur sjálfur ráðið umfangi og
framvindu námsins og þar með rétt-
indastigi. Efsta stigið, nám vélfræð-
ings, tekur 5 ár í skóla og 19 mán-
aða samningsbundið málmiðnað-
arnám. Eftir ákveðinn siglingatíma
fást ótakmörkuð réttindi sem vél-
stjóri óháð stærð véla eða skipa.
Þessi réttindi hafa verið viðurkennd
á Norðurlöndunum og nú er verið
að afla þessu námi alþjóðlegra við-
urkenninga. Vélstjóranámið veitir
einnig starfsréttindi við rekstur á
eimkötlum í landi. Starfsvettvangur
vélstjóra er bæði til sjós og lands
enda hefur menntunin mikla breidd
og er eftirsótt hjá ýmsum fyrirtækj-
um í landi; einnig eru margir vél-
stjórar sem reka eigin fyrirtæki. í
landi starfa vélstjórar m.a. í virkj-
unum, hitaveitum, frystihúsum og
á vélaverkstæðum svo dæmi séu
tekin. Heitið Sjávarútvegsskóli
spannar því engan veginn alla þá
starfsemi og þann starfsvettvang
sem vélstjórafræðslan tekur til.
Mikilvægt er að starfsmenn skól-
anna fái vinnufrið til að laga mennt-
unina enn betur að íslensku at-
vinnulífi, að Vélskóli íslands, Stýri-
mannaskólinn í Reykjavík og Fisk-
vinnsluskólinn geti búið við öryggi
og framtíð þeirra sé tryggð. Löng
umræða um óvissa framtíð skól-
anna hefur vafalítið komið niður á
fjárveitingum til viðhalds húsa og
til uppbyggingar á tækjabúnaði.
Nú er mál að linni.
Þróunarstarf
í grein sinni minnist Finnur á
ráðstefnu sem haldin var um það
leyti sem starfshópurinn skilaði af
sér skýrslunni frá 1986. Á þeirri
ráðstefnu komu fram mjög sterkar
efasemdir og gagnrýni á að réttlæt-
anlegt væri að leggja niður fyrr-
nefnda sérskóla og stofna Sjávarút-
vegsskóla með fjölbrautasniði. Þeg-
ar um er að ræða jafn sérhæft nám
og hér er til umfjöllunar eru sérskól-
ar vænlegri til að fylgja eftir hinni
hröðu þróun sem á sér stað úti í
atvinnulífinu. Það helgast meðal
annars af því að hin faglega þekk-
ing beinist í ákveðinn farveg og
verður því beinskeyttari en dreifist
ekki um of. Vissulega þarf að búa
þannig að slíkum sérskólum að þeir
geti komið nýjungum sem fýrst inn
í kennsluna og hafi gott svigrúm
til tilraunakennslu og kennslu-
gagnagerðar. Þeir gætu þá í leið-
inni starfað sem móðurskólar eða
þjónustuskólar fyrir brautir sem
annast svipaða kennslu í fjölbrauta-
skólum víða um landið. Við núver-
andi aðstæður er vart hægt að
ætlast til þess að menntamálaráðu-
neytið geti annast þennan þátt svo
vel fari. Til þess skortir það bæði
starfslið og sérþekkingu.
Fjöldi nemenda og
kennsluaðstaða í Vélskóla
íslands
í grein sinni kemur Finnur inn á
fækkun nemenda í Vélskóla ís-
lands. Við þá skoðun fer hann að-
eins aftur til ársins 1980. Til að
átta sig betur á þessu máli þarf að
skoða lengra aftur í tímann. Frá
upphafi Vélskóla íslands (1915) og
allt til ársins 1967 fór nemenda-
fjöldi skólans sjaldan eða aldrei upp
fyrir 100 nemendur og stundum var
fjöldinn langt undir þeirri töllu.
Fiskifélag íslands menntaði mótor-
vélstjóra á fiskiskip á þessu tíma-
bili eri hætti þeirri starfsemi 1966.
Með lögum um vélstjóranám frá
1966 er fallið frá þeirri kröfu að
fjögurra ára nám í járnsmíði (í iðn-
skóla og hjá meistara) sé inntöku-
skilyrði. Jafnframt var grunndeild
málmiðna tekin inn í skólann og
öll iðnskólafög fyrir vélvirkja. Um
þetta leyti var orðinn verulegur
skortur á vélstjóramenntuðum
mönnum svo að til vandræða horfði
og undanþágur voru margar. Til
þessa tíma var aðsókn að Vélskól-
anum mjög háð þeim lærlingafjölda
sem var í járnsmíði á hverjum tíma.
Með lögunum frá 1966 var eins og
stíflugarður brysti og nemendur
flykktust inn í skólann og fór nem-
endafjöldi talsvert yfir 300 sum
árin milli 1968 og 1980. Um 1980
varð mikill samdráttur í öllum járn-
iðnaði sem kom bæði niður á Vél-
skólanum og iðnskólunum. Um
sama leyti var Vélskólanum breytt
úr bekkjakerfi yfir í áfangakerfi og
námið lengdist um 1 ár. Á þessum
árum jókst námsframboð mikið á
framhaldsskólastiginu sem vafa-
laust hefur átt sinn þátt í að færri
fóru í Vélskólann. Á tímabilinu
milli 1968 og 1980 voru oft mikil
þrengsli í skólanum. Þetta kom iðu-
lega niður á kennslunni, t.d. var
stundum kennt í matsal skólans og
útbúin var sérstök kennslustofa í
setustofu á 2. hæð. Málm- og renni-
smíði var komið fyrir við þröngar
aðstæður í kjallara hússins þar sem
þær eru enn. Kennsluaðstaðan sem
Vélskóli íslands bjó við á þessum
tíma var gjörsamlega óviðunandi
og starfsaðstaða kennara var nán-
ast engin. Nemendafjöldi Vélskól-
ans hefur verið nokkuð stöðugur
eftir fækkunina sem varð upp úr
1980 eða um 200 nemendur.
Kennsluhættir hafa breyst mjög
á undanförnum árum og mikil
aukning orðið á tækjakennslu og
þar með sérstofum en þessi kennsla
er plássfrek. Með færri nemendum
er nú lag að flytja smíðakennsluna
úr fyrrnefndum kjallara og í bjart-
ara, rúmbetra og vistlegra húsnæði
en þetta krefst skipulagsbreytinga
á húsnæði skólans.
Sjómannaskólinn er því síst af-
lögufær með húsnæði eins og allir
geta séð sem áhuga hafa á að kynna
sér málið. Sé gerður samanburður
við vélskóla og stýrimannaskóla á
Norðurlöndunum þá er öll aðstaða
þar, varðandi verklegt nám og hús-
rými, til fyrirmyndar enda löngu
viðurkennt að slíkt nám er ekki
hægt að stunda með bókina og krít-
ina sem einu vopnin.
Ég tel að Finnur Ingólfsson hafi
ekki kynnt sér nægilega vel starf-
semi Vélskólans og þýðingu hans
fyrir íslenskt atvinnulif. Meiri
áhersla virðist hafa verið lögð á að
skoða skóla erlendis en í kjördæm-
inu Reykjavík. Ég vona þó að þessi
grein verði til þess að hann verði
nokkru fróðari um skólann og hann
er ávallt velkominn í heimsókn til
að skoða og ræða við starfsmenn
skólans.
Höfundurer skólameistari
Vélskóla íslands.
----»■ ■» ♦-
Starfsmanna-
félag RÚV
mótmælir
Á aðalfundi Starfsmannafélags
Ríkisútvarpsins sem haldinn var í
fyrradag var samþykkt að mót-
mæla „harðlega pólitískri íhlutun í
málefni Ríkisútvarpsins". Fordæm-
ir fundurinn einnig þá misbeitingu
valds sem fram kom í ráðningu í
stöðu framkvæmdastjóra Sjón-
varps, eins og sagði í samþykkt
fundarins, sem Morgunblaðinu hef-
ur borist.
Sumarhúsasýning
á Selfossi
Þér gefst einstakt tækifæri til
þess að skoða fullbúið hús í hólf
og gólf, í ró og næði. Komdu og
ráðfærðu þig við fagmenn.
Hjá okkur færðu hugmyndir,
teikningar, kostnaðaráætlanir,
myndir og upplýsingar um
sumarhúsalóðir,
allt á einum stað.
Allir velkomnir.
Við verðum við söluskála
SHELL
við Suðurlandsveg
frá kl. 13.00—19.00.
Gagnheiði 1, Selfossi,
sími 98-22333, fax 98-22329.