Morgunblaðið - 08.04.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993
39 ár frá stofnun AA-samtakanna
Hátíðafundur er á
föstudag’inn langa
AFMÆLISFUNDUR AA-samtakanna verður haldinn að venju föstudag-
inn langa í Háskólabiói og hefst kl. 21.00. Allir eru velkomnir en á
fundinum tala nokkrir AA-félagar og gegtur frá Al-Anon samtökunum
sem eru samtök aðstandenda. Kaffiveitingar verða að fundi loknum.
AA-samtökin á íslandi voru stofn-
uð föstudaginn langa 1954 eða fyrir
39 árum síðan og hefur dagurinn frá
upphafi verið hátíðis- og afmælisdag-
ur þeirra. AA-samtökin eru félags-
skapur karla og kvenna sem sam-
hæfa reynslu sína, styrk og vonir svo
þau megi leysa sameiginlegt vanda-
mál og séu fær um að hjálpa öðrum
til að losna frá áfengisbölinu.
Nú eru starfandi um 238 deildir
AA-samtakanna unT land allt og þar
af eru 83 deildir í Reykjavík. Erlend-
is eru 8 íslenskumælandi deildir.
Hver deild heldur fund a.m.k. einu
sinni í viku og er fundarsóknin allt
frá 5-10 manns upp í 150 manns.
Upplýsingar um fundi fást hjá skrif-
stofu samtakanna í Tjarnargötu 20.
Morgunblaðið/Sverrir
Hans Christiansen opnar sýningu í safnaðarheimili Hveragerðis-
kirkju á skírdag.
SVEIGJANLEGUR
LÍFEYRIR
sameignar- eba séreignarfyrirkomulagi
ÓSKA^LÍFEYRIR
að þínu vali!
Óskalífeyrir leggur áherslu á sveigjanlegt lífeyrisfyrirkomulag. Hann hjálpar
þér með einföldum en markvissum sparnaði að styrkja Iffeyrisrétt þinn og
leggur þannig grunn að öruggri afkomu á efri árum. I Óskalífeyri getur þú
hafið lífeyristöku 60 ára og þú átt val um á hve löngum tíma þú tekur út
þinn lífeyri.
ÓSKALÍFEYRIR
býður upp á eftirtalda lífeyrismöguleika sem velja má úr einn eða fleiri.
Ævilífeyrir
er greiddur mánaðarlega frá lífeyrisaldri til dánardags.
Tímabilslífeyrir
er greiddur mánaðarlega í ákveðinn tíma. Lágmarkstími er 5 ár en
hámark 20 ár.
Eingreibslulíféyrir
greiðist í einu lagi á lífeyrisaldri.
Eingreiðslusöfhun
er séreignarfyrirkomulag og greiðist í einu lagi á lífeyrisaldri.
ÓSKALÍFEYRIR - NÝJUNG í LÍFEYRISMÁLUM!
Þú færö nánari upplýsingar hjá tryggingarráðgjöfum Sameinaba Ifftryggingarfélagsins hf. Hafðu samband!
Sameinaða líftryggingarfélagib hf. Kringlunni 5,103 Reykjavík. Sími 91-692500
í eigu Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Myndlist-
arsýning í
Hveragerði
HANS Christiansen myndlist-
armaður opnar sýningu á vatns-
lita- og pastelmyndum í safnað-
arheimili Hveragerðiskirkju á
skírdag, 8. apríl, klukkan 18.
Sýningin verður síðan opin dag-
lega frá klukkan 14-22 og lýkur
henni að kvöldi 2. páskadags.
-----» ♦ ♦----
„Ef þessi
þúsund“
Innsetning eftir
Wendy Oberlander
SYNING á innsetningum eftir
Wendy Oberlander verður opnuð
í Gallerii II, laugardaginn 10.
apríl. Á síðustu sex árum hefur
Wendy Oberlander sýnt innsetn-
ingar unna með blandaðri tækni
í Kanada og Bandaríkjunum.
Þessi verk hafa fengist við að
athuga ýmis kerfi mannsins t.d.
tungumál og vísindi, og rannsak-
að á hvern hátt þau gegna hlut-
verki sínu og hvar þeim mis-
tekst. Oberlander notar ýmis
efni, oft sótt í daglegt líf, í verk
sín og hefur áhuga á að athuga
á hvern hátt hún er mótuð af
þessum kerfum og hvernig hún
getur máð út hinar skörpu hliðar
þeirra.
Þar sem fiskurinn er grundvöllur
þjóðlífs á íslandi, notar „Ef þessi
þúsund" vinnuna til að tjá hið ósýni-
lega og hljóðláta. Þó að vinnan
spanni yfir allan okkar lífsferil,
ýmist sem nauðsynleg lífsbarátta
eða ánægjuleg verk unnin af ástúð,
er mest af því starfi ósýnilegt, eink-
um framlag kvenna. Með því að
tengja saman ímyndir og hluti sem
endurspegla heima vinnunnar og
heimilisins, veitir þessi innsetning
örlitla innsýn í athafnir og raddir
sem eiga rót sína að rekja til hins
daglega lífs. Líkaminn er ekki til
staðar, en samt alls staðar nálæg-
ur; í beinum, höndum og stólum.
Andspænis þögn og dauða bera
margar ímyndir lífinu vitni; vatn,
ljós, sögur. Bilið milli ímynda og
hluta gefur áhorfandanum tækifæri
til að takast á við þær hugmyndir
sem felast í og tengjast „Ef þessi
þúsund".
Wendy Oberlander býr um þessar
mundir á íslandi og hefur Fulbrig-
ht-styrk frá Menntastofnun íslands
og Bandan'kjanna til dvalarinnar,
auk styrks frá Canada Council.
Sýningin stendur frá 10.-22.
apríi og verður opin daglega frá
klukkan 3-6 síðdegis.
(Fréttatilkynning)
♦ ♦ ♦----
Meinlokur
SÆLDAN „Meinlokur" með 23
lögum Jóns Halls Stefánssonar
hefur verið endurútgefin, en hún
hefur ekki fengist um skeið.
Höfundurinn syngur og leikur
undir á gítar.
Snældunni fylgir örsmátt texta-
hefti. Meinlokur kosta þúsund krón-
ur og fást keyptar í versluninni
Hljómalind í Austurstræti. Einnig
er hægt að fá snælduna senda heim
á ögn hærra verði með því að skrifa
höfundinum; utanáskriftin er Póst-
hólf 7098, 127 Reykjavík.
(Fréttatilkyiming)
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!